Tíminn - 19.03.1976, Blaðsíða 24

Tíminn - 19.03.1976, Blaðsíða 24
""" -------------- \ Föstudagur 19. marz 1976 METSOLUBÆKUR Á ENSKU í VASABROTI íl Lockheed dregur dilk á eftir sér og, Nú eru það hollenzkar mútur FORSÆTISRAÐHERRA Hol- lands sagði i gær, að hollenzkt fyrirtæki, sem starfar á sviði járnbrautaiðnaðar, hefði greitt meira en 5.6 milljónir sterlings- punda Imútur tilað tryggja sölu á stórri pöntun til Argentinu á árinu 1951. Forsætisráðherrann, Joop den Uyl, sagöi ekki hverjir heföu þegið múturnar. Hollenzk dagblöö hafa gefið I skyn, aö mútuþegamir hafi veriö ónefndir háttsettir embættismenn i Argentinu, og hafi þeir I staðinn tryggt kaup Argentinumanna á vörum frá hollenzka fyrirtækinu fyrir um 48,6 milljónir sterlingspunda. Den Uyl sagöi enn fremur, að greiöslur þessar hefðu farið fram með vitund og samþykki rikisstjórnarinnar. Hefði fyrir- tækið farið fram á heimild frá hollenzka rfkisbankanum, og i fyrstu fengið neikvætt svar, en siðar umbeðna heimild, eftir viðræöur milli bankans og rikis- stjórnarinnar. Er þetta nýjasta viðbótin við dilk þann, sem mútustarfsemi bandarlska fyrirtækisins Lock- heed dregur á eftir sér, eða öllu heldur afhjúpun þeirrar starf- semi. Komið hefur I ljós, slðan for- ráðamenn Lockheed játuðu að hafa mútað erlendum embættis- mönnum, að allt að eitt hundraö stór fyrirtæki I Bandarjkjunum hafa einnig notað þær aðferðir til að tryggja sölu slna til er- lendra rlkja. Meðal þeirra er til dæmis Goodyear gúmml- og hjólbarðaverksmiðjurnar. Hefur rannsókn þessa máls meöal annars komið af stað opinberum rannsóknum I að minnsta kosti sjö rlkjum i Evrópu og Miö-Austurlöndum, auk Japans. Mútur holienzka fyrirtækisins voru gerðar opinberar vegna rannsóknar sérskipaðrar nefnd- ar á ásökunum um aö Bernhard drottningarmaður I Hollandi hafi þegið mútur af Lockheed, en hann hefur neitað því. Bernhard prins er ekki sá eini, sem Lockheed-málið hefur komið óþægilega við, og enn bætast fyrirtæki I hópinn. Ford: Fordæmir aðstoð við IRA Reuter, Washington. Gerald Ford Bandarikjaforseti tók I gær undir orð forsætisráð- herra Irska lýðveldisins, Liam Cosgrave, og bað bandariska aðila að hætta að senda peninga og vopn til irska lýðveldishersins (IRA). Sagði forsetinn að með sendingum sinum hvettu Bandarikjamenn til ofbeldis- beitingar á N-lrlandi. Þetta er I fyrsta sinn sem Ford fordæmir opinberlega ólöglegar aðgerðir og hefndarverk á N-Irlandi. trski forsætisráðherrann hefur haldiö á loft þeirri von sinni, að hann geti, meðan á heimsókn sinni I Bandarlkj- unum standi, fengið stjðrn- völd þar til að taka harðar á stuöningsmönnum IRA I Bandarikjunum. Afvopnunarráðstefnan: Tillöqur USA oa USSR loðnar Bretar vilja víðtækari bönn REUTER, Genf. Brezku fulltrú- arnir á afvopnunarráðstefnunni I Genf sögðu I gær, að uppkast Bandarlkjamanna og Sovét- manna að samningi um bann við veðurfarslegum hernaði gæfi góðan grundvöll undir viðræður, en væri of óákveðið I sumum atriðum. Mark Allen, einn fulltrúa Breta, sagði að uppkastið yrði að vikka og vérða nákvæmara, þar sem það gerðu nú aðeins ráð fyrir banni á hernaðarlegri notkun um- hverfisbreytinga. — Ef einhver aðgerð er óvin- veitt og árásarkennd, finnst okk- ur ekki skipta máli, hvort framkvæmendur hennar eru I einkennisbúningi eða ekki, sagði Allen. Brezku fulltrúarnir sáu heldur ekki ástæðu til að greina á milli opinberra og