Tíminn - 12.03.1976, Side 16
16
TÍMINN
Föstudagur 12. marz 1976
A FLOTTA FRA ASTINNI
Eftir Rona Randall 4
sjúkrahúsinu. Það hafa verið i gildi eins konar lög, sem
útiloka þá.
— Óskrifuð lög?
— Já....en þau hafa þó verið virt.
— Eigið þér við, að ég kunni að mæta mótspyrnu eða
andúð?
— Nei, ekki kannske það, svaraði hann hægt. — Stjórn-
in hef ði ekki ráðið yður, ef þér hæfðuð ekki í stöðuna.
— Jú, ef ekki væri neinn annan að fá. Og jafnvel nýút-
skrifaðir læknar geta fengið betur launaðar stöður i
Englandi.
— Það er rétt. En þér vilduð heldur vera fátæk í París?
Nú hló hún í fyrsta sinn og hann heillaðist gjörsamlega
af hlátri hennar.
— Mjög vel heppnuð, en ef ég má leyfa mér að segja
það, f innst mér að þú þurf ir á því að halda, að taka þé>
f ri.
— Enga vitleysu, Bailey. Ég þarf ekki meira á fríi að
halda en þú. Hvernig heldurðu, að ástandið yrði hér, ef
annar okkar færi burt i frí?
Bailey, aðstoðarlæknirinn vissi svarið og lét spurning-
unni ósvarað. — Það ætti að lagast eitthvað, þegar nýi
aðstoðarlæknirinn kemur, sagði hann. — Það léttir að
minnsta kosti allri aukavinnunni af Harwey.
— Við skulum sjá, hvað hann getur fyrst.
— Hann. Ég hef heyrt að það sé kona.
— Æ, ég gleymdi því. Mark fleygði frá sér handklæð-
inu og bretti niður skyrtuermarnar. Siðan andvarpaði
hann. — Já, nýi aðstoðarlæknirinn er kona, er ég hrædd-
ur um. Því miður var ekki um annað að ræða.
— En það eru margir læknar konur!
— Já, líklega, en það breytir ekki þeirri staðreynd, að
ég vil helzt ekki hafa neinn þeirra hér. Gallinn á heimin-
um í dag, Bailey, er sá að konurnar vilja ekki vera þar
sem þeirra staður er. Þær vilja þrengja sér inn á okkar
svið. Mark brosti einu af sínum hlýju, sjaldgæf u brosum.
— En kærðu þig kollóttan um það sem ég segi. Lafði
Lowell segir, að ég sé svartsýnn fyrirfram.
Vængjahurðin opnaðist og Friar hjúkrunarkona kom
inn, smávaxin, dökkhærð og lagleg. Sögusagnir gengu
um að hún væri ástfangin af dr. Harwey, en öll sjúkra-
hús eru full af sögusögnum af því tagi.
— Yfirhjúkrunarkonan er i innanhússsímanum, dr.
Lowell. Hún bað mig að segja, að dr. Henderson sé kom-
inn og bíði í skrifstofu yðar.
— Takk. Getið þér séð um, að te sé sent til hennar? Ég
býst við, að hún hafi lyst á því, nýkomin beint frá Eng-
landi. Segið henni, að ég komi eins f I jótt og ég get.
Hann yfirgaf skurðdeildina og tvær hjúkrunarkonur
stóðu og horfðu á eftir honum.
— Þarna fer sjálfur ,,stórmógúllinn" hvíslaði önnur
þeirra.
— Láttu ekki svona, svaraði hin stuttlega. — Hann er
dásamlegur!
Skurðstof uhjúkrunarkonan, sem stóð nálægt og heyrði
samræðurnar, sneri sér undan og brosti. Hún var í raun-
inni sammála síðasta ræðumanni, leitt, að svona mynd-
arlegur maður skyldi vera svona fjarlægur. Sumum
hjúkrunarkonunum fannst hann meira að segja varla
mannlegur og töldu víst að hann væri gjörsneyddur öll-
um mannlegum tilfinningum. En hún, sem hafði ótal
sinnum starfað við hlið hans, vissi, að maður, sem barð-
ist svo mjög til að bjarga mannslífum, gat ekki verið að-
eins vél. Einhvers staðar innan undir svölu og hörðu
yfirborðinu leyndist áreiðanlega stórt og hlýtt hjarta.
