Tíminn - 12.03.1976, Blaðsíða 4

Tíminn - 12.03.1976, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Föstudagur 12. marz 1976 Þref um kaup Julie Andrews hefur ekki leikið i kvikmynd, sem nokkuð hefur kveðið að, siðan hún lék i „The Sound of Music”. Og sjónvarps- þættirnir hennar kolféllu. Það kvisaðist að „Keisarahöllin” i Las Vegas hefði gert samning við hana og ætti hún að fá 250.000 dollara i laun á viku. Nú hefur þetta verið leiðrétt. „Keisarahöllin” stendur að visu i samningum við leikkonuna um að koma fram næsta ágúst- mánuð, en um kaupið hefur ekki verið samið ennþá. Areiðanlega verður það eitthvað lægra en 250.000 dollarar. Hér er mynd af Julie Andrews. Skrautlegur bíll Bandariski myndhöggvarinn Calderer búsettur i Frakklandi. Nýlega var haldin yfirlitssýning á verkum hans jzfir sl. 50 ár, i Listahúsinu I Miinchen. Lista- maðurinn teiknaði, án þess aö taka gjald fyrir, litaskala fyrir 430 hestafla BMW, sem ekiö var af vinum hans Hervé Poulain Ct.v. á myndinni) ogSam Posey. Nútimalistasafnið i New York er sagt hafa áhuga á Calder- vagninum, sem málaður er i uppáhaldslitum listamannsins: Rautt, hvitt, gult og blátt. Ann- ars er hann vist það athyglis- verðasta á BMW-safninu i Miinchen I V-Þýzkalandi. Gríman fallin Hér gefur að lita Brigitte Bardot — ómálaða og alvarlega. Væg- ast sagt fremur óvenjuleg sjón. Nú er svo komið, að hún nennir ekki lengur að fela sitt rétta andlit, og brosið hennar fræga, sem ljósmyndarar áttu vist, ef þeir létu sjá sig nálægt henni með myndavélarnar sinar, skil- ur hú æ oftar eftir heima. Loks- ins hefur hún, að sögn, sætt sig við þá staðreynd, að hún er komin á fimmtugsaldurinn, þótt varla sé hægt að halda þvi fram, að hún gleðjist yfir hverri hrukku, eins og sumar konur á hennar aldri gera (að eigin sögn). „Enginn getur haldið sér ungum til eilifðar,” hefur veriö haft eftir kynbombunni, og við tökum svosannarlega undir þau orð. Mti *» i" > i if * Í ÍIÉÉ DENNI DÆAAALAUSI „Hvar áttir þú heima áður en ég fæddist Wilson?" „i óverðskuld- aðri paradis.”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.