dulinna styrjalda og settu fram þá skoðun sina, að ráð- stefnan ætti að banna. ailar árás- '4 arkenndar veðurfarsbreytingar. Töldu Bretarnir, að hún ætti að banna rikjum að eiga við um- hverfi I hernaðarlegum tilgangi, svo og að ráðast á óvini með stormum, flóðum, jarðskjálftum eða öðrum veðra- og umhverfis- vopnum, sem gerð væru af manna höndum. Sovézki fulltrúinn, Alexei Rocschin, hvatti ráðstefnuna til að flýta banni við kjarnorku- vopnatilraunum. Sagði hann full- trúa sumra rikja nota tilbúna erfiðleika á eftirliti sem afsökun fyrir þvi að standa I vegi fyrir samkomulagi. Bað hann fulltrúa á ráðstefnunni um að nota áhrifa- mátt sinn til að fá öll kjarnorku- löndin að samningaborðinu. Klna og Frakkland, sem bæði eiga kjarnorkuvopn, taka ekki þátt I ráðstefnunni. Portúgal: Fimmtún milljón dollara lón fró USA Reuter, Washington. Banda- rikin lánuðu I gær Portúgal fimmtán milljónir dollara til kaupa á fimmtlu þúsund tonnum af hrlsgrjónum. Lánið er hluti af tvö hundr- uð og fjörutlu milljón dollara aðstoðaráætlun, sem nær yf- ir næstu átján mánuði. Fjármálaráðherra Portúgals, Francisco Salgado Zenha, sagði i þakkarræðu sinni, þegar samningur um lánið var undirritaður I gær, að það væri viðurkenning Banda- rikjanna á óyenjulegum þörfum Portúgals, meðan það þróaðist til lýðræðis- stjórnar. — Portúgal er greinilega á leið til fulls frelsis og algers lýðræðis, sagði Senha einnig I ræðu sinni. Brezkir hundar: Éta betur en menn Reuter, London. Hundar i Bretlandi fá meiri fæðu og nær- ingarrikari en fólk I vanþróuðum löndum, eftir þvl sem einn af leiðandi næringarfræðingum Breta sagði I gær. — Gæludýr eru I samkeppni við mannkynið um matvæli, segir næringarfræðingurinn, dr. Robie Fears, I viðtali við tlmaritið „New Scientist”, þar sem hann fjallaði um vandamál það sem gæludýr eru orðin. Fólk I fátækari löndum verald- ar etur um 181 klló af korni á ári, sem er mjög áþekkt áti meðal- stórs hunds I Bretlandi. — Þar að auki er fæða hundanna mun næringarrlkari. Kettir og hundar I Bretlandi éta fyrir á milli 300 og 400 milljón sterlingspunda á ári. Til saman- burðar má benda á að þróuð rlki dreifa árlega matvælum fyrir um 600 milljónir sterlingpunda til rlkja þar sem hungur rlkir. — Þegar talað er um matvæla- neyzlu, er ekki rétt að segja, að fjöldinn I heiminum sé 4000 milljónir, þvi hann er I raun 19.000 milljónir. Þar af 15.000 milljónir gæludýra og húsdýra mannsins, sagði dr. Fears I lokin og benti á að vandamal þetta væri erfitt viðureignar. Til dæmis hefðu Kinverjar tekið þann kost að banna hundahald vegna fæðu- neyzlu þeirra. ■ *te ! Hótar að brenna sig, ef fjölskyldan kemur ekki Reuter, Stokkhólmi. Rúmlega fimmtugur Pólverji, Rysard Fota, sem búsettur er I Svlþjóð, hótaði í gær aö brenna sig til bana fyrir utan pólska sendi- ráöið i Stokkhólmi, ef eiginkonu hans og þremur börnum yröi ekki heimilað aö flytjast til hans frá Póllandi. Fota, sem i gær hóf hungur- verkfall fyrir framan sendi- ráðið, sagði að eiginkonu hans, Jadwigu, og börnum þeirra þremur, á aldrinum þrettán til tuttugu og tveggja ára, væri haldið I Póllandi, og fengju þau ekki vegabréfaáskrift til aö flytjast á brott. . — Ef hungurverkfallið nægir ekki til að þau fái heimild til að flytja til mih, mun ég fremja sjálfsmorð með þvl að kveikja I mér klukkan 15.00 á laugardag, sagði Fota. — Abyrgðin er pólskra stjómvalda, sem ekki