Tíminn - 12.03.1976, Side 21
Föstudagur 12. nVarz 1976
® ASÍ 60 ára
lagsbreytingu, sem gekk i gildi
árið 1966. Hugmyndir sem höfðu
komið fram um að fækka fulltrú-
um á Alþýðusambandsþingum og
kjósa til þeirra með óbeinumhætti i
gegnum landssambönd eða fjórð-
ungssambönd, hefur ekki náð
frám að ganga. Það hefur þvi
ekki fækkað á þessum þingum, og
um það eru sennilega jafnskiptar
skoðanir enn þann dag i dag,
hvort stefna beri að þvi að gera
þingin minni um sig. Yfirleitt er
það hverju félagi metnaðarmál
að eiga sinn fulltrúa á Alþýðu-
sambandsþingi, og einnig má
segja, að þannig sé auðveldara að
virkja alla hreyfinguna, heldur en
ef kosningar eru óbeinar og þing-
in smærri.
— Nú erum við hér að visu ekki
til þess að fella dóma, heldur tii
þess að rekja sögu, en samt er
freistandi að spyrja i framhaldi
af þessu: Eru þessi þing ekki ó-
þægiiega fjölmenn og þung i vöf-
um, þannig að það geti beinlinis
tafið fyrir framgangi og af-
greiðsiu tiitekinna mála?
— Jú, það er mikið til i þessu.
Að minu viti gæti verið nauðsyn-
legt að hafa dálitið annan hátt á,
þannig að þingið yrði takmarkað
við fá mál og stór, sem væri búið
að ræða i verkalýðshreyfingunni,
áður en til þings kemur, og menn
kæmu til þingsins til þess að gefa
stefnunni i þessum málum endan-
lega mynd, fremur en að þar upp-
hæfust frumumræður um stór-
mál, sem hæglega gætu tekið
marga daga. Þvi er ekki að neita,
að stundum hafa þingin orðið
helzt til þung i vöfum, og það er
vitaskuld engum til góðs.
Látum lýðræðið ná til
allra þátta þjóðfélagsins
— Það fer nú að líða að lokum
þessa spjalls okkar, en ég mætti
kannski spyrja þig að iokum,
Ólafur, hvernig þú, sem skrif-
stofustjóri Alþýðusambands is-
lands, hyggur tii framtiðarinnar
á þessum timamótum. Heldur þú
að alþýðusamtökin á islandi hafi
ástæðu til bjartsýni?
— Já, ég held það, en fram-
undan biður gnótt verkefna, og þá
er spurningin, hvernig tekst að
virkja fólk i verkalýðshreyfing-
unni til þess að hrinda þeim mál-
um i framkvæmd. Hin pólitiska
AUGLÝSIÐ
í TÍMANUM
TÍMINN
togstreita, sem setti svip sinn á
Alþýðusambandið fyrstu áratug-
ina eftir að það varð sjálfstætt og
óháð stjórnmálaflokkum, — sú
togstreita er nú langt að baki, og
ég held, að fólkið i alþýðusamtök-
unum geti orðið sammála um
fjölmörg mikilsverð mál, þrátt
fyrir að það skipar sér i hina
ýmsu stjórnmálaflokka. Þar á ég
meðal annars við mál eins og al-
þýðutryggingar, húsnæðismál, og
siðast en ekki sizt að útfæra íýð-
ræði i þjóðfélagi okkar, þannig að
það nái til efnahags einstaklings-
ins og vinnustaðar hans. Menn
þurfa að gera þær kröfur til
vinnustaðar sins, þar sem þeir
eyða mjög miklum hluta af vöku-
stundum lifs sins, að hann sé
mannsæmandi og menn hafi á-
kvörðunarrétt varðandi skipu-
lagningu vinnustaðarins og vinn-
unnar sjálfrar. Þetta er gifurlega
mikið verkefni, og þarna erum
við vafalaust einum til tveim ára-
tugum á eftir frændum okkar á
Norðurlöndum, en ég held, að
verkalýðshreyfingin verði að
snúa sér mun meira að þessum
félagslegu þáttum. Það er ekki
einvörðungu kaupið sjálft eða
krónutala þess, sem er grundvöll-
ur lifskjara, heldur verða menn
að lita á heildina og reyna að bæta
hag verkafólks á öllum sviðum og
sameina það til átaka. Það er
hægt að ná atvinnutækjum i sinar
hendur á annan hátt en þann að
taka fyrst rikisvaldið og þjóðnýta
siðan allt saman. Þetta er lika
hægt að gera eftir leiðum sam-
vinnu og með hægfara útfærslu
lýðræðis til allra þátta þjóðfé-
lagsins. _vg
Bankastræti 9 • • Sími 11811
21
Fermingarfafnaðurl
STULKUR:
Buxnadragt
5 litir
DRENGIR:/
Flauelsföt
5 litir
Blússur og peysur Skyrtur
Pils
Sendum gegn póstkröfu samdægurs
M Kji: ii
læaurs v",ííN J
sendir Alþýðusambandi fslands
beztu árnaðaróskir á
60 ára afmæli þess
■N
Margar gerðir mæla
í bifreiðir, báta
og vinnuvélar
HLOSSB--------------
Skipholti 35 - Simar:
8-13-50 verzlun - 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa
-
Permobel
HLOSSI!
Skipholti 35 • Simar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verVstæöi • 8-13-52 skrífstofa
Blöndum
bílalökk
IssítH: