Tíminn - 12.03.1976, Page 1
Aætlunarstaöir:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudaiur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur—Rif Súgandafj:
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Ólafur Jóhannesson, viðskiptaróðherra:
Höfum ekki róð á ótak-
mörkuðum innflutningi
— vegna þess að við höfum
ekki gjaldeyri
Haraldur Kröyer
ræðir við Sisco
um gæzluskipið
Gsal-Reykjavik — Einn mesti
efnahagsvandinn, sem þjóðin á
nú við að glima er varðandi gjald-
eyrismálin, og þvier nauðsynlegt
að takmarka gjaldeyriseyðsluna.
Við höfum ekki ráð á ótakmörk-
uðum innflutningi — vegna þess
að við höfum ekki erlendan gjald-
eyri, sagði ólafur Jóhannesson,
viðskiptaráðherra á aðalfundi
Kaupmannasamtakanna i gær,
og var þetta hluti svars við fyrir-
spurn frá einum kaupmannanna,
sem gagnrýndi þá ráðstöfun að
setja hömlurá iimflutning á kexi.
Kaupmaðurinn kvað innlendar
kexverksmiðjur ekki anna eftir-
spurn eftir kexi, og nefndi dæmi
þvi til sönnunar. Ólafur
Jóhannesson sagði, að kexinn-
flutningur á s.l. ári hefði numið
3-400 millj. kr. og þvi mætti
kannski segja, að sú fjárhæð
skipti ekki sköpum, — En það
safnastþóer saman kemur, sagði
ráðherra, og frá minu sjónarmiði
ber helzt að takmarka innflutning
á vörum, sem við getum verið án,
og þar sem innlend framleiðsla
getur komið i staðinn.
— Þó að við vildum búa við
sem mest frjálsræði,— og höfum
raunar gert — þá getur það orðið
óhjákvæmilegt að hverfa a.m.k.
um stundarsakir frá þvi frjáls-
ræði. Þó hefur engin ákvörðun i
þá átt verið tekin enn sem komið
er. Við verðum að lifa frá degi til
dags i þessum efnum sem öðrum
sagði viðskiptaráðherra.
Kaupmenn inntu Ólaf
Jóhannesson eftir þvi, hvað við
tæki er verðstöðvun lyki þann 20.
þ.m. Ólafur kvað rikisstjórnina
ekki hafa tekið neina ákvörðun
um það mál, og þvi myndi sú al-
menna verðskráning, sem i gildi
var fyrir verðstöðvun aftur taka
gildi.
Ólafur sagði, að hann vildi
gjarnan, að það gæti farið saman,
að hin nýja verðlagslöggjöf, sem
nú er unnið að og er langt á veg
komin, gæri tekið við er verð-
stöðvun samkvæmt núgildandi
Framhald á bls. 23
Veiðisamningur við Færeyinga:
Samningamenn með
dönsku gæzluskipi
til Austfjarða
J.H.-Reykjavik. Þrir sendimenn
landstjórnarinnar færeysku áttu
að koma hingað I gær til þess að
ljúka samningum við islenzku
rikisstjórnina um heimild til
handa færeyskum fiskiinönnum
að veiða innan fiskveiðilögsögu
islendinga. Flugvél frá Flugstöð-
inni, sem átti að sækja þá, bilaði
og sneri við, og voru Færeying-
arnir á leið til Austfjarðahafnar i
gærkvöldi á dönsku strandgæzlu-
skipi. Mun flugvél sækja þá
austur i dag — annað tveggja til
Ilornafjarðar, ef skipið kemur
þangað, eða Egilsstaða.ef það fer
inn á Seyðisfjörð.
Sendimenn þessir eru Atli Dam
lögmaður, Peter Reinert
sjávarútvegsráðherra og Kalls-
berg, sem oft hefur verið hér i
svipuðum erindagerðum.
Pétur Thorsteinsson ráðu-
neytisstjóri sagði Timanum i gær,
að færeysku landstjórninni hefði
verið sent uppkast að samningi,
og verður fjallað um það i dag.
Færeyingar hafa haft heimild til
þess að gera út nokkra togara á
Islandsmið og stunda handfæra-
veiðar Uti fyrir Norðurlandi á
sumrin. Munu svipuð ákvæði
verða i hinum nýja samningi. og
þeim, sem gilt hefur, en þó dregið
úr þeim afla, sem Færeyingum
verður heimill.
Hinn nýi samningur verður að
likindum undirritaður i dag.
60 ár
w
ASI
60 ár
opnu
OÓ-Rvik — Nokkur timi mun
liða þar til endanlegt svar berst
frá bandarískum stjórnvöldum
um þá málaleitan islenzku rikis-
stjórnarinnar um að fá keypt
hraðskreitt skip þar i landi til að
verja islenzku fiskveiöilögsög-
una. Máliö er nú i höndum
utanrikisráðuneytisins, og mun
Haraldur Kröyer, ambassador i
Washington, fylgja málinu eftir.
Timinn hafði samband við
Harald i gær.og sagði hann, að
málið væri enn skammt á veg
komið.
Sagði ambassadorinn, að bréf
viðvikjandi skipakaupunum væri
nýkomið i hendur sendiráðsins,
og búiö væri að biðja um viðtöl við
viðkomandi aðila i Washington og
gera þeim viðvart um erindið, en
ekkert er vitað um undirtektir
ennþá.
Haraldur sagði að hann mundi
tala við yfirmann Evrópudeildar
utanrikisráðuneytisins siðar um
daginn, — það er i gær, eftir að
Timinn hafði samband við hann.
En beðið væri eftir fundi með
háttsettum embættismanni, og
taldi Haraldur Kröyer, að Sisco
varautanrikisráðherra mundi
ræða málið af hálfu bandarisku
stjórnarinnar. Verður málið þá
lagt formlega fvrir hann eftir að
islenzki ambassadorinn hefur rætt
við aðra aðila i utanrikisráðu-
neytinu. En það verður ekki fyrr
en eftir nokkra daga, að þeir
Haraldur og Sisco talast við.
Sagði Haraldur, að ráðherrarnir
væru mjög uppteknir af funda-
höldum á hverjum degi, og ekki
hlaupið að þvi að ná tali af þeim.
Svo að ekki er enn vitað hvenær
sá fundur getur átt sér stað, en að
öllum likindum verður það ekki
fyrr en eftir nokkra daga, og enn
má búast við að nokkrir dagar liði
frá þeim fundi þar til vitað verður
hverjar undirtekir um málaleit-
unina verða.
Ekki kvaðst ambassadorinn
geta sagt frá þvi, hvaða skip eða
tæki Islendingar vildu fá frá
Bandarikjunum. Það hefur verið i
athugun hjá utanrikisráðuneytinu
i Reykjavik, hvað eigi að biðja
um og með hvaða kjörum, og er
málið ekki komið það langt
ennþá, að hægt sé að segja um
hvaða búnað Bandarikjamenn
verða beðnir að selja Landhelgis-
gæzlunni.
Ólafur
, dómsmálaráðherra:
OPIÐ BREF
til Þorsteins Pálssonar, ritstjóra
SJA
BLAÐSÍÐU
—— ©