Tíminn - 19.03.1976, Blaðsíða 23
Föstudagur 19. marz 1976
TÍMINN
23
loknu
gosi
AÐ GOSI LOKNU nefnist
grein, sem Magnús H. Magn-
ússon, fv. bæjarstjóri, skrifar I
nýútkomiö tölublað Sveitar-
stjórnarmála, og gerir hann
þar grein fyrir endurreisnar-
starfinu i Vestmannaeyjum.
Samtal er við Bjarna Þórðar-
son, fv. bæjarstjóra i Nes-
kaupstað, sem hefur verið
bæjarfulltrúi lengur en nokkur
annar maöur hér á landi eða I
38 ár. Aðalsteinn Guðjohnsen,
rafmagnsveitustjóri, á grein-
ina Þverbrestir i orkumálum
landsmanna, þar er sagt frá
tilfærslu nokkurra verkefna
frá ríki til sveitarfélaga, og
forustugreinin, Orö og geröir,
eftir Pál Llndal, formann
Sambands isl. sveitarfélaga,
fjallar um það mál. Þá er I rit-
inu m.a. sagt frá norrænni
ráöstefnu um gerö iþrótta-
mannvirkja, samstarfsnefnd
sveitarfélaga um hitaveitu-
mál og verölaunasamkeppni i
skdlum um efnið Sveitarfélög
á Islandi — framtiðarhlut-
verk.
Með þessu tölublaöi lýkur
35. árgangi timaritsins, og 35
ár eru nú siðan það hóf göngu
sina, árið 1941. Ritstjóri þess
er Unnar Stefánsson.
A kápu blaðsins er litmynd
úr Vestmannaeyjum.
Símaþjónusta fyrir
fórnarlömb nauögara
Reuter, London. — Simaþjón-
usta fyrir fórnardýr nauðgara
hefur verið opnuð i London, og
mun hún verða starfandi allan
sólarhringinn.
Jafnframt þvi að gefa fórn-
arlömbunum iagaleg og lækn-
isfræðileg heilræði, munu
starfsmenn einnig taka að sér
að fylgja þeim til lögreglunnar
og til réttarhalda.
Þá munu og starfa á vegum
þjónustunnar karlmenn, sem
sérstaklega sjá um ráðlegg-
ingar til karlkyns ættingja
fórnarlambanna.
Starfslið stofnunar þessar-
ar er allt sjálfboðaliðar, sem
vinna i samráði við lögreglu
og lækna.
Þrír drepnir
í Argentínu
Óeirðir og átök i Argentinu
virðast litið vera i rénun, eftir
fréttum þaðan að dæma.
Siðast á þriðjudag voru þrir
lögreglumenn drepnir i
Buenos Aires, þegar yfir gekk
bylgja skæruliðaárása þar, og
einir átta aðrir borgarar voru
særðir.
Hafa þá alls eitt hundrað
tuttugu og tveir látizt i stjórn-
málalegum átökum i Argen-
tinu á þessu ári, en árið 1975
voru næstum niu hundruð
drepnir.
0 Eiginkonur
hvöttu til þess að samið yrði, en
aðrar kváðust ekki vilja neina
samninga.
Að fundinum loknum tók blm.
Timans Guðrúnu Arnadóttur og
Astriði Hannesdóttur tali, en
Guðrún er gift Þresti Sigtryggs-
syni, skipherra á Ægi og Astriður
er gift yfirvélstjóranum á sama
skipi.
Þær kváðust vera mjög ánægð-
ar með þær undirtektir sem þær
hefðu fengið hjá dómsmálaráð-
herra, en sögðu að fundurinn
hefði ekki verið nægjanlega vel
skipulagður af þeirra hálfu.
— Ég styð þetta fullkomlega
með skiptiáhafnirnar, en hins
vegar tel ég að núna sé orðið of
seint að semja við Breta, sagði
Guðrún.
Við spurðum þær að þvi, hvort
konur varðskipsmanna hyggðu á
frekari aðgerðir, og sögðu þær að
það mál væri órætt.
Þjóðmálanámskeið
Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins gengst fyrir þjóðmála-
námskeiði að Rauðarárstig 18, Reykjavik 26.-28. mars.
Hannes Halldór Kristján Jón
Pálsson, Asgrlmsson, . Benediktsson, Sigurðsson,
Aðalheiður Gerður Eysteinn Pétur
Bjarnfreðs Steinþórsdóttir, Jónsson, Einarsson,
dóttir,
Halldór E. Sævar Einar Magnús
Sigurðsson, Sigurgeirsson, Agústsson, ólafsson.
Dagskrá:
Föstudag 26. marz kl. 20.00. Efnahagsmál og þjóðhagsstærðir.
Málshefjendur: Hannes Pálsson, bankastjóri og Halldór As-
grimsson, alþingismaður.
Laugardagur 27. marz kl. 10.00.íslenzka flokkakerfið.
