Tíminn - 05.03.1976, Blaðsíða 20

Tíminn - 05.03.1976, Blaðsíða 20
20 TÍMINN Föstudagur 5. marz 1976. 5 ný- liðar leika gegn Banda- ríkj- unum — á Keflavíkurflug- velli á sunnudaginn FIMM nvliðar hafa verift valdir i landsliðið I handknattleik kvenna, sem mætir ólympiuliði Banda- rlkjanna i iþróttahúsinu i Kefla- vlkurflugvelli á sunnudaginn. Bandariska liðið er væntanlegt til landsins á laugardaginn, og mun það leika hér þrjá iandsleiki — á Keflavikurflugvelli, i Hafnarfirði og á Akranesi. tslenzka landsliðið, sem mætir ólympiuliði Bandrikjanna á sunnudaginn, er eitt yngsta landslið, sem tsland hefur teflt fram — fimm nýliöar eru i liðinu og tvær stúlkur, sem hafa aðeins 1 landsleik að baki. Liðið er skipað þeim stúlkum, sem taka þátt i Norðurlandamóti stúlkna undir 22 ára aldri. Eftir taldar stúlkur leika á sunnudaginn: Alfheiður Kmilsd. Ármunni.... I Gvða Úlfarsdóttir, FH........ 7 Jóna M. Brandsd. FH.......... o Katrin Hanivalsd. FH ........ 0 Sigurborg Paöad. Breiðab..... 0 Jóhanna Halldórsd. Fram...... 2 Jenny L. Magnúsd. Fram....... 0 Hrefna B. Bjarnad. Val....... 5 Hjördis Sigurjónsd. KH....... 4 Halldóra Magnúsd. Val........ 0 Erla Sverrisd. Armanni ......11 llarpa Guömundsd. Val........ 1 JENNY L. MAGNÚSDÓTTIR.sést hér svífa inn i vigateig FH-liösins og skora örugglega. (Timamynd Róbert). FH-stúlkurnar misstu af lestinni BARÁTTAN um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna stendur á milli gömlu keppinautanna Fram og Vals. Fram-stúlkurnar geröu draum ungu stúlknanna í FH að engu i Laugardalshöllinni, á f immtudagskvöldið — sigruðu 12:7. Oddný Sigsteinsdóttir lék aðalhlutverkið hjá Fram-liðinu — þessi skotharða leikkona var tekin úr umferð, en það dugði ekki til. Oddný reif sig oft lausa og skoraði góð mörk. Baráttan stendur á milli Fram- og Vals- stúlknanna, sem leiða saman hesta sína á þriðjudaginn snjalla leikkona Armanns-liðsins, var óstöðvandi, þegar Armann vann stórsigur (21:8) i ieik gegn KR. Guðrún sendi knöttinn ellefu sinnum i netið hjá KR-stúlkunum. — B.R. Leikurinn var jafn i byrjun, en þegar Fram-stúlkurnar tóku Svanhviti Magnúsdóttur úr um- ferð i siðari hálfleik, breytti Fram stöðunni úr 6:6 í 9:9, og sigraði siðan örugglega 12:7. Vals-stúlkurnar voru einnig i sviðsljósinu — þær unnu öruggan sigur i leik gegn Vikingi — 19:8. Sigrún Guðmundsdóttir var at- kvæðamest hjá Vals-liðinu, en það vakti athygli, að Hrefna B. Bjarnadóttir, fyrirliði lands- liðsins, fékk að sitja á vara- mannabekk liðsins allan leikinn. Þetta sýnir, hvað breiddin er mikil hjá Vals-liðinu. Guðrún Sigurþórsdóttir, hin STAÐAN Staðan 11. deild Islandsmótsins í handknattleik kvenna eftir leik- ina I gærkvöldi: Valur — Vikingur 19:8 Armann—KR 21:8 Fram — FH 12:7 Fram Valur Ármann FH KR Víkingur Breiðablik Keflavik Næstu ieikir verða i Laugar- dalshöllinni á þriðjudagsk völdið i næstu viku. Þá leika Valur — Fram, Armann — FH og KR — Víkingur. ■ ' Vaknað upp við vondan draum Landslið kvenna í handknattleik er ekki lengur til! ÞAÐ hefur vakið mjög mikla athygli, að nær allar okkar beztu handknattleikskonur eru ekki I landsliðinu, sem leikur gegn Bandarlkjunum á næstunni. Sá orörómur hefur veriö uppi að undanförnu, aö landslið kvenna væri ekki lengur til, það heyrði eingöngu fortiðinni til. Staðfesting á þessum orðrómi fékkst svo, þegar tilkynnt var af H.S.