Fréttablaðið - 14.11.2005, Qupperneq 19
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
94
67
11
/2
00
54,45%
Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu
ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem
hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða
á fasteignathjonusta@landsbanki.is
Íbúðalán
410 4000 | landsbanki.is
Fasteignasölurnar Húsið og Smárinn
eru með 263,4 fermetra einbýlishús til
sölu að Melabraut 17 á Seltjarnarnesi.
Húsið er tvær hæðir auk kjallara og
hefur að mestu verið endurnýjað.
Á neðri hæð er flísalagt anddyri, rúmgott
hol, lítið skrifstofuherbergi, nýuppgert eld-
hús og stofa og borðstofa með útgangi út á
stórar svalir og þaðan út í garð. Gert er ráð
fyrir lítilli gestasnyrtingu á neðri hæðinni
en hún er ófrágengin. Parkett á neðri hæð
er úr gegnheilli hnotu.
Upp á efri hæð liggur stigi sem mun
verða parkettlagður með nýju handriði og í
stigahúsinu er stór franskur gluggi.
Á efri hæð er rúmgott sjónvarpsher-
bergi, tvö barnaherbergi með skápum,
hjónaherbergi með rislofti og útgangi út á
litlar svalir og flísalagt baðherbergi með
hornbaðkari með ljósum og nuddi, upp-
hengdu salerni og vaski í borði. Parkett á
efri hæð er gegnheilt úr rauðeik.
Í kjallara er þvottahús, stór geymsla,
geymsla undir stiga og tveggja herbergja
íbúð með sérinngangi. Í kjallaraíbúðinni
er eldhús með nýrri eldavél og stofa í sama
rými, svefnherbergi með skápum og flísa-
lagt baðherbergi með sturtuklefa.
Rafmagnstafla og allt rafmagn í húsinu
er nýtt.
Við húsið er bílskúr þar sem búið er að
leggja fyrir rafmagni og heitu og köldu
vatni en eftir er að tengja það.
Garðurinn er stór og vel ræktaður og í
honum er matjurtagarður og lítið tréhús.
Ásett verð er 63 milljónir.
Fallegt hús í vel
ræktuðum garði
Einbýlishús á tveimur hæðum með séríbúð í kjallara. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Nýtt mötuneyti er nú í bígerð
hjá grunnskólanum í Bolungar-
vík. Í október var nýr matsal-
ur opnaður í skólanum en
eldamennskan
hefur hins vegar
farið fram í
félagsheimilinu
Víkurbæ og
maturinn síðan
fluttur á milli, en
litið hefur verið
á það sem tíma-
bundna lausn.
Nítján íbúða
fjölbýlishús á
fimm hæðum
verður reist á
lóðinni Holsflöt 6 á Akranesi.
Húsið verður samtals rúmir
2.000 fermetrar og er arkitekt
Kristinn Ragnarsson.
Lóðaúthlutun fyrir hið nýja
Krikahverfi í Mosfellsbæ hófst á
miðvikudag. Lóðir fyrir tæplega
200 íbúðir eru til úthlutunar.
Kr ikahver f i
verður á
ó b y g g ð a
s v æ ð i n u
v e s t a n
Reykjavegar
og norðan
Vesturlands-
vegar. Gert
er ráð fyrir að
tæplega sex-
tíu prósent
í b ú ð a n n a
verði einbýl-
ishús, rað-
og parhús. Hreyfihömluðum og
fjölskyldum þeirra er veittur for-
gangur að fjórum einbýlishúsa-
lóðum í hverfinu.
LIGGUR Í LOFTINU
[ HÚS OG FASTEIGNIR ]
Góðan dag!
Í dag er mánudagur 14.
nóvember, 318. dagur ársins 2005.
Reykjavík 9.53 13.12 16.30
Akureyri 9.52 12.57 16.01
Geymsla fær nýtt hlutverk bls. 4
Hrein teppi eru eins og síur bls. 2
Vífill Magnússon bls. 11
Gluggarnir í Þingholtunum bls. 22
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI: 550 5000
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FASTEIGNASÖLUR
Ás 14-16
Bifröst 7
Draumahús 23-26
Eignastýring 21
Fasteignastofan 11
Fasteignastofa Suðurlands 17
FF 36
FM 8
FMG 8
FMH 12
Foss 13
Hof 9
Hraunhamar 30-31
Húsalind 18
Húseign 37
Klettur 34-35
Lundur 28
Lyngvík 19
Lögmenn 27
Neteign 20
Nýtt 10
Smárinn 32-33
Remax Mjódd 17
X-hús 6