Tíminn - 05.03.1976, Blaðsíða 15
Föstudagur 5. marz 1976.
TÍMINN
15
„Heimsókn handan
við Hraundranga”
Svo nefndist kvikmynd, sem
Ómar Ragnarsson sá um og var
á sl. vetri I sjónvarpinu. Um
myndina ætla ég mér ekki aö
dæma. En nafn myndarinnar
gefur mér ástæöu til aö rita
þessar linur, þótt tilefniö sé ef til
vill ekki stórvægilegt. Aldrei
segir maöur „handan viö” fjall,
nema hann eigi viö eitthvaö,
sem er bak viö fjalliö, en ekki
um þaö, sem aö honum snýr.
Mér þótti þvi þessi nafngift
næsta hláleg.
Drangi og félagar hans (hinir
drangarnir) eru ekki slöur
Hörgárdals megin en öxnadals.
Fjalliö er þarna örþunnt, og
standa drangarnir upp úr fjalls-
egginni meö smásköröum á
milli, og sjást jafnvel úr báöum
dölunum, þótt þeir hafi dálítiö
aöra lögun, eftir þvl úr hvorum
dalnum á þá er horft. Þykir mér
þeir öllu frföari á aö lita Ur
Hörgárdal, en hrikalegri og
stórfenglegri úr Oxnadal séö.
Málvenja þar um slóöir er aö
tala um einn drang, aöaldrang-
inn, sem jafnan er nefndur
Drangi (eiginlega oröiö sér-
nafn). Raunar eru drangarnir
þrlr (fyrirutansmánippur). Yzt
er litill drangur, oftast kallaöur
Litli-Drangi. Þar næst Drangi
sjálfur, langhæstur. Fremst
(syöst) er Kistan (Dranga-
kista), sem ekki er eiginlega
drangur, heldur kistulaga klett-
ur og sést öllu betur úr Hörgár-
dal en öxnadal. Vanalega er
talaö um Dranga, sem einn
drangur væri. Fjalliö milli dal-
anna, þar sem drangarnir sitja
á, er nefnt Drangafjall eöa há-
fjall. Hörgdælireiga þvl Dranga
engu siöur en öxndælir. En llk-
lega veröa aldrei landamerkja-
þrætur um Dranga, þótt á þess-
ari auraöld veröi jafnvel þrætur
útafblásnum mel,en af Dranga
er vlst litlar nytjar aö hafa,
enda eru landamerkin þarna
glögg.
Drangi, eöa drangarnir, koma
lltt viö sögu fyrri alda. Þó er
dranganna getiö viö landnám i
Hörgárdal (en ekki öxnadal). I
Landnámu segir svo: „Maöur
hét Þóröur slltandi. Hann nam
Hörgárdal upp frá Myrká og of-
an til Dranga (liklega hér fleir-
tala) öörum megin”. Vafalaust
hefir Þóröur búiö I Flögu, neöst i
landnáminú, sbr. Flögusel,
fremsta bæ sama megin dals-
ins, en þar hefir veriö selstaöa
frá Flögu. Þegar Landnámu
sleppir hefi ég ekki getaö fund-
iö, áö Drangi komi viö sögu. 1
þjóösögum Jóns Arnasonar (II,
bls. 95-96, eldri útg. Leipzig
1864) er minnzt á Dranga, en
nokkuö er þar málum blandaö.
Þar segir svo: „Hjá Steinsstöö-
um I öxnadal er tindur einn
mjög hár, sem Drangur heitir.
Sagt er, aö Grettir hafi eitt sinn
klifraö upp á Dranginn og lagt
þar til sannindamerkis hnlf sinn
ogbelti og sagt, aö hvorttveggja
skyldi sá eignast, sem sækti.
Neöan máls stendur aö sr.
Magnús Grimsson kalli tindinn
Grettisgnipu og ber fyrir sig
sögu öxndælings 1847. En ekki
hefir sá verið fróður um stað-
hætti, er setti Dranga niöur hjá
Steinsstööum.