Í., hvaða stúlkur lékju með landsliðinu gegn Bandarikjun- um. 1 fréttatilkynningu, sem Tímanum barst, segir: „Nokkur þáttaskil eru nú I landsliði kvenna hjá okkur. Margar af þekktustu stúlkun- um hverfa úr liöinu, og er það mun yngra en lengi hefur verið.” Það gengur eitthvað meira en lítið á i handknattleik kvenna, þegar að þvi er gáö, að nær allar þær stúlkur, sem hafa verið burðarásar lands- liösins undanfarin ár, eru enn i fullu fjöri og leika aðalhlut- verkin i félagsliðum sinum. Stúlkur eins og Björg Guð- mundsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Ragnheiður Blöndal og Elin Kristinsdóttir úr Val, Oddný Sigsteinsdóttir og Guðrún Sigurþórsdóttir úr Ármanni, Hansina Melstedúr KR og Sylvia Ilallsteinsdóttir og Svanhvit Magnúsdóttir úr FH svo einhverjar séu nefnd- ar. Flestar af þessum stúlkum gáfu kost á sér i landsliðið, sem var látiö hætta æfingum i vetur. A þessu sést, að nær allar okkar beztu handknattleiks- konur eru ekki i landsliðinu. Hvernig er ætlazt til að menn liti á lið, sem er án þessara stúlkna, sem landslið? Það er ekki hægt. Ef það er nefiit þáttaskil, þegar búið er að leggja niður landsliö kvenna, þá eru það einhver mestu þáttaskil i sögu handknatt- leiksiþróttarinnar á Islandi — og stærsta skref afturábak, sem stigið hefur verið i iþróttamálum þjóðarinnar. Landsliðið er nú nær ein- Þegar að er gáð göngu skipað stúlkum sem ekki hafa mikla reynslu að baki með félagsliðum sinum — og sumar leika nú sinn fyrsta leik með úrvalsliði. Það er meira en vafasamur greiði við hinar ungu handknattleiks- konur okkar að kalla ung- lingalandsliðið „landslið”. Þær hafa enn ekki, sem von- legt er, öðlazt þá reynslu, sem nauðsynleg er til að leika i landsliði — þær eru hins vegar efnilegar, og mikils er að vænta af þeim, er fram liða stundir. Það er greinilegt, að lands- liðsnefnd kvenna er að reyna að fara nýjar leiðir I sambandi við kvennalandsliö og hafa hug á að yngja liðið verulega upp. Liðið, sem leikur gegn Bandarikjunum er unglinga- landslið Islands, sem tekur þátt I Norðurlandamótinu — fyrir stúlkur 22 ára og yngri. Landsliðsnefndin ætlar að nota landsleikina gegn Banda- rikjunum, til að undirbúa unglingalandsliðið fyrir þá keppni. Hvort nefndin hefur farið rétta leið til að byggja upp nýtt landslið, verður reynslan að skera úr um. Það mun væntanlega koma i ljós siðar. En þvi er ekki að neita, að þessi stefna landsliðsnefnd- arinnar er vægast sagt furðu- leg. Það hefði verið allt i lagi að byggja upp unglingalands- lið.og láta það siðan leika einn landsleikinn af þremur gegn Bandarikjunum. En að láta þær leika þá alla, er það ekki einum of mikiö? Hvers eiga þær stúlkur að gjalda, sem gáfu kost á sér i landsliðið? Það er ekki hægt að sniðganga þær — það kann ekki góðri lukku að stýra. — SOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.