Tíminn - 12.03.1976, Blaðsíða 15
Föstudagur 12. marz 1976
TÍMINN
15
ImkHNHJII
örtröð og ös.
Nýlega ías ég i dagblaði, að
mikil örtröð hefði verið á skatt-
stofu Reykjavikur hér á dögun-
um. En hvað merkir nafnorðið
„örtröð”? Frá þvi ég var barn,
og það er nú langt siðan, hef ég
einatt staðið i þeirri meiningu,
að þetta orð væri einkum notað
um landsvæði, sem ofmiklum
fjölda grasbita væri beitt á.
Þetta vissu forfeður okkar, þvi
aö þeir notuðu það sem nefnt
var „ítala”, þ.e. fénaður var
talinn i landið, þar sem þess var
talið þörf, svo að ekki yrði „ör-
tröð”.
Aður fyrr (og ég býst við að
svo sé viða ennþá) var sagt, t.d.
ef menn fóru i verzlunarerind-
um tíl kaupstaðarins og gekk
seint að fá sig afgreidda, að það
hefði veriðsvo mikil ,,ös”ibúð-
inni. Það skildu allir. En hefði
nú verið sagt, að það hefði verið
svo mikil örtröð, býstég við, að
flestir hefðu skilið það svo, að
þar hefðu verið frekar litlar
vörubirgðir, jafnvel engar. Nú
er ég enginn lærdómsmaður, og
þvi siður málfræðingur, en ég
held, að þessir ungu blaðamenn
ættu að gefa sér tima til að lita i
islenzka orðabók, ef þeir eru
ekki alveg vissir um orð og hug-
tök, sem koma fyrir i skrifum
þeirra. Ég held. að það sé
áreiðanlegt, að á skattstofunni
hafi verið „ös”, en ekki örtröð.
Guðmundur Einarsson
Auglýsið í Tímanum
í HÚSI IÐNAÐARINS VIÐ
INGÓLFSSTRÆTI
Óskum
Alþýðusambandi
Islands
allra heilla á
60 ára afmælinu
Kaupfélag Borgfirðinga
Kaupfélag Héraðsbúa
H.f. Eimskipafélag íslands