Tíminn - 05.03.1976, Blaðsíða 24

Tíminn - 05.03.1976, Blaðsíða 24
METSÖUUHÆHUR Á ENSKU í VASABRDTI SÍS-IÓIHR SUNDAHÖFN G -IÐI fyrir góóan mat $ KJÖTIDNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Spánn: Manndrápin draga dilk á eftir sér Reuter, Madrid — Atökin milli lögreglu og verkfallsmanna á Spáni, §em kostuöu þrjámennlif- iö i Vitoria I fyrradag, breiddust i gær út til annarra borga i Baska- héruöunum á Noröur-Spáni. Haft er eftir sjónarvottum, aö sérsveitir lögreglunnar i Pamp- lona hafi beitt táragasi og gúmmikúlum til þess aö dreifa kröfugöngu þar. Göngumenn voru aö mótmæla aðgerðum lög- reglunnar i Vitoria. Mótmælaverkfall hefur viða skollið á, og eru verksmiðjur og verzlanir lokaðar, bifreiöum hef- ur veriö velt og götuvigi reist. Sautján búsund manna mót- mælaganga verkamanna og stú- denta varð til þess aö lögreglan dró upp kylfur til að dreifa hópn- um. 1 Madrid hefur Sósialiski verkamannaflokkurinn, sem eró- JUAN Carlos, Spánarkonungur, hefur aflýst fyrirhugaöri ferð sinni til noröurhéraðs landsins, vegna óróans meðal verkafólks og stúdenta. Talið er að hann standi nú frammi fyrir mesta vandamáli sem komið hefur upp siöan hann tók við völdum. löglegur, gefið út yfirlýsingu, þar sem segir, að á Spáni hafi ekkert breytzt frá þvi Franco hélt um stjórnvölinn, þrátt fyrir loforð stjórnvalda um umbætur. „Skothriðhefur veriö og er svar stjórnvalda við tilraunum verka- manna til að ná réttindum sinum með verkföllum og mótmæla- göngum,” segir i yfirlýsingu flokksins. Enn fremur segja talsmenn sósialista, að i átökunum i Vitoria hafi fimm manns látið lifið, en ekki þrir, eins og opinberir aðilar halda fram. Sveitir þungvopnaðra lögreglu- manna eru nú á eftirlitsferðum um götur Vitoria, og dreifa þær öllum hópum verkamanna, sem safnast saman á götuhomum, þar sem verzlanir og krár eru flestar lokaðar. Nefnd veikamanna i Vitoria hefurhvatt til allsherjarverkfalls til að mótmæla manndrápunuyi. Nefndin hefur enn fremur kraf- izt þess, að umdæmisstjórinn, lögreglustjórar og borgarstjórinn segi af sér, og að þeir lögreglu- menn, sem hleyptu af byssum sinum á mótmælagönguna, verði dregnir fyrir rétt. Sjúkrahús hafa þegar haft til meðferðar yfir eitt hundrað manns, sem hlotið hafa sár og meiðsli i átökum þessum. Vitað er að einn hinna látnu, sautján ára gamall námsmaður, hafði verið skotinn i höfuðið, og að þvi er sjónarvottar segja, beitir lög- reglan enn byssum gegn mótmæl- endum. Dagblaðið Norte Express i Vitoria sagði i gær, að flestir þeirra fjörutiu og fimm, sem enn eru i sjúkrahúsi, hafi fengið skot i kvið, handleggi og fótleggi. Fjórir hinna særöu voru i gær taldir i lifshættu, og átta aðrir al- varlega særðir. Meira en fimmtiu manns hlutu einhver skotsár. Meðal annars beitti lögreglan skotvopnum gegn þátttakendum á verkfallsfundi i kirkju einni, og lézt þar einn maður. Kissinger varar Kúbu við nánari afskiptum í Afríku Reuter/Washington. Henry Kiss- inger, utanrikisráðherra Banda- rikjanna, varaði Kúbu i gær við frekari afskiptum af málefnum Afriku og bað Kúbumenn að fara með „fyllstu gát, vegna spenn- unnar á landamærum Ródesiu og Mósambik. Kissinger sagði á fundi með þeirri nefnd fulltrúadeildar bandariska þingsins, sem fjallar um alþjóðatengsl, að afskipti kúbanskra hermanna af ástand- inu i Ródesiu myndu skapa „al- varleg vandamál”. Talið er, að I Angóla séu um 11.000 kúbanskir hermenn, sem berjast við hlið MPLA, og aðrar Afrikuþjóðir hafa látið I ljós ótta sinn um að þeir verði notaðir ann- ars staðar i Afriku, eftir að hafa tryggt sigur MPLA I Angóla. — Við getum ekki samþykkt, að þeir hafi rétt til að hafa af- skipti af vandamálum hvar sem er í heiminum með vopnavaldi, sagði Kissinger. Kissinger minntist siðan á getuleysi stjórnar Fords til að stöðva afskipti Kúbumanna I Angóla, og bætti við: — Það er ekki*hægt að áætla aðgerðir okkar (i þVi tilviki að Kúbumenn hafi afskipti af