Fréttablaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 72
> Ungir leikmenn á Íslandi jafngóðir og aðrir í Evrópu Þjálfararáðstefna KÞÍ og KSÍ sem haldin var á laugardag reyndist hin fróðlegasta og jafnframt hin mesta skemmtun fyrir þá sem á hana mættu. Fyrirlesarar og aðrir þátttakendur hennar kepptust við að henda fram fullyrðingum og á köfl- um nokkuð harðri gagnrýni á hina ýmsu þætti innan knattspyrnuhreyfingarinnar á Íslandi og fullyrti Teitur Þórðarson meðal annars að ungir leikmenn á Íslandi væru ekkert síðri en flestir jafn- aldrar þeirra um gjörvalla Evrópu. Það væri hins vegar stökkið upp í meistaraflokk sem reyndist þeim dragbítur þar sem æfingaálagið á Íslandi væri eðli- lega mun minna en hjá öðrum félögum í Evrópu. FITNESS Kjartan Guðbrandsson og Rannveig Kramer urðu hlutskörp- ust á Íslandsmóti Ice-fitness sem fram fór í Laugardalshöll á laug- ardagskvöld. Hörð barátta var í báðum flokkum og réðust úrslit ekki fyrr en í síðustu grein sem var samanburður. Kjartan setti m.a. Íslandsmet í upphýfingum og dýfum þar sem hann náði 99 slíkum samanlagt. Þá setti Rannveig einnig Íslands- met í armbeygjum hjá konunum með því að taka 88 slíkar. - vig Ice-fitness Íslandsmótið: Rannveig og Kjartan sigruðu 28 14. nóvember 2005 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Enskir fjölmiðlar eru allir sammála um að Wayne Roon- ey hafi verið besti leikmaður enska landsliðsins í 3-2 sigrin- um á Argentínu á laugardag og að þeir Paul Robinson og Steven Gerrard hafi staðið honum næst og að sjálfsögðu Michael Owen, sem reyndist betri en enginn á lokamínútunum. Rooney fær að lágmarki níu í einkunn hjá öllum helstu fjölmiðlum Bretlands og er farið afar fögrum orðum um frammistöðu hans. „Þótt hann myndi aldrei skora aftur yrði hann alltaf valinn sjálf- krafa í byrjunarliðið vegna eigin- leika hans í að slátra vörnum and- stæðinganna,“ sagði meðal annars í umsögn hjá The Guardian. Einnig eru allir sammála um að leikstjórnandinn Juan Roman Riquelme hafi verið besti leik- maður Argentínu í leiknum enda fór nánast allt spil liðsins í gegn- um hann og átti hann ekki í mikl- um erfiðleikum með að fara fram- hjá Ledley King, sem settur var honum til höfuðs í leiknum með takömörkuðum árangri. - vig � � LEIKIR � 16.15 Valur og Skövde mætast í Evrópukeppninni í handbolta í Laugardalshöllinni. � 19.15 Þór og KR mætast í Iceland Express-deild karla í körfubolta á Akureyri. � 19.15 Hamar/Selfoss og Skallagrímur eigast við í Iceland Express-deild karla í körfubolta á Selfossi. � 19.15 ÍR og Njarðvík etja kappi í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Seljaskóla. � 19.15 Snæfell og Fjölnir mætast í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Stykkishólmi. � 19.15 Höttur og Grindavík mætast í Iceland Express-deild karla í körfubolta á Egilsstöðum. � 19.15 Keflavík og Haukar eigast við í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Keflavík. � � SJÓNVARP � 08.00 Vináttuleikur í knattspyrnu á Sýn. Leikur Englands og Argentínu endursýndur. � 11.45 HM 2006 í knattspyrnu á Sýn. � 13.25 HM 2006 á Sýn. Leikur Spánar og Slóvakíu endursýndur. � 15.05 Ice Fitness 2005 � 16.05 Evrópukeppni félagsliða í handbolta á RÚV. � 17.35 Bandaríska mótaröðin í golfi á Sýn. � 18.30 NFL-tilþrif á Sýn. � 19.00 Ameríski fótboltinn á Sýn. � 21.30 NBA körfuboltinn á Sýn. � 22.00 Helgarsportið á RÚV. � 23.30 Hnefaleikar á Sýn. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 10 11 12 13 14 15 16 Sunnudagur NÓVEMBER � � SJÓNVARP � 17.50 Ameríski fótboltinn á Sýn. � 20.00 Meistaradeild Evrópu á Sýn. Fréttir af leikmönnum og liðum í Meistaradeildinni. � 20.30 Strákarnir í Celtic á Sýn. Þáttur um Kjartan Henry Finnbogason og Theodór Elmar Bjarnarson leikmenn Celtic. � 21.05 Maradona á Sýn. Þáttur um argentísku knattspyrnugoðsögnina Diego Maradona. � 22.00 Olíssport á Sýn. � 23.00 HM 2006 á Sýn. Sýnt frá leikjum helgarinnar í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 11 12 13 14 15 16 17 Mánudagur NÓVEMBER 