Tíminn - 19.03.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 19. marz 1976
beldi i ýmsum myndum er orðið
daglegt brauð og sprengjutil-
ræði á hverju götuhomi. I þá
daga var þar heil Amerlkuný-
lenda, og keiluspil spilað i Hyde
Park á hverjum sunnudags-
morgni. En nú eru félagar henn-
ar allir farnir, með einni eða
tveimur undantekningum. Þeir
hafa, sem svo margir Englend-
ingar reyndar lika, flúið skatt-
ana, sem hún segir að séu væg-
ast sagt geigvænlegir. Samt
segist hún kunna vel við sig i
London. England sé ennþá in-
dælt, og þrátt fyrir sprengjurn-
ar og allt það finnist henni ör-
uggara þarna en i New York. —
En hvað maður endist lengi i
viðbót, er ekki gott að segja”.
Upprunalega ætlaði Lee að
verða ballettdansmær og lagði
stund á ballett i mörg ár. Hins
vegar lærði hún aldrei að leika.
Hún var sextán ára, þegar hún
fékk sitt fyrsta hlutverk. Það
var i sumarleikhúsi, og eftir það
fékk hún nokkur leiktilboð (m.a.
mörg frá sjónvarpsstöðvum) og
tók einu á Broadway. Hún hóf
nám i College 1954, en hætti eftir
þrjá mánuði til að geta helgað
sig leiklistinni.
Frumraun sina sem kvik-
myndaleikkona þreytti hún árið
1957 i kvikmyndinni ,,A face in
the crowd”. 1 hlutverki sinu i
þessari mynd vakti hún mikla
hrifningu. Hún fékk strax tilboð
frá Hollywood, og eftir það var
hún á grænni grein. Siðan þá
hefur hún leikið i fjölda mynda
og yfirleitt getið sér góðan orðs-
tir fyrir þær. Sérstaklega þó
sjónvarpsmyndir. Ekki alls fyr-
ir löngu lék hún aðalhlutverkið i
sjónvarpsleikriti i sjö þáttum,
sem fjallar um lif Jennyar,
móður W. Churchills. Fyrir
túlkun sina á þessu hlutverki á-
vann hún sér almenna hylli
sjónvarpsáhorfenda i Englandi,
ogveittu Bretar henni þrjár við-
urkenningar fyrir framúrskar-
andi leik. Nýlega lauk hún við
að leika i kvikmynd, þar sem
mótleikari hennar var Gregory
Peck. Myndin, sem væntanleg
er á markaðinn siðar á þessu
ári, heitir „Fyrirboðinn” (The
Omena) og er víst ein mesta
hrollvekja, sem gerð hefur ver-
ið. Særingamaðurinn (The Ex-
orcist), sem nýlega var sýnd
hérlendis, á m.a.s. að vera litil-
fjörleg i samanburði við hana.
Framleiðendurnir eru 20th
Century Fox, og hafa þeir i
hyggju að halda efnisþræðinum
leyndum eftir föngum, þar til
myndin verður frumsýnd. En i
stórum dráttum er myndin um
Lee Remick: Ég held ég megi teljast heppin
Lee Remick er ljóshærð og blá-
eyg fegurðardis. Hún er nú orð-
in fertug, og er ekki hægt að
segja annað en að hún beri ald-
urinn vel. Hún fæddist i Boston,
ólst upp i New York, en býr nú i
London ásamt núverandi manni
sinum, tveimur dætrum frá
fyrra hjónabandi og tikinni
Daisy. Þegar hún settist að i
London, var hún frá sér numin
yfir kyrrðinni, sem henni fannst
liggja i loftinu, og örygginu,
sem hvildi yfirumhverfinu. Hún
sagðist óhrædd geta sent ellefu
ara döttur sina i leigubil hvert
sem hún vildi, án þess að þurfa
að vera að sálast úr áhyggjun
um hvort húnyrði brytjuð i spað
á leiðinni. Áður en Lee fluttist til
Englands, hafði hún alið allan
sinn aldur i New York og kvað
það afar taugatrekkjandi. —
Það er svo ofsafengin borg, að
maður finnur grimmdina og
illskuna alls staðar.
Þetta sagði hún fyrir sex ár-
um. Nú verður hún að viður-
kenna, að London hefur breytzt
siðan hún kom þangað fyrst. Of-
myndarleg og auðug amerisk
sendiherrahjón i London, sem
eignast dreng. Barnið er
Anti-Kristur, og er kominn til að
færa hörmungar yfir mannfólk-
ið.
Myndir, sem Lee Remick er
þekktust fyrir, eru: Days of
wines and roses, Anatomy of a
murderer og Sanctuary.
Lee telur sig fyrst og fremst
vera húsmóður, en starf sitt
sem leikkonu litur hún aðeins á
sem aukastarf. Hún segist ann-
ast alla eldamennsku á heimili
sinu sjálf og sjá að mestu leyti
um garðinn. Hún kveðst vera
hamingjusöm, á mann og börn
sem elska hana, og það sem bezt
er, hún er heilsuhraust. Það
hleðst upp hjá henni póstur,
bæði frá aðdáendum sem flestir
skrifa til að láta i ljós hrifningu
yfir „Jennie”, og einnig fær hún
send mörg kvikmyndahandrit.
,,En það eru bara svo fá hlut-
verk skrifuð fyrir konur nú til
dags. Hvað sem þvi liður, þá má
alls ekki taka þetta þannig, að
égséaðkvarta, — þviég held ég
megi teljast heppin”.
A myndunum sjáum við Lee i
hlutverki sinu i „A face in the
crowd” og með Gregory Peck
og Harvey Stevens i „The Om-
en”.
DENNI
DÆMALAUSI
— Komdu með öll handklæðin,
sem þú getur fundið. Ég má ekki
vera að þvi að útskýra þetta nán-
ar núna.