Ródesiumálinu) út frá þvi sem við gerðum i Angóla. Kissinger lagði við þetta tæki- færi áherzlu á að Bandarlkin styddu eindregið umskipti I Ródesiu, sem hefðu I för með sér að meirihlutastj. blökkumanna tæki við af hvitri minnihluta- stjórn, og varaði hann rikis- stjórnina i Salisbury við að við- ræður þær, sem nú standa yfir, gætu vel verið „siðasti möguleik- inn á friðsamlegum umskiptum”. Einnig er talið hugsanlegt, að kúbönsku hermennirnir gætu reynt að „frelsa” Namibiu, eink- um þar sem Neto Angólaforseti hefur lýst þvi yfir, að hermenn hans muni reyna það. Kissinger færðist undan þvi, á fundinum með þingmönnunum, að skýra nánar frá þvi, hverjar ráðstafanir Bandarikin myndu gera, ef Kúbumennirnir hefðu nánari afskipti af málefnum Af- rikurikja. AUKAKOSNINGAR í COVENTRY — sem gætu rænt stjórnina meirihluta sínum um 7,3%, og ef tiundi hluti kjós- ar yfir, missirhann þar með sætið enda Verkamannaflokksins söðl- og meirihlutann. Reagan skammar Ford Reuter/Coventry. Aukakosningar fóru fram i brezku borginni Coventry, um eitt af þingsætum Verkamannaflokksins. Kosning- ar þessar fara fram vegna dauða Maurice Edelman, sem hefur um árabil haldið sæti þessu af öryggi fyrir Verkamannaflokkinn, en nú er talið, að baráttan um sætið verði hörð og litlu muni, hvort rikisstjórnin heldur þvi. Missi Verkamannaflokkurinn sæti þetta, hefur hann þar með misst meirihluta sinn á þingi, og þótthann geti haldið áfram stjórn sinni með aðstoð minni flokka, getur það orðið honum ákaflega erfitt. Frá þvi i siðustu kosningum hefur Coventry, serh er iðnaðar- borg, orðið fyrir barðinu á verð- bólgu og samdrætti. Atvinnuleysi er þar fyrir ofan meðallag, eða Reuter—Orlando, Florida — Ronald Reagan forsetaefni repúblikana gerði harða hrið að Ford forseta og dr. Henry Kissinger utanrikisráðherra i gær, og ásakaði þá um, að leiða Bandarikin i „gröf frið- arins” eins og hann orðaði það. Reagan sparaði ekki stór- yrðin i skömmum sinum á Ford forseta, sem er aðal- keppinautur hans um útnefn- ingu repúblikana fyrir for- setakosningarnar, — og sagði að hann hefði þungar áhyggj- ur af þeirri stefnu bandariskra stjórnvalda að draga úr spennunni milli Bandarikj- anna og Sovétrikjanna. — Undir leiðsögn Kissingers og Fords hafa Bandarikin orð- ið að lúta i lægra haldi fyrir Sovétrikjunum sem hemaðar- veldi, og það er stórhættulegt, sagði Reagan. fíllf^SHORNfl ' l 'flMILLI ' - '4?" Vill leysa oliufélögin upp Reuter, Washington. öldunga- deildarþingmaðurinn Frank Church gaf þá yfirlýsingu á miðvikudag, að hann teldi, að leysa ætti upp öll stærstu alþjóð- legu oliufélögin. Sakaöi hann þau um að vera i samsæri með samtökum oliuflutningsrlkja (OPEC) um að halda verði á olium og benslni háu. öldungadeildarþingmaður- inn, sem er demókrati, sagði að félögin ynnu I nánu samstarfi við OPEC, þar sem hærra verð gæfi þeim aukinn ágóða. Stóru oliufélögin ráða að fullu yfir allri oliuleit, oliufram- leiðslu og dreifingu, og hafa samvinnu um að nýta oliusvæöi. Dómsmálanefnd fulltrúadeildar bandariska þingsins hefur nú i athugun setningu laga, sem væntanlega myndu takmarka mjög, og jafnvel banna banda- riskum fyrirtækjum þátttöku i þeirri starfsemi. Church sagði, að þótt OPEC ákvæði verði á hráoliu, réðu oliufélögin öllu um vinnsluna. Sagði hann, að upplausn stóru oliufélaganna myndi skapa aukna samkeppni meðal selj- enda hráoliu, og þannig lækka verð á bensini og öðrum afurð- um. Tilraunir CIA með lyf aftur i sviðsljósinu Reuter, Washington. Að minnsta kosti tveir menn hafa látið lifið vegna of stórra skammta af lyfjum, sem þeir voru látnir taka inn i tilrauna- skyni á vegum CIA, eftir þvi sem greinahöfundarnir Jack Anderson og Les Whitten sögðu I gær. Þeir hafa það eftir mönnum innan CIA, að hinn siðari af mönnunum tveim hafi látizt utan Bandarikjanna, og hafi lyfjagjöfin verið þáttur i áætlun um prófun lyfja, en áætlunin er framkvæmd af CIA og greidd