Tíminn - 06.04.1976, Side 16
16
TÍMINN
Þri&judagur 6. april 1976.
r
A FLOTTA FRA
ASTINNI
Eftir Rona Randall
25
-
C_J
ættuð þér sem læknir að vita. Hvað haldið þér að við
fáum marga sjúklinga þess vegna?
— En hvað vitið þér um ást? spurði hún. — i yðar
augum er ástin bara líff ræðilegt atriði. Þér haf ið ekkert
hjarta!
Þögnin varð köld. Hún fann ekki hvernig hann stífnaði
og sá ekki beisklegt bros hans í myrkrinu.
— Sé þannig, hlýt ég að vera tilvalinn trúnaðarmaður.
Hjartalaus manneskja hlytur að varðveita öll leyndar-
mál.
Bíllinn beygði inn hliðið að sjúkrahúsinu og þá rankaði
Myra við sér. Þetta hafði virzt svo stutt ökuferð, en nú
þegar henni var lokið, leið henni betur. Þessi maður
hafði ekki boðið henni samúð sína, en þó hafði hún getað
létt á hjarta sínu. Hún myndi ekki gráta meira, hún gæti
meira að segja hugsað til þessa f undar þeirra Brents, án
þess að fá sting i hjartað.
— Ég vona bara, að hann hafi ekki skilið neitt, sagði
hún skelfd.
— Eigið þér við Brent Taylor? Ég mundi ekki hafa
áhyggjur af því. Þér lékuð hlutverk yðar með stakri
prýði.
I upplýstri forstofunni leit hún snöggt á hann. Það var
róandi svipur í augum hans, þrátt fyrir kuldalega rödd-
ina. Hann var þá ekki að gera gys að henni. Ösjálfrétt
rétti hún fram höndina.
— Takk, sagði hún aðeins.
— Fyrir að hlusta á yður?
— Meira en það. Fyrir að hjálpa mér.
— Hvernig hef ég hjálpað?
Það undarlega var, að hún vissi það ekki. Hann brosti
og sagði: — Ég þarf bara að líta inn til sjúklings, en lof ið
mér svo að fylgja yður heim. Hann hafði beðið bílinn að
bíða og hún mótmælti ekki.
Þau gengu eftir ganginum eins og alltaf, f ann Mark til
stolts, þegar hann kom hér inn. Það var sérstakt and-
rúmsloft á St. Georges sjúkrahúsinu, andrúmsloft, sem
hann hafði ekki fundið á neinu öðru sjúkrahúsi —
persónulegt, heimilislegt andrúmsloft, sem hafði áhrif á
allt starfsfólkið. Hann sá það speglast í andliti Myru og
hjarta hans sló eilítið hraðar.
— Strax? spurði hann lágt. — Finnurðu það strax?
Hún skildi, hvað hann átti við. — Já, svaraði hún. — Ég
finn það. Hvað er það við þetta sjúkrahús, sem hefur
svona áhrif á mann?
Hann horfði lengi á hana. Andlit hennar var fölt, en
ekki sáust nein merki um tár lengur. Augun voru róleg og
falleg, hugsaði hann, munnurinn hlýlegur og vel lagaður.
Borsandi svaraði hann: — Það er þá rúm fyrir meira en
Brent Taylor i hjarta yðar. Min kæra, þetta er langt
skref á leiðinni til lækningar.
Hún leit upp og hló. Hann var óvenju réttsýnn af
hjartalausum manni að vera. Það var ekki rúm fyrir
annan mann en Brent í hjarta hennar, en þar gat verið
rúm fyrir hlut, stað, minnismerki úr steini, reist til að
hjálpa fólki í þjáningum þess. St. Georges sjúkrahúsið
var bjarghringur hennar og þessi maður hafði skilið það.
Það heyrðist hljóð ofan af næstu hæð. — Síðan hlaup-
andi fótatak niður stigann. Það var Friar hjúkrunar-
kona, sem kom og andlit hennar var fölt af æsingi.
— Dr. Lowell — getið þér komið strax. Það er Jósep
gamli — það hefur orðið slys. Alvarlegt slys!
11. kaf li
Jósepgamli lá grafkyrr. Andlit hans var grátt og á því
voru Ijótar, blárauðar rispur. Hann andaði óreglulega og
lá í undarlegum stellingum.
— Hann reyndi að komast út um gluggann, út í bruna-
stigann, sagði h júkrunarkonan. — Hann var svo órólegur
allt kvöldið, hélt því fram, að hann væri nógu frískur til
að útskrifast og hefði fengið nóg af góðgerðastarfsem-
inni hérna. Þér vitið, hvernig hann getur talað, lækn-
ir...
— Já, já, greip Mark óþolinmóður fram í og hendur
hans voru þegar farnar að rannsaka manninn í rúminu.
— Segið mér nákvæmlega, hvað kom fyrir og hvað hann
gerði.
— Hann ætlaði að fara niður brunastigann. Ég skrapp
fram andartakog þá fór hann út um gluggann. Svo datt
hann, niður á járngrindina og það er af því, sem hann er
svona í andlitinu. Við ókum honum á röntgendeildina og
röntgenhjúkrunarkonan getur sagt yður....
Röntgenhjúkrunarkonan kom með hraði inn í sömu
andrá og tók við útskýringunum.
G
E
I
R
I
^HefurykkurennVvið höfum aðeins
Hvað meö þessa ekkitekiztaö llitinn mannafla i norðri,
uppreisnarmenn finna út hvar J og Fria drottning vill i
Hafðu geimskip
tiibúið á morgun
Barin, ég vil tala
sjálfur við Friu
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
ÞRIÐJUDAGUR
6. april
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskrain. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Spjall frá Noregi. Ingólf-
ur Margeirsson flytur.
15.00 Mi°istónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn Sigrún
Björnsdóttir sér um timann.
17.00 Lagið mitt Anne-Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en tólf
ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Likamsrækt skólabarna
Jóhannes Sæmundsson
iþróttakennari flytur fyrra
erindi sitt.
20.00 Lögunga fóiksins. Ragn-
heiður Drífa Steinþórsdóttir
kynnir.
20.50 Frá ýmsum hliðum.
Guðmundur Arni Stefáns-
son sér um þátt fyrir ung-
linga.
21.30 „Dimmalimm kóngs-
dóttir’’ balíettsvita nr. 1 eft-
ir Skúla Iialldórsson.
Sinfóniuhljómsveit Islands
leikur, Páll P. Pálsson
stjórnar.
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins. Dr. Jakob Jóns-
son flytur tólfta erindi sitt:
Spámaðurinn.
22.00 Fréttir. .
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (42).
22.25 Kvöldsagan: „Sá svarti
senuþjófur” ævisaga
Haralds Björnssonar leik-
ara Höfundurinn, Njörður
P. Njarðvik les (2).
22.40 Harmonikulög Franski
harmonikuleikarinn
Aimable leikur ásamt félög-
um sinum.
23.00 A hljóðbergi,,The Home-
coming” (Heimkoman),
leikrit eftir Harold Pinter,
fyrri hluti. 1 aðalhlutverk-
um eru Cyril Cusack, Ian
Holm, Paul Rogers og Vivi-
en Merchant. Leikstjóri:
Peter Háll.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur 6. apríl
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Skólamál Markmið og
lciðir Umræðuþáttur. bátt-
takendur Andri tsaksson,
prófessor, Kári Arnórsson,
skólastjóri, Heimir
Steinson, rektor lýðhá-
skólans i Skálholti, Páll V.
Danielsson, hagdeildar-
stjóri, og Helgi Jónasson,
fræðslustjóri, sem stýrir
umræðum. Stjórn upptöku
Sigurður Sverrir Pálsson.
21.20 Grannvaxni maðurinn
(The Thin Man) Bandarisk
biómynd frá árinu 1933.
Aðalhlutverk William
Powell og Myrna Loy.
Kunnur visindamaður
hverfur á ferðalagi. Dóttir
hans fær fyrrverandi lög-
reglumann, Nick Charles,
til að leita hans. býð. Krist-
mann Eiðsson.
22.50 A leið til lýðræðis?
Heimildarmynd um stjórn-
mála-og efnahagsástand á
Spáni. Rætt við utanrikis-
ráðherrann, Jose Maria de
Areilza, og Jordi Pujol, leið-
toga Katalóniumanna, sem
berjast fyrir sjálfræði.
býðandi og þulur Stefán
Jökulsson.
23.15 Dagskrárlok