I sóknarlýsingum Hins is-
lenzka bókmenntafélags (sem
Fjölnismenn gengust fyrir, aö
prestar geröu á árunum
1839-1854) er Dranga getiö I
sóknarlýsingu Bakkasóknar á
þessa lund, er fjallinu og um-
hverfinu hefir verið lýst: „Þessi
klettastrókur er kallaður
Hraundrangi, þar hann er beint
upp frá þeim bæ (Hrauni)
öxnadalsmegin, en upp frá
Nýjabæ hins vegar I Hörgár-
aáínum og sýnist gina yfir höfö-
um mann, þar bærinn (Nýibær)
stendur undir snarbrekktu fjall-
inu”. Staðarbakki, þar sem
myndin var tekin, er svolltiö
skáhallt móti Dranga. Einnig
blasir Drangi vel við bænum
Flögu, sem er næsti bær viö
Staöarbakka, lltiö eitt neöar I
dalnum, en I Flögu ólst ég aö
nokkru leyti upp, og varö
Drangi mér til daglegs augna-
yndis á að horfa.
Sóknarlýsing sú, er ég hefi
vitnað i, er ekki undirrituö, og
þætti mér ekki ósennilegt, aö
hún væri runnin undan rifjum
Jónasar Hallgrimssonar. Eiöur
fræöimaöur Guömundsson á
Þúfnavöllum hefur getiö þess
til, aö hún sé samin af Tómasi
Asmundssyni, mági Jónasar.
önnur skýrsla er um Bakkasókn
eftir sóknarprestinn, Kristján
Þorsteinsson á Bægisá. 1 henni
er Drangi ekki nefndur, enda er
lýsingin lltt nákvæm. Sama er
aö segja um lýsingu sr. Gamall-
elsÞorleifssonará Myrkársókn,
aö þar er Dranga ekki getiö, en
sú lýsing er einnig lítt merk.
Steindór Steindórsson frá
Hlööum, fyrrv. skólameistari,
telur vitaskuld ekki Dranga
fremur til öxnadals en Hörgár-
dals I hinni skilmerkilegu bók,
Lýsingu Eyjafjaröar (AK.
1949), er hann fjallar um dalina
báöa og fjallið á millum þeirra.
Llklega hefir Drangi ekki al-
mennt veriö kenndur viö Hraun,
fyrr en kvæöi Jónasar, Feröa-
lok, varö kunnugt. Drangi virö-
ist hafa veriö Hörgdælum hug-
stæðari en Yxndælum, þvl aö
þeir fyrrnefndu hafa oft minnzt
hans I^ljóöum, Sigurgeir
Sigurösson, er bjó alUengi I
Nýjabæ, orti:
Mörgum strangir stormar
klfs
steini I fang mér senda.
Undir Dranga leiöir lifs
llzt mér ganga á enda.
Móti Dranga hinum megin
Hörgárdals er fjallið Flögu-
kerling (oftast kölluö Keriing-
in). Er hún bústnari og meiri
um heröar en Drangi og lltiö eitt
hærri (1182 m á hæö, en Drangi
1075m). Er þeim stundum jafn-
aö til hjóna. Um þau kvaö
Kristján Þorsteinsson, er hokr-
aöi á Framlandi, mesta ör-
reytiskoti, afi Bjarnar Jónsson-
ar, fyrrv. ráöherra:
Hjónin bæöi brúnagrett
blína yfir dalinn.
Þeim var stæöi þarna sett,
þeygi er aö ræöa um annan
blett.
Ég rita ekki þessar línur, sem
nokkuö hefir teygzt úr, af
nokkrum sveitametnaði, enda
var Hörgárdalur og öxnadalur
einn og sami hreppur, heldur
blöskraöi mér, hve furðulega
var fávislega aö oröi komizt,
þar sem sumir menn skilja ekki
svo algeng orö sem „handan
við”.
Jóhann Sveinsson frá Flögu.
Ath.
Fyrst ég fór aö skrifa um
þetta, ætla ég til gamans og
fróöleiks aö bæta viö þessari
vlsu, er ég gleymdi aö geta um.
Er hún einnig eftir Kristján á
Framlandi um Drangakistu:
Drangi kistu eina á
og með vistir fulla.
Marga lystir svoddan sjá,
sveröa kvistur enginn má.
Aö lokum vil ég benda veg-
faröndum á, ef I Hörgárdal
skyldu koma, aö vert er að
skoöa Myrkárgiliö. En um þaö
fellur Myrká milli Flögu og
Myrkár, prestssetursins gamla.