hafa stað- ið við ákvæði Heisinkisáttmál- ans um endursameiningu fjöl- skyldna, sagöi Rysard Fota enn fremur. Sænska utanríkisráöuneytið sagði i gær, að sérstakt sam- band hefði ekki verið haft viö pólsk stjórnvöld vegna fjöl- skyldu Fota, en hins vegar væri hún eitt af tuttugu sérslaklega árföandi tilvikum, sem Svlþjóð heföi hvatt pólsku ríkisstjórnina til aö veita jákvæða afgreiðslu. Afdrifarik vonbrigði Reuter/Belgrad. Tuttugu og sjö ára gömul júgóslavnesk kona myrti nunnu með hamri, og stökk siðan sjálf ofan af þaki klausturs eins I nágrenni Zagreb I Júgóslavlu, eftir að hafa veriö úrskurðuð óhæf til þess að gerast nunna sjálf. Konan, Ankica Gasic, hafði dvalizt tveggja ára reynslu tima I klaustrinu. Þegar ein af nunnum klaustursins, systir Milica Maluzan, skýrði henni frá þvi aö hún gæti ekki gerzt nunna, greip Ankica hamar- inn og drap systur Milicu. Ankica dvelur nú I sjúkra- húsi og er ekki hugað llf eftir falliö af klaustursþakinu, en það var um sextán metra hátt. Flóttamenn Reuter/Lusaka. Dagblað I Zambiu hefur skýrt frá þvl, að á hverjum degi komi mikill fjöldi flóttamanna frá Angóla inn I landið vestanvert. Marg- ir þeirra eru sagðir fara yfir landamæraárnar, sem nú eru I miklum vexti, og rói þeir þá yfir I litlum bátum. Dagblaöið skýrir frá þvi, aö héraösstjórinn i Kalabo, sem er um 45 kilómetra frá landa- mærum Angóla, hafi farið fram á að flóttamennirnir veröi fluttir með flugvélum til annarra héraða, þar sem einu flóttamannabúðir héraðsins séu ailt of smáar til að taka við straumnum. Fyrr I þessum mánuði sagði innanríkisráðherra Zamblu, Aaron Milner, að fjörutlu og fimm þúsund flóttamenn frá Angóla væru þegar komnir til landsins. Litningarannsóknum fleygir fram Reuter/London. Visinda- mönnum I Bandarlkjunum og Evrópu hefur tekizt aö finna leið til að stjórna lifandi efni og hafa með þvl opnað dyrnar að baráttu við ýmsa sjúk- dóma, sem hingað til hafa ver- ið ólæknanlegir. Rannsóknir þessara vls- indamanna hafa einkum beinzt að litningunum I lifandi efni, en þeir eru ákvarðandi fyrir gerð og vöxt plantna og dýra. Hafa visindamennirnir fundið aðferö til að „fram- leiða” litninga, með þvl að skera þá úr lifandi efni og koma þeim I bakterlur, sem skipta sér mun hraöar en frumur dýra- og plöntuvefja. Vonast vlsindamenn til að með þessu móti náist rann- sóknaefni, sem leitt gæti til aukins skilnings á mótstöðu- kerfum vefja gegn sjúkdóm- um, og þá hvernig hægt er að örva þau. HliraSHORNA ^írÁ (viilli Gamalt morðmál tekið upp á ný Rcu ter/Trenton. Rubin (Hurricane) Carter, sem eitt sinn keppti um heimsmeist- aratign I millivigt I hnefaleik- um, hefur fengið þvi fram- gengt, aö mál hans verði tekið fyrir rétt á ný en hann var dæmdur I lifstlðarfangelsi fyrir morð áriö 1966. Hæstiréttur New Jersey hef- ur nú úrskurðað, að sönnunar- gögn, sem bætt hefðu málstað Carters, hafi verið haldið frá réttarhöldunum yfir honum og John Artis, sem ákæröur var fyrir að vera I vitorði með Carter. Hæstiréttur úrskurð- aði einnig að dómstóllinn hefði veriö haldinn fordómum. Carter og Artis hafa barizt við að sanna sakleysi sitt i niu ár, eða allt frá því þeir voru fangelsaðir. Lögfræðingar Carters og Artis reyna nú að fá þá látna lausa gegn tryggingu, en fram að þessu hafa þei'r átt litla von til að verða frjálsir menn fyrr en árið 1994.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.