Tíminn - 12.03.1976, Blaðsíða 11

Tíminn - 12.03.1976, Blaðsíða 11
Föstudagur 12. marz 1976 TÍMINN 11 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfuiltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Rit- stjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aöalstræti 7, simi 26500 — af- greiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I lausa- sölu kr. 40.00. Áskriftargjald kr. 800.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Vopnin þrjú 1 dag eru liðin sextiu ár frá stofnun Alþýðusam- bands Islands. Einn aðalhvatamaður að stofnun þess var jafnframt aðalstofnandi Timans, Jónas Jónsson frá Hriflu. Hann var þá að leggja grund- völl að þeirri flokkaskipan, sem siðan hefur mótað islenzk stjórnmál. Þótt Jónas hafði þá þegar valið sér stað i öðrum flokki en verkamannaflokki, taldi hann mikla nauðsyn á verkamannaflokki og verkamannasamtökum. Hann samdi fyrstu lög Alþýðusambands Islands, og lagði þannig grund- völl að starfi þess og stefnumótun. Aðalsamstarfs- maður hans við það verk var Ólafur Friðriksson, höfuðbrautryðjandi jafnaðarstefnunnar á Islandi. Samstarf þeirra Jónasar og Ólafs leiddi til þess, að jafnaðarstefnan á íslandi var frá upphafi mjög mótuð af islenzkum aðstæðum, og ekki nema að takmörkuðu leyti byggð á erlendum kennisetn- ingum. Um þetta vitnar bezt forsiðugrein i fyrsta tölublaði Dagsbrúnar, blaðs jafnaðarmanna, sem hóf göngu sina 10. júni 1915. Þar vekur sérstaka athygli, hve mikil áherzla er lögð á hlutverk sam- vinnufélaganna. Meginstefnan er sögð sú að út- rýma fátæktinni, og ,,það eru þrjú vopn sem við einkum ætlum að vega með, til þess að útrýma fá- tæktinni, þ.e. með samvinnufélagsskap, verka- lýðsfélögum og með þvi að hafa áhrif á löggjöf og stjórn landsins, þar með talin áhrif á sýslu- og sveitastjórnir.” Þessi þrjú vopn eru siðan skil- greind nánar, og er samvinnufélagsskapurinn nefndur fyrst. Þar segir m.a. á þessa leið: ,,Við viljum af fremsta megni styðja kaupfélög og önnur samvinnufélög, og þarf til þess fyrst og fremst að auka þekkingu almennings á þeim mál- um. Við álitum að það eigi að vera kaupfélög um allt land, sem myndi innbyrðis samband, er hafi á hendi heildsölu (og verksmiðjuframleiðslu, þegar þvi verður við komið) og væntum við að þá fyrst, þegar þetta er komið á batni verulega hið afar mikla ólag, sem nú er á verzluninni hér á landi.” I greininni er lögð áherzla á að mikilvægustu at- vinnufyrirtækin verði opinber eign, en ,,svo nefn- um við eigi aðeins eignir landsjóðs, sýslueignir og eignir sveitafélaganna, heldur einnig eignir sam- vinnufélaga.” Réttara er þó talið, að fyrirtæki, sem hafa einokunaraðstöðu (t.d. vatnsveitur og rafveitur), séu eign rikisins eða sveitarfélaga, heldur en samvinnufélaga. Um landbúnaðinn er svo þetta tekið fram: „Til þess að valda ekki mis- skilningi, skal þess getið hér, að við ætlumst til þess að landbúnaðinn (sem um langan aldur hlýt- ur að vera aðalatvinnuvegur íslendinga) stundi sjálfstæð bændastétt, er hafi með sér öflugan sam- vinnufélagsskap til vörukaupa, afurðaútflutnings og vélanotkunar.” Þá er gerð sérstök grein fyrir hlutverki verka- lýðsfélaga, sem eigi að beinast að þvi að tryggja fullvirði fyrir vinnuna. En þótt miklu megi koma fram með þessum tveimur vopnum, samvinnufé- lagsskapnum og verkalýðsfélögunum, sé þriðja vopnið eigi að siður mikilvægt, en þar er átt við áhrifin á löggjöf og landstjórn. Siðustu sextiu árin hefur verið sótt fram á þessum grundvelli. Alþýðusambandið var stofnað tæpu ári siðar og heildsala SIS hófst skömmu sið- ar. Flokkar samvinnumanna og jafnaðarmanna komu lika til sögu um likt leyti og hafa haft mikil áhrif á löggjöfina. Á íslandi er þvi annað og betra þjóðfélag i dag en fyrir sextiu árum. Svo vel hefur þessum þremur vopnum verið beitt. En samt er enn margt óunnið, sem vinna ber að i anda frum- herjanna. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Hverjir hafa grætt á detente-stefnunni? I VESTRÆNUM löndum sætir hin svonefnda detente-stefna, eöa slökunar- stefna, vaxandi gagnrýni. Þetta kemur m.a. fram ikosn- ingabarátiunni i Bandarikjun- um. Ihaldsflokkarnir i Vest- ur-Þýzkalandi og Bretlandi beita þessari gagnrýni einnig i vaxandi mæli. Aðaluppistaðan i dróðri þeirra er sú, að detente-stefnan hafi gert vest- rænu rikin andvaralausari, og að Sovétrikin hafi hlotið ýms aukin hlunnindi, t.d. á við- skiptasviðinu, i skjóli hennar. Einnig reyni Sovétmenn aö færa sig upp á skaftið i Afriku og Asiu i skjóli hennar. Ef mál þetta er skoöaö niður” i kjölinn, verður næsta erfitt að dæma um, hvort detente-stefnan hefur fært Sovétrikjunum eða vestrænu rikjunum meiri hagnað. Hið rétta er, að hún hefur fært báðum nokkurn hagnað, sem er fólginn i þvi, að samskipti þjóðanna eru orðin mannlegri en áður, og gagnkvæm kynni hafaaukiztá mörgum sviðum. Sú kenning, að detente- stefnan hafi dregið úr varúð vestrænna rikja, fær ekki staðizt, þegar þess er gætt, að öllum hlutlausum stofnunum, sem miðla upplýs- ingum um vigbúnaðarmál, ber saman um, að riki At- lantshafsbandalagsins verji enn samanlagt miklu meira fé til vigbúnaðar en riki Varsjár- bandalagsins. Riki Atlants- hafsbandalagsins hafa að visu dregið nokkuð hlutfallslega úr herkostnaði, en þrátt fyrir það er hann enn verulega meiri en hjá Varsjárbandalagsrikjun- um, samkvæmt áðurnefndum skýrslum. Þvi verður þess vegna ekki haldið fram, með neinum rökum, að þau hafi dregið úr varúð sinni, Menn verða að taka með gætni öllum upplýsingum, sem hershöfð- ingjar og flotaforingjar hampa i þessum efnum, eða fulltrtiar hergagnaiðnaðarins, en þeir nota alls konar leiðir til að koma áróðri sinum á fram- færi, ekki sizt hjá fjölmiðlum, sem eru i einkaeign. VIÐ þvi var aldrei að búast, að detente-stefnan yrði til þess að draga úr áróðursstriðinu, sem stendur yfir milli vest- rænnar lýðræðisstefnu og kommúnismans. Það hlaut að halda áfram og mun halda áfram, þótt friðvænlegra verði i heiminum. En þvi fer fjarri, að detente-stefnan hafi bætt áróðursstöðu kommúnismans meira en lýðræðisstefnunnar. Miklu frekar er þessu öfugt farið. Helsinkiyfirlýsingin felur t.d. i sér margs konar fyrirheit um aukin og frjálsari samskipti þjóöa. Þar strandar nú á kommúnistarikjunum að standa við þessi fyrirheit. Kastljósið beinist þvi enn meira að þvi en áður, að mannréttindum er mjög ábótavant I löndum þeirra og miklu meira en i vestrænum lýöræðisrikjum, þótt ýmsu sé þar ábótavant. Ef vestrænir lýðræðissinnar nota sér Hel- sinkiyfirlýsinguna með lagni, ætti hún ekki aðeins að geta styrkt áróðursstöðu þeirra gagnvart kommúnismanum, heldur einnig haft áhrif á, að ýmsar tilslakanir verði gerðar á sviði mannréttinda I komm- únistarikjunum. Ford og Bréznjev Af hálfu þeirra, sem gagn- rýna detente-stefnuna vestan tjalds, hefur verið látinn uppi sá ótti, að hún gæti leitt til þess, ef menn gættu ekki vöku sinnar, að eins konar finnskt ástand geti skapazt I löndum Vestur-Evrópu, og eiga menn þá við svipað ástand og nú rikir i sambúð Finnlands og Sovétrikjanna. Ekki hefur þó borið neitt á þessu enn. Detente-stefnan hefur hins vegar beint og óbeint leitt til þess, að Rússar hafa orðið að milda tökin i fylgirikjum sin- um. Það eru ekkert minni lik- ur á að þar geti skapazt finnskt ástand en i Vestur- Evrópu. EF TIL VILL er þaö rétt hjá Ford forseta, að timi hinnar svonefndu detente-stefnu sé að verða liðinn. Fyrirbrigði eins og kalda striðið og detente-stefnan eru oftast bundin við visst árabil. Eins og kalda striðið leiddi til breyttra viðhorfa og myndaði jarðveg fyrir detente-stefn- una, er hún einnig likleg til að leiða til nýrra viðhorfa og stefnubreytingar. Ein bein og óbein afleiðing hennar er td. breyting á starfsháttum stærstu kommúnistaflokk- anna i Vestur-Evrópu, þ.e. i Frakklandi og Vestur-Þýzka- landi. Bæði risaveldin fylgjast með þessum breytingum með áhyggjum. Ráöamenn Sovét- rikjanna óttast, að þær geti leitt til þess, að þeir missi þau áhrif;, sem hafa fylgt tengsl- um þessara flokka við Sovét- rikin. Ráðamenn Bandarikj- anna óttast, að þetta geti leitt til þess, að kommúnistar komist i stjórn á Italiu og i Frakklandi, og það geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Þetta getur vel verið upphaf breytinga, sem hafa mikil áhrif i Evrópu i náinni fram- tið. Þetta sýnir jafnframt, aö risaveldin ráða ekki jafnmiklu um þróunina og áður, en það getur þó eigi að siður haft mikil áhrif, hvort viðbrögð þeirra verða jákvæð eöa nei- kvæð við slikum breytingum. — Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.