Málshefjendur: Kristján Benediktsson, borgarráösmaður og
Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri.
Laugardagur 27. marz kl. 15.00 Konur á vinnumarkaðinum.
Málshefjendur: Aöalheiður Bjarnfreðsdóttir form. Starfs-
stúlknafélagsins Sóknar, gestur námskeiðsins og Gerður
Steinþórsdóttir varaborgarfulltrúi.
Sunnudagur 28. marz kl. 10.00 Framsóknarstefnan.
Málshefjendur: Eysteinn Jónsson fyrrv. ráðherra og Pétur
Einarsson stud. jur.
Sunnudagur 28. marz kl. 15.00.Tekjuskipting og skattamál.
Málshefjendur: Halldór E. Sigurðsson ráöherra og Sævar
Sigurgeirsson endurskoðandi.
Sunnudagur 28. marz kl. 18.00.Horfur i islenzkum stjórnmálum.
Málshefjendur: Einar Agústsson ráöherra og Magnús Ólafs-
son form. SUF.
öllum er heimil þátttaka i námskeiöi þessu og veru væntanleg-
ir þátttakendur beðnir að tilkynna þátttöku i sima 24480.
Stjórnandi námskeiðsins verður Magnús Ólafsson form. SUF.
Félagsmáiaskólinn.
Páskafetðin 10. apríl
til Vínarborgar
Þeir, sem eiga pantaða miða i páskaferðina til Vinar eru beðnir
vinsamlega að greiða þá sem fyrst á skrifstofu fulltrúaráðsins
Rauðarárstig 18, simi 2 44 80.
Opið hús
Framsóknarfélögin i Kópavogi munu framvegis hafa opið hús að
Neðstutröð 4 mánudaga kl. 5 til 7. Þar verða til viðtals ýmsir
forystumenn félaganna og fulltrúar flokksins i nefndum bæjar-
ins. Stjórnin.
Aðalfundur Miðstjórnar
Aðalfundur Miðstjórnar Framsóknarflokksins 1976 verður
haldinn að Hótel Sögu i Reykjavik 7.-9. mai.Miðstjórnarmenn
eru minntir á að hafa samband við flokksskrifstofuna ef þeir
geta ekki mætt.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness heldur framsóknarvist i félags-
heimili sinu Sunnubraut 21, sunnudaginn 21. marz ki. 16.
Þetta er siðasta vistin i fjögurra-kvölda keppni. Veitt verða
heildarverðlaun og venjuleg spilaverðlaun. öllum heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Rangæingar —
Framsóknarvist
Framsóknarfélag Ra-ngárvallasýslu heldur spilakvöld i Félags-
heimilinu Hvoli, Hvolsvelli, sunnudaginn 21. marz kl. 9. (3
kvöld). Góð kvöldverðlaun. Heildarverðlaun eru sólarlandaferð
fyrir tvo.
Steingrimur Hermannsson, ritari Framsóknarflokksins flytur
ávarp. Stjórnin.
Hafnarf jörður
— Fulltrúaráð
Aðalfundur Fulltrúaráösins verður þriðjudaginn 23. marz n.k.
kl. 20.30, aö Strandgötu 11.
Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ragnheiður Svein-
björnsdóttir bæjarfulltrúi skýrir frá nýgerðri fjárhagsáætlun
bæjarins. 3. Markús Á. Einarsson gerir grein fyrir störfum bæj-
armálaráðs. 4. önnur mál. — Stjórnin.
Félagsmálanámskeið
Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins gengst
fyrir almennu félagsnámskeiði_ 19.-21. marz
og verður það haldið að Rauðarárstig 18,
Reykjavik.
Dagskrá:
Laugardag 20. marzkl. 10 erindi um ræðumennsku^umræður
og fyrirspurnir.
Kl. 15.00 rætt um undirbúning og efnisskipan ræðu.
Sunnudagur 21. marzkl. 10. Erindi um flokka tillagna og af-
greiðslu þeirra, umræður og fyrirspurnir.
Kl. I5rætt um undirbúning funda og fundarskipan.
Kl. I8erindi um félagslög.stjórn og gögn félags og um reikn-
inga, umræður og fyrirspurnir.
Stjórnandi námskeiðsins verður Pétur Einarss. Námskeiðið er
öllum opið, en væntanlegir þátttakendur eru beðnir að tilkynna
þátttöku I sima 24480.
Félagsmálaskólinn.
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarf lokksins
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi verður til viðtals laugardag-
inn 14. febrúar á skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarár-
stig 18, frá kl.'lO til 12.
Fundur verðurum utanrikismál mánudaginn 22. marz i Félags-
heimili Kópavogskl. 20:30. Frummælandi verður Einar Agústs-
son utanríkisráðherra. Allt framsóknarfólk velkomið. Stjórnin.
Reykjavík
Aðalfundur Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna i Reykjavik
verður haldinn að Hótel Esju mánudaginn 22. marz kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar.
Nánar auglýst siðar.