Tíminn - 19.03.1976, Page 10
10
TÍMINN
Föstudagur 19. marz 1976
ATÓMSTÖÐIN FYRIR
AUSTAN FJALL
Leikfélögin Hverageröi
og Selfossi.
Atomstöðin
eftir Halldór Laxness.
Frumsýning.
Leikstjóri:
Steinunn Jóhannesdóttir
Leikmynd:
Gylfi Gíslason
Lcikfélag Selfoss og Leikfdag
Hveragerðis frumsýndu á
þriöjudagskvöldið Atomstöðina
eftir Halldór Laxness, þá leik-
gerð skáldsögunnar, sem á sín-
um tima var sýnd I Iðnó, en þá
með nokkrum breytingum, sem
geröar voru með leyfi höfundar.
Leikgerð L.R. var útbúin af
þeim Sveini Einarssyni og Þor-
steini Gunnarssyni á sinum
tima.
Atomstöðin kom út árið 1948
og var þá framlag skáldsins til
háværrar baráttu um stöðu Is-
lands i heimsmynd stórveld-
anna báðum megin Atlantshafs-
ins og vakti bókin gifurlega at-
hygli. Nú þegar farið er aö fyrn-
ast yfir margt það sem ofarlega
var á baugi fyrir næstum þvi
þrem áratugum, er fróölegt að
virða fyrir sér stöðu verksins,
þá kemur i ljós að það heldur
sinu fulla gildi, þvi ekkert hefur
i rauninni breytzt. Svo nærri
liggur þetta makalausa skáld-
verk sjálfri þjóðarmyndinni.
Atomstöðin hentar fremur illa
til leikflutnings, hún er skáld-
saga og skrifuð sem slik, en ekki
leikrit, en á sviöinu fer leikurinn
fram i 6 þáttum og einum 20 at-
riðum. Milli þátta er slökkt og
menn hlaupa um i rökkrinu og
færa til sviðsmuni og gripi, og i
svoleiðis blindravinnu truflast
oft sá unaður er er var i salnum
áður en ljósin slokknuðu og
flutningarnir hófust. Manni
varö að orði þegar Atomstööin
var I Iðnó, aö liklega væri auð-
veldara fyrir sendibilastöð aö
setja upp svona verk en fyrir
leikfélag. Samt á leikgeröin
fullan rétt á sér, hinn glæsilegi
texti megnar aö bera uppi hina
20 „sólmyrkva”, — leikbiöina
milli atriða.
Nú vikjum þá að uppfærslu
austanfjallsmanna undir stjórn
Steinunnar Jóhannesdóttur. I
stuttu máli þá tókst þetta stór-
vel, og ég hefi ekki séð betri
sýningu hjá áhugafólki, ólærð-
um leikurum. Auðvitað má
finna að einu og öðru eins og
gengur, en það má lika alltaf.
Allt var hnitmiðað, og leiktjöld
Gylfa Gislasonar voru með
þeim skemmtilegustu og frum-
Gamlárskvöld hjá organistanum
Sigrlður Karlsdóttir og Valgarð Runólfsson I hlutverki LJglu oe
Búa Árland
legustu sem sést hafa. Léttleiki
og hugkvæmni var yfir öllu, en
byggt á frumhönnun þeirra er
fyrstir settu upp leikinn.
Auðvitað hafa stjórnandi og
leikmyndasmiður haft sýningu
Leikfélags Reykjavikur til fyr-
irmyndar, enda sjálfsagt, en yf-
ir öllu var nú meiri léttleiki,og
er þá átt við umsvif og smámuni
kannski fremur en sjálfan leik-
inn. Einn þátt vil ég þó gagn-
rýna sérstaklega, en það er inn-
koma bændanna frá kirkju-
smiðinni. Þar er ofleikur mikill,
og fylleriið heima hjá organist-
anum er dálitið yfirdrifið. Þá
sýnist manni að jarðarförinni
hefði máttsleppa, þótt þar verði
auðvitað að fara að ráðum
skáldsins. Afhending pening-
anna til að kaupa minn mann
lausan hefði verið ágætur endir.
Um frammistöðu einstakra
leikenda verður ekki fjallað hér.
Hún var ótrúlega góð. Hægja
má ögn á framsögninni hjá
sumum, en vera kann að þetta
fari sjálfkrafa af hjá fólkinu,
þegar frumsýningarspennunni
er lokið. Leikhljóð voru mjög
góð og faglega unnin.
Við sem sáum frumsýninguna
á Atomstöðinni fyrir austan
fjall, nutum ekki einasta góðrar
sýningar heldur hlutum við
einnig að sannfærast um aukið
gildi leiklistar áhugaleikhús-
anna. Það virðist annast auð-
sætt að hollt er fyrir alla að hóa
saman atvinnulitlu fólki milli
vertiða og setja upp leiksýningu
fyrir fólkið. Þeir, sem að sýn-
ingunum vinna, hafa oftast af
þvi mikla ánægju og áhorfendur
i fásinninu eru þakklátir, þrátt
fyrir annars misjafnan árangur
þeirra sem á sviðinu standa.
Það sem við sáum á Selfossi
sannfærir okkur um að það er
meira en hugsanlegt að unnt er
að setja upp góðar sýningar svo
að segja hvar sem er, með á-
hugafólki einvörðungu.
Mjög illa er þó búið að leiklist
i mörgum sveitarfélögum, og
virðist timabært að þau mál séu
tekin til rækilegrar endurskoð-
unar.
Ein leiðin kynni að vera sú, að
áhugafólk frá nágrannabæjum
tæki upp samstarf sin I milli
eins og gert hefur verið i Hvera-
gerði og á Selfossi.
Ekki er þó hægt að segja, að
vel sé að þessum tveim leikfé-
lögum búið. Að þvi er sagt er i
leikskrá er á fjárhagsáætlun
Selfosshrepps gert ráð fyrir 100
þúsund króna fjárveitingu árið
1976 til Leikfélags Selfoss. Leik-
félagið I Hveragerði hlaut engan
styrk úr sveitarsjóði árið 1975 og
beiðni félagsins um fjárstuðning
frá sveitarfélaginu fyrir 1976 er
enn óafgreidd.
Á Selfossi munu framkvæmd-
ir vera hafnar á húsi sem hentar
m.a. til leikstarfsemi, en i
Hveragerði mun vera mjög
bágborin aðstaða til leiksýn-
inga.
Það er sjálfsagt i mörg horn
að lita hjá sveitarfélögum, en ef
árangur leikfélaganna er ávallt
i likingu við það sem við sáum á
Selfossi, þá virðist það ekki vera
nein goðgá að efla starf þessara
ágætu félaga.
Leikhópurinn
Jónas Guðmundsson