52-53 (32-33) Sport 12.11.2005 15:33 Page 2 Frammistaða ensku landsliðsmannanna í leiknum gegn Argentínu á laugardag: Wayne Rooney var bestur allra EINKUNNIR ENSKU LANDSLIÐSMANNANNA THE SUN GUARDIAN SKY BBC PAUL ROBINSON 8 7 8 8 LUKE YOUNG 7 5 6 6 JOHN TERRY 7 5 7 6 RIO FERDINAND 7 6 6 6 WAYNE BRIDGE 5 5 4 5 DAVID BECKHAM 8 7 7 7 LEDLEY KING 7 5 6 7 FRANK LAMPARD 8 6 6 6 STEVEN GERRARD 8 7 7 7 WAYNE ROONEY 9 9 9 9 MICHAEL OWEN 7 8 8 8 WAYNE ROONEY Var frábær í leiknum í gær, skoraði mark og var duglegur við að leggja upp fyrir félaga sína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÓTBOLTI Teitur Þórðarson, þjálf- ari KR, telur að atvinnumennska verði við lýði í íslenskum fótbolta innan fimm ára og bendir, máli sínu til stuðnings, á að peningarn- ir í íslenskum fótbolta í dag séu oft á tíðum síst minni en hjá liðum í norsku úrvalsdeildinni. „Þegar ég var úti í Noregi að þjálfa Brann og Lyn á sínum tíma þá voru þetta ekki atvinnumenn,“ sagði Teitur við Fréttablaðið í gær. „Atvinnumennskan kemur ekki til Noregs fyrr en 1994 og þá var það mjög algengt að menn væru í hlutastörfum með fótboltanum. Menn æfðu klukkan sex á morgn- ana og svo aftur seinna um daginn og þannig hefur þetta byggst upp í Noregi og Skandinavíu. Það sama er að gerast hérna núna. Eftir nokkur ár verða félögin hér orðin atvinnufélög svo þetta breytist allt saman. Þetta er framtíðin á Íslandi. Við héldum á sínum tíma að þetta væri ekki framtíðin í Noregi eða Skandinavíu en þetta hefur gjörbreyst allt saman þarna úti og það er alls staðar atvinnu- mennska. Eftir allar þær breyt- ingar sem hafa orðið hér á nokkr- um árum þá tel ég að þetta gerist innan fimm ára, það er að segja að einhver af þessum liðum hérna á Íslandi verði orðin meira eða minna atvinnulið,” segir Teitur. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá að undanförnu fara laun leikmanna á Íslandi síhækkandi og eru dæmi um að menn þéni allt að fimm milljónir á ári fyrir það eitt að spila fótbolta en Teitur segir það mun hærri laun en hjá mörgum leikmönnum í Noregi. „Ég er ekki alveg búinn að átta mig á því en vissulega er verið að borga mjög góð laun á sumum stöðum hérna á Íslandi. Launin í Noregi eru vissulega góð, bestu liðin í Noregi eru að borga mjög vel og sumir leikmenn þar eru að þéna 30 milljónir á ári,” segir Teitur og bætir við að sjálfsagt séu margir leikmenn hér á landi sem þéni ekkert minna en kolleg- ar þeirra í Noregi. “Þó svo að menn séu atvinnu- menn eru þeir ekki á neinum gríð- arlega háum launum. Það eru stóru liðin sem borga rosalega vel en í öðrum liðum eru menn að hafa kannski þrjár milljónir á ári. Ég get nefnt Ålesund sem dæmi, þeir féllu reyndar úr efstu deildinni í Noregi núna en þar eru margir leikmenn sem eru ekki að þéna þrjár milljón- ir á ári. Það sama gildir um fleiri lið,” segir Teitur. - hþh Atvinnumennska á Íslandi innan næstu fimm ára Teitur Þórðarson, þjálfari KR, segir framtíðina á Íslandi aðeins stefna í eina átt miðað við peningana sem komnir eru í íslenska boltann. TEITUR ÞÓRÐARSON Segir að atvinnumennska verði á Íslandi eftir fimm ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Patrick Vieira, leikmaður Juventus á Ítalíu, er harðorður í garð síns gamla félags Arsenal í nýútkominni ævisögu sinni en hann segir að liðið hafi ekki viljað hafa sig áfram. Ummæli David Dein, varafor- manns liðsins, urðu til þess að Vieira ákvað að fara: ,,Ég varð mjög reiður, undrandi og fúll,“ sagði Vieira sem segir að Dein hafi sagt að sér væri alveg sama hvort hann yrði áfram hjá liðinu eða ekki og að valið væri hans. „Ég vissi að ef Arsenal vildi halda mér þá myndu þeir gera allt sem þeir gætu til þess en ekki láta Dein ráða því. Ég spurði hann hvað hann meinti og hann svaraði mér og sagði að þeir vildu bjóða mér góðan samning en mér var alveg sama um það, ég hugsaði bara um orð hans, að þeim væri alveg sama þótt ég færi. Ég sagði honum að ef það væri staða liðsins þá myndi ég fara og velja mér úr liðum þar sem ég gæti það. Klúbb- urinn lét skoðun sína í ljós og því fór sem fór.