Tíminn - 06.04.1976, Side 13

Tíminn - 06.04.1976, Side 13
Þri&judagur 6. april 1976. TÍMINN 13 um sem hún kynni að þurfa að beygja sig fyrir. Þess vegna held ég að áætlun hennar um að skipta um nafn hafi ekki átt rót sina að rekja til vanþóknunar eða fyrirlitningu á Hearstveldinu, heldur öllu heldur verið mótmæli gegn „erfingjatitl- um” og þeim kvöðum og marg- vislegu vonum sem þvi tengdust. Flestir fjölskyldumeðlimir sættu sig við hlutverk sitt sem erfingjar og lifðu innan þess ramma. En það gerði Patty alls ekki. Hún barðist gegn þvi, einkum og sér i lagi hvað snerti foreldra hennar. XXX Þegar ég hitti Patty fyrst skild- ist mér að i hennar augum áttu foreldrar hennar ekkert annað en þennan auð. Að undantekinni þeirri óumflýjanlegu vitund að þaú voru Hearstættin. t hennar augum var hlutskipti þeirra ofur hversdagslegt og fáfengilegt. Þau lifðu viðburðasnauðu lifi i algjöru skjóli gegn öllum misviðrum lifs- ins. Ekki var hægt að segja að áhugi þeirra á list eða menningarfyrirbærum væri sannverðugur. Auk þess höfðu þau hjónin enga löngun til þátt- töku i opinberu skemmtanalifi. Þau voru fyrst og fremst Hearst. Patty þoldi þetta alls ekki. For- eldrarnir vildu varðveita gömul forréttindi og hefðir Hearstættar- innar auk þess sem ættarveldið var þeim heilagt. Patty mat þessa umhyggju þeirra litils. Það er nauðsynlegt að fjalla nánar um Hearstveldið og erfða- veldið. Patty þoldi alls ekki þá tilhugsun að ef hún ælist upp sem Hearstþá væri hún kyrrsett á sin- um stað i erfðastiganum og helgi- dóminum. Samt sem áður dáðist hún að afrekum forfeðra sinna. Það var kaldhæðni örlaganna að sérhvern dag var hún minnt á hvort tveggja. A Berkeley heima- vistinni einni mátti sjá fjölda- margar byggingar, sem báru Hearstnafnið, m.a. William Randolph Hearst griskuleikhúsið, og minnismerki um fjölskrúðuga sögu ættmenna hennar. En það voru einnig ýmis merki um nútimann. Viðskipta- tilkynningar frá Hearstveldinu fengum við oft með póstinum. Ýmis skjöl, sem við áttum að undirrita, mánaðarlega fram- færsluupphæð, sem kom raunar ekki frá fjölskyldunni heldur bókhaldsmanni samsteypunnar i Los Angeles. Þá má ekki gleyma þeim aðvörunum og varnaðar- orðum sem hún heyrði stöðugt: Þér verður rænt út á nafnið, sagði faðir hennar oft. Hann átti þá við hugsanlega mannræningja. Randy ólst upp á tima Lind- bergs og hafði tvo lifverði. Þess vegna var þessi hætta mjög raun- veruleg i hans augum. En Patty var annarrar skoðunar. Hún gerði grin að þessum barlómi og sagði við foreldra sina umönnun þeirra gengi út i öfgar og væri móðursýkisleg. — Bilatryggingin min verður að hljóða upp á tvær milljónir dala af þvi ég er af Hearstættinni, sagði hún og andvarpaði. Þessar deilur voru þó smávægilegar miðað við aðra þá pressu sem Patty mátti búa við. Hún lifði þrátt fyrir ailt i miðju Hearst- veldinu og skapaði sér þar orðstir. Patty bar i raun og veru ein systranna, hita og þunga af for- eldrum sinum. Einkum batt faðir hennar miklar vonir við hana. Catherine var ákaflega veik þeg- ar hún var á barnsaldri og varð veikluleg og heilsuveil á fullorð- insárunum. Hún einbeitti sér að trúarlegum málefnum og starfi fyrir kirkjuleg málefni. Gina