af þeirri stofnun. Hinn fyrri af mönnunum lézt árið 1953, skömmu eftir að hon- um hafði verið gefinn inn stór skammtur af LSD, að undirlagi CIA. — Hann hét Frank Ohlson, og þegar kringumstæður dauða hans voru gerðar opinberar, á siðast liðnu ári, bað Ford for- seti fjölskyldu hans opinberlega afsökunar. Greinarhöfundar segja, að eftir dauða Ohlsons hafi nokkrir af læknisfræðilegum ráðgjöfum CIA viljað hætta tilraunum með iyfjagjafir, en yfirnefnd stofn- unarinnar hafi þá fyrirskipað áframhald þeirra, á þeim for- sendum að dauði manna væri aðeins einn af áhættuþáttum slikra tilrauna. CIA hafði ekkert um mál þetta að segja i gær. Irska lýðveldið ekki lengur hæli fyrir flótta- menn I.R.A. Reuter, Dublin.Þing Irska lýð- veldisins hefur samþykkt mjög umdeilda reglugerð gegn skæruliðum, sem koma á i veg fyrir að afbrotamenn geti flúið frá Norður-trlandi og fundið sér hæli i Irska lýðveldinu. Þingið samþykkti reglugerðina með aðeins fjögurra atkvæða meiri- hluta, 65 gegn 61, eftir allt að árslangar deilur. Reglugerð þessi kveður svo á að fólk, sem talið er hafa framið skæruhernaðarleg afbrot á Norður-trlandi, skuli dregið fyrir rétt i Irska lýðveldinu, ef það pæst þar. Þannig bætir reglugerðin þá löggjöf, sem gert hefur eftirlýstum hermdar- verkamönnum I.R.A. kleift að leita hælis i Irska lýðveldinu, án þess að þeir ættu á hættu að verða framseldir. Irski dómsmálaráðherrann, Patrick Cooney, sagði i ræðu á þinginu, að reglugerð þessari yrði framfylgt — án ótta við hótanir neðanjarðarhreyfinga. Hann sagði enn fremur, að reglugerðin myndi sýna fólki, að rikisstjórnin væri ekki reiðu- búin til að láta nota lýðveldið sem griðastað fyrir hermdar- verkamenn. Hún væri og trygg- þeirrar stefnu stjórnarinnar að binda enda á öll hermdarverk og eyða Irska lýðveldishernum (I:R:A:) Meiri mútur Reuter, Ohio. Bandariska dekkja- og gimmlframleiðslu- fyrirtækið Goodyear hefur nú bætzt i sívaxandi hóp þeirra bandarisku fyrirtækja, sem viðurkennt hafa mútugreiðslur til erlendra aðila. Goodyear hefur tilkynnt, að það hafi siðast liðin fimm ár greitt um 845 þúsund dollara i mútur til að „hressa upp á” sölustarfsemi sina utan Banda- rikjanna, þar af um 120 þúsund dollara beint til erlendra embættismanna. Fyrirtækið neitar að gefa upp nöfn mútuþeganna og ber það fyrir sig, að slikt gæti sett starfsmenn þess erlendis i óþarfa hættu. Goodyear hefur á launaskrá sinni umboðsmenn i fimmtiu löndum utan Bandarikjanna. Ný verkfallalöggjöf i Portúgal Rcutcr, Lissabon. Vinnumála- ráðuneyti Portúgals hefur birt drög að nýjum lögum um verk- föll og vinnustöðvanir, sem fela i sér mjög aukið frjálsræði. Talið er, að með drögum þessum ætli stjórnvöld að lægja ófriðaröldur innan iðnaðarins fyrir væntanlegar kosningar i næsta mánuði. Samkvæmt drögum þessum ’ yrðu verkföll af stjórnmálalegu og trúarlegu bergi brotin leyfi- leg, og verkamenn myndu ekki þurfa að tilkynna vinnustöðvan- ir fyrirfram. Margar þær reglur og höft, sem gilt hafa um verkföll og vinnustöðvanir i Portúgal, eru aðeins til á pappirunum, þar sem verkamenn hafa undan- farið haft þær að engu. Drög þau, sem stjórnvöld hafa nú birt, myndu færa bókstafinn til sam æmis við það, sem nú tíðk- ast i framkvæmd. A miðvikudag var það haft eftir talsmanni portúgölsku stjórnarinnar, að kosningarnar, sem áætlað er að fari fram 25. april næst komandi, gætu dregizt um fáeinar vikur, þar sem hægt gengi við gerð stjórn- arskrár. I tilkynningu stjórnarinnar um drög að nýrri löggjöf sagði meðal annars, að i þeim væri viðurkennd sú megin forsenda, að verkamenn ættu sjálfir að ákveða, hvaða réttindi skyldu varin með verkfallsvopninu. Drögin hafa verið send verka- lýðssamböndum og félögum til umsagnar, og birting þeirra nú kemur sem beint svar við þeim ásökunum nokkurra verkalýðs- leiðtoga, að stjórnin sinni ekki hagsmunum verkalýðsins sem skyldi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.