Fréttablaðið - 14.11.2005, Side 62

Fréttablaðið - 14.11.2005, Side 62
DRAUMAHÚSIÐ MITT REGÍNA ÓSK ÓSKARSDÓTTIR Út af fyrir sig í bænum miðjumNýjasti skólinn á landinuer Akurskóli í Ytri-Njarð- vík í Reykjanesbæ. Fyrsti áfangi hans var vígður 9. þessa mánaðar en vinna við bygginguna hófst í maí 2004. Arkitekt húss- ins er Bjarni Marteins- son á Arkitektastofu Suðurnesja. Fullbyggður verður Akurskóli um 7.500 fermetrar en fyrsti áfanginn er 3.487 fer- metrar. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og tekur skipulagning kennslurýma mið af því. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er þar með þrjár kennslustofur svo nemendur geta stundað sitt tónlistarnám í grunnskólan- um og Frístundaskólinn nýtir kennslurými skólans síðdegis. Byrjað er á hönnun íþróttahúss og sundlaugar við skólann. Skólastjóri Akurskóla er Jónína Ágústsdóttir. AKURSKÓLI Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona vildi gjarna búa í Nasa við Austur- völl, að minnsta kosti stundum. „En annars er draumahúsið mitt ein- býlishús á einni hæð með bílskúr og stúdíó í þægilegu úthverfi. Húsið sjálft væri kannski ekkert óþarflega stórt en garðurinn þyrfti að vera stór svo maður væri ekki alveg ofan í næsta manni. Og svo er nauð- synlegt að hafa pall og heitan pott. Pallurinn þyrfti að vera nokkuð stór og hægt að tjalda yfir hann svo hann nýttist í öllum veðrum. Þar væri líka stórt borð svo margir gætu setið saman og borðað og haft það gaman fram eftir kvöldi. Svo þyrfti að vera pláss til að taka í hljóð- færi og jafnvel dansa. Og í stúdíóinu gæti ég haldið áfram að taka upp tónlist og gæti bara gert hvað sem er hvenær sem er.“ Regína er líka mikið borgarbarn. „Ég gæti líka hugsað mér að búa al- veg í miðjum bænum, í gömlu húsi eins og landsímahúsinu við Aust- urvöll þar sem nú er skemmtistaðurinn Nasa.“ Og þar syngur Regína einmitt næstkomandi sunnudagskvöld á tónleikum í tilefni af útgáfu nýju plötunnar sinnar og getur þá ímyndað sér að hún sé bara inni stofu. Rúm flri›j- ungshækkun Fasteignaverð á höfuðborgar- svæðinu hækkaði að meðaltali um 36,75% frá þriðja ársfjórð- ungi í fyrra til sama tíma í ár. Mest hækkaði fasteignaverð í Vesturbæ Kópavogs frá þriðja ársfjórðungi 2004 til þriðja árs- fjórðungs 2005, um 48,8%, sam- kvæmt tölum Fasteignamats rík- isins sem hefur sundurliðað fast- eignaverðið eftir hverfum og tímabilum frá ársbyrjun 2004. Minnst hækkun varð í Hlíðum og Leitum í Reykjavík, 29,7%. Ef Reykjavík er skoðuð sérstaklega kemur Laugarneshverfið sterkast út, þar hefur íbúðaverð hækkað um 40,7% frá þriðja ársfjórðungi 2004 til dagsins í dag. Á vef Fast- eignamatsins er tekið fram að eiginleikar sem hafa áhrif á fer- metraverð, svo sem stærð og ald- ur geta verið mismunandi frá einu tímabili til annars. Jólaflorp í Hafnarfir›i Nýuppgert Thorsplan verður vettvangur Jólaþorpsins. Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar innan tíðar í þriðja sinn. Það tókst einstaklega vel í fyrra og mikil ánægja var með það hjá stórum sem smáum. Jólaþorpið mun opna á nýuppgerðu Thorsplaninu í Hafnarfirði 26. nóvember. Við hönnun Thorsplansins var upp- setning Jólaþorpsins höfð að leið- arljósi. Þorpið verður með svip- uðu sniði og í fyrra, fagurlega skreytt tuttugu lítil hús þar sem boðið verður upp á margt sem tengist jólunum á einn eða annan hátt. Það verður opið allar helgar á aðventunni og á Þorláksmessu. Jólaþorpið er miðpunktur þess sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða á aðventunni og örugg- lega margir sem hlakka til að skoða það. Stúdíó væri alger nauðsyn í draumahúsi Regínu Óskar. SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU* *Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins. 300 250 200 150 100 50 0 FJÖLDI 23/9- 29/9 199 30/9- 6/10 181 7/10- 13/10 210 14/10- 20/10 158 21/10- 27/10 194 28/10- 3/11 168 Akurskóli er hannaður út frá þörfum nútímabarna. 48 Bak efni lesið 13.11.2005 15:53 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.