“ - hþh PATRICK VIEIRA Segir að David Dein hafi ekki gefið sér annan kost en að fara frá Arsenal. JOHN TERRY David Beckham vill sjá hann sem næsta fyrirliða enska landsliðsins. FÓTBOLTI David Beckham, núver- andi fyrirliði enska landsliðsins, segir að John Terry hljóti að koma sterklega til greina sem arftaki fyrirliðabandsins. Michael Owen er núverandi varafyrirliði liðsins og þá þykir Steven Gerrard koma sterklega til greina þegar Beck- ham leggur landsliðsskóna á hill- una. En það er Terry sem virðist heilla Beckham mest. „Ég held að hann búi yfir öllum þeim kostum sem fyrirliði Englands þarf að hafa,“ segir Beckham. „Hann er fyrirliði Chelsea og hefur fyrir löngu sannað leiðtogahæfileika sína. Ég held að hann yrði frábær fyrirliði.“ - vig David Beckham: Terry yrði góður arftaki minn HANDBOLTI Meiðslin sem mark- vörður Stjörnunnar, Roland Valur Eradze, varð fyrir í leiknum gegn Val í 16-liða úrslitum SS-bikars karla í síðustu viku reyndust ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu en hann mun vera frá í rúma viku. Margir ráku upp stór augu þegar Eradze mætti í áhorfend- astúkuna á leik Fram og Þór í DHL- deildinni í gær með hendina vafða í gifs og töldu margir að Eradze væri brotinn. Hins vegar er aðeins um teygð liðbönd að ræða og ætti Eradze að verða klár á ný í næstu viku. - vig Handknattleikslið Stjörnunnar: Eradze frá keppni í rúma viku ROLAND ERADZE Er ekki eins alvarlega meiddur og talið var í fyrstu. Patrick Vieira: Arsenal vildi mig ekki lengur Ólafur Kristjánsson, fyrrverandi þjálf- ari Fram, var gagnrýninn á stefnu KSÍ varðandi uppbyggingu yngri landsliða á þjálfararáðstefnu sem KSÍ og KÞÍ stóðu fyrir á laugardag. Ólafur telur að það sé skortur á stefnumótun þegar kemur að landsliðunum og það sé hugsanlega ein meginskýringin á því af hverju A-lands- liðið sé ekki betra en raun ber vitni. „Ég velti því fyrir hvort að það sé einhver rauður þráður í gegnum öll landsliðin upp í sjálft A-landsliðið þar sem unnið er að markvissri uppbygg- ingu. Hver stýrir þróun og stefnumótun íslenskrar knattspyrnu? Er hvert og eitt félag að vinna í sínu horni eða er ein- hver stefna á vegum KSÍ?” Þessari spurningu varpaði Ólafur til Eyjólfs Sverrisson- ar, nýráðins þjálfara A-landsliðsins, sem var einn af fyrirlesurum ráðstefnunnar. Ólafur kveðst hafa fengið fá svör. „Nei, ég fékk ekkert svar en veit að það er engin ákveðin stefna. Ég hef að minns- ta kosti ekki ennþá séð hana. Við erum alltaf að tala um að landsliðið okkar sé svo lélegt og leit- um skýringa á því en ef uppbygginguna skortir verður landsliðið aldrei gott,” segir Ólafur. „Við þurfum að sjálfsögðu að styrkja það landslið sem er núna en það verð- ur að sjálf- sögðu að b y r j a á því að styrkja þá landsliðsmenn sem verða til staðar eftir 10 ár. Þetta er svona í öllum íþróttum. Ég get nefnt danska kvennalandsliðið í handbolta sem dæmi. Danir voru með slakt landslið eins og Ísland fyrir tuttugu árum þegar þeir fóru markvisst að byggja upp yngri landsliðin. Í dag eiga þeir eitt besta kvennalands- lið í heimi,” segir Ólafur og kallar á skýr markmið. “Ég sé ekki neina stefnu í íslenskum fótbolta, á engan hátt. Ég tel að það sé nauðsynlegt að koma á þessum rauða þræði sem unnið verður að því að styrkja svo að nýir þjálfarar séu ekki sífellt að byrja á núlli. Það er auðvitað hægt að halda ástandinu óbreyttu en ef það á að nást betri árangur verða öll landsliðin að vera á sömu línu,” segir Ólafur. ÓLAFUR KRISTJÁNSSON: SEGIR EKKI NÆGILEGA SAMVINNU RÍKJA MILLI LANDSLIÐA ÍSLANDS Öll landsliðin verða að vera á sömu línu Spánverjar á leiðinni Líklegt er að Spánverjar komi hingað til lands næsta sumar og spili vináttuleik við íslenska landsliðið í knattspyrnu þar sem liðið er nánast öruggt með sæti á HM eftir sigur á Slóvakíu um helgina, 5-1. Áður hafði spænska knattspyrnu- sambandið boðað komu landsliðs síns hingað færi svo að það kæmist í lokakeppni HM.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.