Tíminn - 12.03.1976, Síða 19

Tíminn - 12.03.1976, Síða 19
Föstudagur 12. marz 1976 TiMINN 19 Landsleikur í Firðinum Kvennalandsliðið mætir Olympíuliði Bandaríkjanna í kvöld ANNAR landsleikur islenzka kvenna1ands 1 iðsins gegn Olympiuliði Bandarfkjanna verð- ur leikinn i Hafnarfirði i kvöld kl. 20.30. 5 breytingar voru gerðar á islenzka landsliðinu frá lands- leiknum sl. sunnudag, en þá gerðu liðin jafntefli (11:11) á Keflavikurflugvelli. Islenzku stúlkurnar eru sigur- stranglegri, þrátt fyrir það, að þær hafa ekkert æft saman fyrir þennan landsleik. Stúlkurnar eru aðeins boðaðar til að mæta i Hafnarfiröi timanlega fyrir leik- inn. Landsliðið sem leikur i kvöld, verður skipað þessum stúlkum: Magnea Magnúsd., Ármanni Gyða úlfarsdóttir, FH Erla Sverrisdóttir, Ármanni Oddný Sigursteinsdóttir, Fram Jóhanna Haildórsdóttir, Fram Guðrún Sigurþórsd. Armanni Hjördis Sigurjónsd., KR Hansina Melsted, KR Harpa Guðmundsdóttir, Val Hrefna Bjarnadóttir, Val Jóna M. Brandsdóttir, FH Kristin Jónsdóttir, Breiöablik Þriðji landsleikurinn verður leik- inn á Akranesi á morgun. Islandsmeistaramótið i lyfting- um, tvi'þraut, verður haldið i Laugardalshöll laugardag og sunnudag, 13. og 14. marz. Hefst það kl. 14. Keppt verður i léttari þy ngdarflokkunum fyrri daginn, og frá milli vigt og upp úr siðari daginn. Á leiðinni í netið Þessa skemmtilegu mynd tók Gunnar Ijósmyndari Tímans í leik Fram og Vals. Helga Magnúsdóttir úr Fram hefur þarna fundið smugu í Valsvörninni og sendir knöttinn í netið — fram hjá þeim Björgu Guðmundsdóttur (10) og Halldóru Magnúsdóttur (11). Olympíuknattspyrnan orðin skrípaleikur og óformleg keppni á milli A-Evrópuþjóðanna AAiklar líkur eru ó því, að hún verði lögð niður Þessi mynd var tekin úr Olympiuleik tslendinga og Rússa á Laugardalsvellinum s.I. sumar. Rússar gera sér miklar vonir um, að vinna gulliö i Montreal i sumar. „Trukk- urinn" stiga- hæstur CURTIS „Trukkurinn” Carter skoraði 33 stig, þegar KR-ingar sigruðu Framara 104:74 i 1. deildarkeppninni i körfuknatt- leik. Þessi stóri biökkumaður er nú langstigahæstur i 1. deildar- keppninni — hann hefur skorað 349 stig. Félagi hans Jimmy Rog- ers úr Ármanni hefur skorað 286 stig og er hann næst-stigahæstur. Snæfellingurinn Kristján Agústs- son hefur skorað flest stigin af is- lenzku leikmönnunum — 251. Hörður skoraði 13 mörk HÖRÐUR Sigmarsson, vinstri- handarskyttan úr Haukum, skor- aði 13 mörk, þegar Haukar unnu sigur (34:32) yfir Þrótti i bikar- keppninni i handknattleik. Leik- urinn var mjög jafn og þurfti að framlengja hann þar sem jafnt var eftir venjulegan leiktima — 29:29. Friðrik Friðriksson, sem skor- aði 12 mörk fyrir Þrótt, jafnaði 29:29 fyrir Þrótt úr vitakasti og þurfti þá að framlengja leikinn. Haukarnir voru sterkari i fram- lengingunni og sigruðu örugg- lega. ALLT bendir nú til, að knattspyrna verði leikin í siðasta sinn á Olympíuleik- um í Montreal í sumar. Að undanförnu hefur nefnd starfað, sem hefur verið að endurskoða og hugleiða keppni í knattspyrnu á Olympíuleikum. Eins og menn vita eru Olympíu- leikarnir — að sjálfsögðu — aðeins fyrir áhugamenn i iþróttum. Það hefur komið greinilega fram að undanförnu, að keppnin er orðinn skrípaleikur og ein- göngu keppni á milli A- Evrópuþjóðanna, sem tefla fram sínum beztu knattspyrnumönnum, sem eru dulbúnir atvinnumenn. Leikmenn A-Evrópuþjóðanna eru ekki sagðir atvinnumenn. Beztu leikmenn þessara þjóða, sem leika með landsliðum þeirra i heimsmeistarakeppninni, eru þvi einnig í ólympiuliöum A- Evrópurikjanna. Leikmenn kommúnistarikjanna taka ekki við beinni greiðslu fyrir knatt- spyrnu, eins og leikmenn „Vestursins”. Þeir eru skráðir starfsmenn ýmissa stofnana og fyrirtækja og fá greidd laun frá þeim — fyrir vinnu, sem þeir ekki stunda. Þannig eru þeir’dulbúnir atvinnuknattspyrnumenn — það vita allir. Olympiukeppnin i knattspyrnu er nú talinn, óformleg landsliðs- keppni A-Evrópuþjóðanna. Það eru nú liðin 30 ár siðan vestræn þjóð varð Olympiumeistari i knattspyrnu, eða siðan Sviar sigruðu Júgóslava 3:1 i úrslitaleik i London 1948. Siðan þá hafa A- Evrópuþjóðir einokað knatt- spyrnukeppni á Olympiuleikjum, og hafa sigrarnir skipzt þannig: — 1952: Ungverjaland, 1956: Rússland, 1960: Júgóslavia, 1964: Ungverjaland, 1968: Ungverja- land og 1972: Pólland, Pólska liðið, sem sigraði þá, var skipað sömu leikmönnunum og tryggðu sér bronsverðlaunin i HM-keppn- inni i V-Þýzkalandi 1974. Þess má geta, að öll þessi ár hafa A- Evrópuþjóðir leikið til úrslita á Olympiuleikunum, að undan- skildum úrslitaleiknum i Róm 1960, þá komust Danir mjög óvænt i úrslit. A þessu sést, að „áhugamenn- irnir” frá kommúnistarikjunum hafa tró'llriðið knattspyrnunni á Olympiuleikunum sl. 30 ár.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.