Fréttablaðið - 14.11.2005, Page 20

Fréttablaðið - 14.11.2005, Page 20
[ ] El ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Arinbúðin Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið) · Sími 567 2133 · www.arinn.is Ný sending af kristalsljósakrónum Kattalúgur eru mjög sniðugar á veturna fyrir þá sem eiga ketti. Það getur orðið ansi kalt í húsinu ef að það þarf alltaf að láta glugga standa opinn til þess að kettirnir komist út og inn. Fyrirtækið Skúfur sérhæfir sig í hreinsun teppa, lítilla og stórra, fínna og grófra, mjúkra og harðra. Skúfur er á Kleppsvegi 150 í húsi við hliðina á Jói Fel og Árni Svavarsson er sérfræðingurinn. Árni hefur rekið hreingerningar- þjónustu í tuttugu ár og nú var hann að opna hana á nýjum stað og auka við tækjakostinn. Við tókum hús á honum í tilfefni af því. „Ég er alltaf að reyna að bæta þjónustuna,“ segir Árni brosandi og kveðst meðal ann- ars nýlega hafa aukið færni sína í að hreinsa handunnin austurlensk teppi þannig að mýkt ullarinnar og litfesta sé tryggð. Auk þess nefnir hann steinteppin sem hafa rutt sér til rúms á síðustu árum að minnsta kosti á vinnustöðum. Þau þurfa sérstaka meðhöndlun við hreinsun og til þess á hann réttu græjurnar. En hann er líka með ráðleggingar- þjónustu og þegar hann er spurður hvernig eigi að snúa sér ef rauðlit- aður skyrdrykkur svettist yfir stein- teppið stendur ekki á svari. „Þá er best að rennbleyta handklæði, leggja þykkt lag af handklæðum ofan á og farg þar ofan á. Láta það svo standa yfir nótt. Þá dragast óhreinindin upp eins og þegar þú vökvar blóm með því að hella vatni í undirskálina sem potturinn stendur í. Blómið dregur til sín vatnið á löngum tíma. Þetta er góð aðferð til að redda svona málum.“ Árni er ekki aðeins vel græjaður til teppahreinsunar heldur tekur hann líka húsgögn í hreinsun, bæði úr taui og jafnvel leðri og eitt af því sem í boði er er óhreininda- vörn á tauhúsgögnum. Annars kveðst Árni fá hálfgerð- an hroll þegar hann skoði húsbún- aðarblöð í dag þar sem köld efni eins og stál, gler, steinn og marmari eru í aðalhlutverkum. Hann mælir frekar með mýkri efnum og telur teppi ekki njóta sannmælis þegar gólfefni eru valin með tilliti til heil- næms lofts í íbúðum. Segir mun meira ryk í loftinu þar sem parkett er á gólfum heldur en teppi. „Mér finnst umræða um gólfefni þurfa að komast á hærra plan,“ segir hann og bætir við að lokum. „Góð teppi virka nefnilega sem síur. Þau safna í sig óhreinindunum og ef fólk er með góða ryksugu og lætur þrífa hjá sér teppin reglulega er miklu hollara að hafa teppi. Árni getur þess að þar sem hann fer út um bæ í teppa- hreinsun er aðeins opið á Klepps- veginum milli 16-18. Hrein teppi eru eins og síur Áður en hafist er handa við að mála þarf að velja rétt viðgerðarefni og þrífa öll óhreinindi, til dæmis fitu og ryk. Gömlu málninguna sem glansar þarf að gera matta með milligrófum sandpappír. Velja þarf þá málningu sem á við í hverju herbergi, til að mynda 4 til 5% gljáa á loft og 10% á veggi í svefnherbergjum og stofu. Í eldhús þarf 20 til 30% gljástig og inn á baðherbergjum er svo notuð málning með háum gljáa, 40 til 50% eða jafnvel olíumálningu. Við fáum góða hulu með því að fara 2 umferðir. Gott er að bletta yfir viðgerð með þeim lit sem mála á með áður en málun hefst. Gott er að geyma rúllu og pensla í plastpoka milli umferða og spara þannig óþarfa þvott. af byko.is { góð ráð } Stendur til að mála? GÓÐUR UNDIRBÚNINGUR TRYGGIR BETRI ÁRANGUR. Árni á góðan tækjakost til teppahreinsunar og hefur tuttugu ára reynslu í faginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þessi motta var einu sinni hvít. Sama motta eftir að hafa fengið meðhöndlun í Skúfi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.