Polly Friar brosti með sjálf ri sér á leið niður í eldhúsið
eftir teinu handa nýja aðstoðarlækninum. Tilhugsunin
um að hjúkrunarkona í Englandi gerði slíkt, var næstum
hlægileg. En hana langaði að sjá þennan nýja lækni og nú
hafði hún tækifærið.
Það er vægt til orða tekið, að Polly hafi orðið hissa,
þegar hún sá Myru Henderson. Eins og allir aðrir, hafði
hún haldið, að Myra væri mun eldri. En það var ekki að-
eins það, sem Polly tók eftir. Hún sá líka einmanakennd-
ina, sem umlukti Myru eins og skikkja og dapurleikann,
sem skein út úr stórum augunum.
Myra stóð við gluggann, þegar dyrnar opnuðust og
horfði yf ir húsaþök Parísarborgar. Hún var að hugsa um
Brent Taylor. Þetta var borgin, sem hann hafði svo oft
talað um. Hér hafði hann unnið og numið og málað, mál-
að og málaó..... — Þá sá maður ekkert nema Mont-
martre, hafði hann einu sinni sagt. — Montmartre og
bóhemlifið, nú er það St. Germain og existensíalisminn,
en það er í rauninni það sama. Lífið, Paris og listin er
óaðskiljanlegt! Elskan mín. Þú átt eftir að elska þá
borg!
FÖSTUDAGUR
12. marz
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnir kl.7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Vilborg Dagbjarts-
dóttir heldur áfram lestri
sögunnar „Afsakiö, ég heiti
Trana” eftir Gunvor
Hákansson (5). Tilkynning-
ar kl. 9.30. Þingfréttir kl.
9.45. Létt lög milli atriöa.
Spjallað við bændur kl.
10.05. Úr handraðanum kl.
10.25: Sverrir Kjartansson
sér um þáttinn.
Morguntónleikar kl. 11.00:
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Hof s ta ða br æður ” eft-
ir Jónas Jónasson frá
llrafnagili. Jón R.
Hjálmarsson les (9).
15.00 Miðdegistónleikar.Dani-
el Barenboim og Enska
kammersveitin leika Pianó-
konsert i D-dúr eftir Ludvig
van Beethoven, Barenboim
stjórnar frá pianóinu.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Dtvarpssaga barnanna:
Spjall um Indiána. Bryndis
Viglundsdóttir heldur
áfram frásögn sinni (4).
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Guðni
Kolbeinsson flytur þáttinn.
19.40 Þingsjá. Kári Jónas-
son sér um þáttinn.
20.00 Tónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitar islands i
Háskólabiói kvöldið áður.
Hljómsveitarstjóri:
Karsten Andersen. Einleik-
ari á fiðlu: Guðný Guð-
mundsdóttir konsertmeist-
ari sveitarinnar. a. Sinfónia
nr. 6 i h-moll (Pathetique)
eftir Pjotr Tsjaikovský. b.
Fiðlukonsert eftir Igor
Stravinský. c. „Bakkus og
Ariadne”. danssvninear-
tónlist eftir Albert Roussel.
— Jón Múli Arnason kynnir
tónleikana. —
21.30 Útvarpssagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis Kristinn'
Björnsson þýddi. Sigurður
A. Magnússon les (3).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (22).
22.25 Leiklistarþáttur.
Umsjón: Sigurður Pálsson.
22.55 Áfangar.Tónlistarþáttur
i umsjá Asmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
12. mars 1976
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Kastljós. Umsjónarmað-
ur Guðjón Einarsson.
21.40 Lautrec. Teiknimynd
byggö á nokkrum verka list-
málarans Toulouse-
Lautrec.
22.00 Opri. Finnsk biómynd
frá árinu t 1954.t Höfundur
Kyllikki Mantyla. Leikstjóri
Edvin Laine. Opri gamla
varð að flýja frá átthögum
sinum i striðinu og setjast
að á nýjum stað. Þar unir
hún sér vel, uns að þvi
kemur að rifa þarf kofa
hennar vegna vegagerðar.
Hún fær inni á elliheimili og
likar þar ákaflega illa fyrst i
staö. t Þýöandi Kristin
Mántyla.
23.15 Dagskrárlok.