Tíminn - 19.03.1976, Qupperneq 1

Tíminn - 19.03.1976, Qupperneq 1
Leiguflug—Neyðarf lug IHVERT SEM ER HVENÆR SEM ER FLUGSTÖÐIN HF Símar 27122-11422 63. tölublað—Föstudagur 19. marz 1976—60. árgangur fÆHOmt Aætlunarstaðir: Blönduós — Siglufjörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur ‘Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur:—iRif iSúgandaf j! Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 & 7-60-66 . =iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii= (Nýtt verð á land- [búnaðarafurðum í (næstu viku i§ Oó-Reykjavlk. Ljóst er að einhverjar hækkanir verða á l§ M landbúnaðarafurðum vegna nýgerðra kjarasamninga. Sex §j = manna nefndin vinnur nú að verðlagsákvörðunum, en málið er = = flókið, i fjölmörgum liðum, og margs konar ástæður sem taka E s verður tillit til. 1 gærkvöldi var nefndin ekki búin að ljúka = s störfum, og koma verðlagsbreytingar sennilega ekki til fram- = = kvæmda fyrr en i fyrsta lagi i næstu viku. Þegar sex manna = = nefndin hefur lokið störfum, verður að leggja verðákvarðanir = S hennar fyrir rikisstjórnina til staðfestingar. = llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllÍ Smjörskortur fyrirsjáanlegur: Nytin datt úr kúnum vegna verkfallsins Óhrygnd loðna úti fyrir Norðurlandi Oó-Reykjavik. 1 fyrrinótt fengu 16 skip 5500 tonn af loðnu á svæði um 24 milur norður af Akranesi. Er loðnan komin svo langt inn á Faxaflóa, að erfitt er að veiða hana, þar sem hún er á tiltölulega grunnu vatni og hraunbotn er undir. Er þvi mikil hætta á að næturnar rifni. 1 gærdag var ekki tilkynnt um neinn loðnuafla. Allar þrær á höfnum viö Faxa- flóa fylltust i gær, en þrir bátar sigldu með afla sinn til Vest- mannaeyja. 1 dag verður nóg þróarrými til að taka við meiri afla, berist hann á land. Ekkert er að frétta af loðnu- göngunni við Suðurland, sem fannst fyrr I vikunni, en sú loðna reyndist dreifð og verður ekki veiðanleg nema hún þétti sig. Hins vegar hefur frétzt af loðnu fyrir Norðurlandi, sem er óvenju- legt á þessum árstima. Togarar lóðuðu þar á þykkum torfum i Reykjaál, og loðna hefur komið upp i netum þeirra. Er hún óhrygnd, en mun hrygna alveg á næstunni. Engir loönubátar eru á þeim slóðum, enda var ekki búizt við möguleikum á loðnuveiði úti fyrir Norðurlandi i marzmánuði. Oó-Reykjavfk. Litlar smjör- birgðir eru nú til I landinu. Hjá mjólkurbúunum eru sáralitlar birgðir, en hins vegar mun tals- vert til i verzlunum. Mjólkur- framleiðslan hefur verið litil und- anfarið og dróst mikið saman i verkföllunum. Eins og alkunna er, urðu marg- ir bændur að hella niður mjólk vegna nýafstaðinna verkfalla, en jafnframt minnkuðu þeir fóður- bætisgjöfina, og þar með datt nyt- in niður I kúnum og næst ekki upp aftur fyrr en eftir burð. Er þvi ekki aðeins um að ræða það tjón er varð vegna þess að hella varð niður mjólk, heldur hefur nytin einnig minnkað verulega, svo að búast má við að mjólkurskortur verði eitthvað fram á vorið. Timinn spurði Svein Tryggva- son, framkvæmdastjóra Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins, hvort i ráði væri að flytja inn smjör. Hann sagöi, að það kæmi ekki til greina.enda mun gjaldeyrisstaða þjóðarinnar ekki vera slik, að smjörinnflutningur bæti þar neitt úr. En þótt mjólkurframleiðslan dragist saman, og þar meö smjörframleiðsla, er óþarfi að óttast algjöran mjólkur- eða smjörskort, þvi mjaltir og smjör- gerð halda áfram í landinu, þótt framleiðslan dragist saman. Varðskipin verða skoðuð bráðabirgðaviðgerð Gsal-Reykjavik. Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra skýrði frá þvf I gær, að þess hefði verið farið á ieit við Siglingamála- stofnun rfkisins, að hún léti i té mann til þess aö meta, hvort varðskipin væru fær um að halda aftur til gæzlustarfa á miðun- III um, þegar bráðabirgðaviðgerðir hafa verið gerðar eftir ásigling- lll ar Breta. ' " 'Á' T- - " 'V N V;- ^ V A s'vÆsVv >AAV HOLLENZK SKIP í ATHUGUN FYRIR GÆZLUNA Gsal-Reykjavik — Aö sögn Baldurs Möller, ráðuneytis- stjóra i dóm smáiaráðu- neytinu, er nú verið aö at- huga, hvort hægt er að fá varöskip á leigukjörum frá llollandi,. Hollenzkt fyrirtæki bauð tslendingum nýlega skip, sem sérstaklega voru smfðuð fyrir ónefnt Afrfkuriki, en það stóö hins vegar ekki vib samninginn þegar á reyndi, og þvf situr fyrirtækið uppi meö skipin. Nú er verið að athuga, hvort þessi skip gætu reynzt heppileg við Islenzkar að- stæður, en þau eru t.d. ekki búin hitakerfi að sögn Baldurs. Þessi skip eru nokkru minni en Asheville-skipin. RÆTT UM HALFAN MILLJARÐ FYRIR LANDHELGISGÆZLU — til að mæta auknum rekstrarkostn- aði, bæta tækjakost, koma á skipti- áhöfnum og fá varðskip erlendis frá Gsal-Reykjavlk — Að sögn ólafs Jóhannessonar dómsmálaráð- herra hefur veriö rætt við fulltrúa I fjárhagsnefnd Alþingis um fjár- veitingu til handa Landhelgis- gæzlunni, og sagði Ólafur f sam- tali við Tfmann I gær, að rétt væri, að talan hálfur milljarður hefði verið nefnd I þvf sambandi. Kvaðst dómsmálaráðherra von- ast til að þessi beiöni næði fram að ganga. Timinn innti Ólaf eftir þvi, hvernig þessum fjármunum yröi variö, og sagði ráöherra, að kostnaður viö starfrækslu Land- helgisgæzlunnar væri orðinn meiri en fjárveitingin til Land- helgisgæzlunnar næmi, og þvi myndi hluta fjárins verða varið til þess að greiða þann umfram- kostnað sem þegar er orðinn. 1 öðru lagi yröi fénu varið til þess að bæta tækjakost og búnað Landhelgisgæzlunnar, svo og til að koma á skiptiáhöfnum. I þriðja lagi yrði þessum fjármunum varið til þess að fá varðskip er- lendis frá. — Við höfum fyrst og fremst haft i huga, að fá leigt skip, sagði ráðherra, en svar frá Bandarlkj- unum hefur enn ekki borizt. Flugfélagið Ernir fer aftur í gang GS-ísafirði. Flugfélagið Ernir er nú aftur að hefja starfsemi Sveitarfélögin á Vestfjörðum munu leggja fram til tlugsins upphæð, sem jafngildir 300 krónum á Ibúa á mánuði og einnig hefur sjúkraflugsstyrkurinn verið hækkaður I 1,5 milljón- ir króna. Hörður Guðmundsson, flugmaður, er væntanlegur i dag á flugvél félagsins og mun flug innan Vestfjarða þá halda áfram óhindrað að minnsta kosti út þetta árið. Um fjörutiu eiginkonur, unn- ustur og mæður varðskips- manna, gengu á fund ólafs Jóhannessonar, dómsmála- ráðherra f gær og ræddi ráö- herra við þær I tæpa tvo stundarfjórðunga. Myndin er tekin f anddyri Alþingishúss- ins I gær. Timam: Gunnar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.