var »ekki dugleg við nám sitt. Það var ekki langt siðan hún var farin að sýna áhuga fyrir einhvers konar starfsvali. Anne var hálfgert vandræðabarn um þetta leyti. Vicky var einfaldlega of ung til þess að koma til greina. Hearst- hjónin áttu engan son. Vegna skapgerðar sinnar, styrks og gáfnafars virtist Patty þess vegna liklegust til þess að framfylgja fjölskylduhefðinni. Auk þessara eiginleika hafði hún skapeinkenni Randolphs gamla Hearst, seiglu hans, sjálfstæöi og baráttuvilja. Allt varð þetta til Framhald á bls. 23 Frú Dorothy Irving með Njálu, sem hún fékk að gjöf hér, og spreytir sig nú við á islen/.ku. — Tímamynd Gunnar. Mig langar til að halda áfram að þekkja íslendinga — A þriðja degi eftir að við hjón- in komum hingað til lands, fór- um við til Þingvalla. Og fyrsta sumarið ferðaðist ég um Suður- land og kom m.a. á sögustaði Njálu, en hana hafði ég lesið á ensku áður en við fórum að heiman. Veðrið var fagurt, og þegar við stóðum og horfðum yfir Fljótshliðina, þá var auð- skilið að Gunnar á Hliðarenda hefði ekki viljað fara burt og mælt sfn frægu orð. Þetta sagði frú Dorothy Irv- ing, eiginkona bandariska ambassadorsins á Islandi, i við- tali við Timann, en þau hjónin fara héðan 21. april til Washing- ton.þarsem Irving ambassador tekur við starfi aðstoðarutan- rikisráðherra, og mun hann fjallaum hafréttar-, umhverfis- og orkumál. Hálft fjórða ár er nú liðið frá þvi sendiherrahjónin banda- risku komu hingað til lands, og Dorothy Irving lýsir mikilli ánægju sinni með dvöl sina hér. — Margt fólk hér hefur frætt mig um landið og sögu þess, og fyrir það er ég mjög þakklát. Við höfum ferðazt mikið, og þá oft á tíðum haft tjald með okkur. Ég hef oft heimsótt Þjóðminja- safnið, Arnastofnun og gaman var einnig að koma i byggða- safnið á Isafirði og i safnið á Skógum,þar sem safnvörðurinn lék fyrir okkur á langspil. Dorothy Irving og maður hennar eru frá Rhode Island, minnsta riki i Bandarikjunum. Þau voru skólasystkin i menntaskóla i heimabæ þeirra Providence, sem er höfuðborg rikisins. Dorothy lauk B.A. prófi við Mount Holyoke College og siðan M ,A. prófi i kennslu ungra barna við Columbia háskólann i New York. Maður hennar lagði hinsvegar stund á stjórnmála- fræði og lauk meistaragráðu sinni i Fletcher School of Law and Diplomacy i Massachus- setts. Frú Dorothy hefur lagt stund á bamakennslu, þegar þau hjónin hafa verið búsett i Bandarikjunum. Maður hennar hefur verið i utanrikisþjónust- unni i yfir tuttugu ár, og hafa þau hjónin yfirleittdvalizt á vixl erlendis og i Bandarikjunum. — Ég hef komið i skóla hér, segir frú Irving, — og fylgzt með kennslu, bæði i Reykjavik og uppi i sveit. Mér finnst kennslan og andinn i skólastarfinu vera svipaður og heima, en hér eins og heima, skiptir mestu að kennarinn sé góður. Ég hef hitt marga frábæra kennara hér. Frú Irving talar góða is- lenzku, og það kemur á daginn, að hún hefur sýnt mikinn áhuga á að læra málið. — Ég hef fengið kennara til að koma og segja mér til, og ég nota segulband til að æfa mig. Mér þykir gott að lesa barnabækur og t.d. þjóð- sögur i léttum útgáfum ætluðum börnum og unglingum. Ég hef einnig reynt að lesa þyngri bæk- ur, og þá hjálpa vinir minir mér oft og lesa með mér. Þannig hef ég getað kynnzt erfiðari bók- menntum svolitið, m.a. lesiö Fjalla-Eyvind, hluta af verkum Sigurðar Nordal og ljóð eftir ýmis skáld. Og i hillu i stofunni sjáum við 1 túninu heima eftir Halldór Laxness, sem frú Irving segist ekki hafa fulllokið viö að lesa ennþá. — Og svo koma börnin hér á Laufásveginum stundum til min og spjalla viðmig. Það er alveg fyrirtaks málakennsla. Ég er ó- feimnari við þau en fullorðna, og þau eru ekkert rög að leið- rétta mig. — Einn litill snáði úr nágrenninu segir alltaf við mig, þú átt að se gja errrrr frú Irving, en ekki ar. Þá hef ég starfað i ýmsum fé- lagasamtökum kvenna, svo sem Rauða krossinum, og starfa einu sinni i viku með þeim við bókavagninn á Borgarspitalan- um. Það er ánægjulegt og gefur mér tækifæri til að hitta fólk. Ég hef einnig verið með i Vinahjálp og samtökum Rotarykvenna, en með þeim gróðursetti ég meira að segja tré i Skorradal i Borgarfirði og það er ánægjuleg tilfinning.nú þegar ég er að fara héðan, að vita að hér vaxi tré, sem ég tók þátt i að gróðursetja. Einnig hef ég starfað nokkuð með Kvenstúdentafélaginu, en i Bandarikjunum er ég i sams- konar félagi. Forystukonur i Kvenréttindafélagi Islands og Kvenfélagasambandinu hafa frætt mig um starfsemi þessara samtaka og lif kvenna á Islandi. Irving hjónin eiga þrjú upp- komin börn, tvær dætur og einn son, sem hafa dvalizt hér i leyf- um. Þau yngri unnu sitt sumar- ið hvort i frystihúsinu á Kirkju- sandi, yngsta dóttirin við flök- un, snyrtingu og pökkun, en son- urinn við færiband. Þau höfðu aldrei unnið i verksmiðju áður, þótt þau hafi átt þvi að venjast að vinna i frium. Sextán Bandarikjamenn starfa viö sendiráðiö hér, og sautján tslendingar. Við Berg- staðastræti er litill skóli fyrir börn bandariska starfsliðsins, ’og þar eru yfirleitt einhver is- lenzk börn lika. Náin samskipti eru milli Sendiráðs Bandarikj- anna og Varnarliðsins á Kefla- vikurflugvelli, þvi Irving am- bassador er æðsti starfsmaður Bandarikjastjórnar hér á landi og fulltrúi forseta Bandarikj- anna hér. Nokkur samgangur er við starfsfólk annarra sendiráöa, en mest kveðst frú Irving um- gangast Islendinga. — Og mig langar til að halda áfram að þekkja þá. Margir Is- lendingar eru búsettir i Washington, og þar er haldið þorrablót árlega, ég hef þegar tilkynnt að mig langi til að taka þátt i þvi næsta vetur. Dorothy Irving hefur mikinn áhuga á sögu tslands. Hún hefur einnig kynntsér islenzka mvnd- list með þvi að sækja söfn og sýningar. Það hvarflar að manni, hvort svo áhugasamri konu með fjöl- breytt áhugamál eins og Dorothy Irving finnist ekki frelsi sitt til að sinna eigin hugðarefnum skert af skyldum þeim, sem fylgja stöðu hennar sem eiginkonu manns i á- byrgðarstöðu. — Ég hef að visu skyldum að gégna, en mér hefur verið ljúft að uppfylla þær og það hefur verið mjög ánægjulegt að búa með ólikum þjóðum og kynnast lifi þeirra. — En hvergi erlendis hefur mér fundizt ég eiga eins mikið heima og hér á tslandi. Fólkið hér er sérstaklega elskulegt. Og mig hefði langaö mikið til að vera hér a.m.k. eitt sumar i við- bót.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.