Þar I gilinu er foss, er Geirafoss
(eöa Geirufoss) nefnist, einhver
meðal allra hæstu fossa á land-
inu og fagur aö þvl skapi, þótt
hann sé litt kunnur. Giliö eða
gljúfriö er og mjög sérkennilegt
og hrikalegt.
J.Sv.
Aðvörun um stöðvun
atvinnurekstrar vegna
vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10,22. marz 1960,
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir október, nóvember og desem-
ber 1975, og nýálagðan söluskatt frá fyrri
tima, stöðvaður, þar til þau hafa gert full
skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt
áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir
sem vilja komast hjá stöðvun, verða að
gera full skil nú þegar til tollstjóraskrif-
stofunnar við Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
2. marz 1976
Sigurjón Sigurðsson.
cfþig
Mantar bíl
Til að komast uppi sveit.út á land
eðai hinn enda
borgarinnarþá hringdu i okkur
ál
r
V
r \ n j áL ]
LOFTLEIDIR BÍLALEIGA
Súcrsta bilalciga landsins q^||
^21190
DATSUN _
7,5 I pr. 100 km
Bilaleigan Midborg
Car Rental , Q , QOi
Sendum I"”4-t2|
Auglýsið í Tímanum
Seljum í dag
1975 Mazda 929 Coupé
1974 Chevrolet Blazer Cheyenne V8 sjálfskiptur meö
vökvastýri
1974 Chevrolet Nova 6 cyl. sjálfskiptur, vökvastvri.
1964 Scout II V8 sjálfskiptur, vökvastýri
1974 Vauxhall Viva De Luxe
1974 Chevrolet Vega station sjálfskipt.
1974 Chevrolet Vega
1974 Austin Mini
1974 Fiat 132 GLS 1800
1974 Fiat 128 Rally
1974 Volkswagen 1300
1974 Ford Econoline sendiferöa.
1973 Chevrolet Nova, sjálfskiptur meö vökvastýri.
1973 Pontiac Le Mans 2ja dyra
1973 Ford Escort station
1973 Chevrolet Chevelle 6cyl. sjálfskiptur meö vökvastýri
1974 Mercury Montego M X 2ja dyra V8, sjálfskiptur, meö
vökvastýri.
1973 Scout II V8 sjálfskiptur, vökvastýri
1972 Chevrolet Blazer CST V8, sjálfskiptur meö vökva-
stýri.
1972 Chevrolet Chevelle meö vökvastýri
1972 Oldsmobile Cutlass sjálfskiptur vökvastýri
1971 Plymouth Duster 6 cyl. sjálfskiptur.
1970 Vauxhall Viva GT.
1967 Taunus 17 m.
Samband
Véladeild
Menntamálaráðuneytið,
3. marz 1976.
Laus staða
Kennarastaöa, ætluö hjúkrunarfræöingi, er laus til
umsóknar við Fjölbrautaskólann I Breiðholti I Reykja-
vík.
Kennaranum er ætlað aö sinna kennslu og leiðbein-
ingarstörfum á heilsugæslubraut skólans, m.a. i sam-
bandi við verklega þjálfun nemenda aö sumarlagi.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 3. april n.k. —
Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Útboð
Tilboð óskast i smiði á gufuskiljúm, raka-
skiljum og hljóðdeyfi vegna Kröfluveitu
fyrir Orkustofnun.
Otboðsgögn verða afhent gegn 5.000 kr.
skilatryggingu hjá Virki h.f., Verkfræði-
stofu Guðmundar og Kristjáns, Laufásveg
19 og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen
s.f., Ármúla 4, Reykjavik.
Tilboðum skal skilað 22. marz 1976.
Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen s.f.
Varadekk í hanskahólfi!
PUNCTURE PILOT
UNDRAEFNIÐ — sem þeir bíl-
stjórar nota, sem vilja vera lausir
viö að skipta um dekk þótt springi á
bílnum.— Fyrirhafnarlaus skyndi-
viögerð. Loftfyllíng og viðgerð í
einum brúsa. Islenzkur leiðarvísir
fáanlegur með hverjum brúsa.
ARMULA 7 - SIM1 84450