Tíminn - 13.04.1976, Page 14
14
TÍMINN
Þriðjudagur 13. april 1976.
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall 31
- ■
— Ég var bara læknastúdent í þá daga. Ég hafði ekki
efni á að kaupa mér föt.
— Jæja, hún hafði þá ef ni á því núna og bætti það upp,
hugsaði hann, svolítið af brýðisamur og var ekki lengur í
vafa um, að það var Taylor, sem hún hélt sér til f yrir. En
hvers vegna ætti hann að vera að hugsa um það? Jaf nvel
þótt henni tækist að vinna manninn aftur, kom það hon-
um ekkert við!
— Ef þú ert jafn kærulaus við hann í kvöld og síðast,
er það stórt skref í áttina, heyrði hann sjálfan sig segja. (
Hún vissi ekki vel, hverju hún átti að svara þessu. Hélt
hann að hún hefði svo litla stjórn á sjálfri sér, að henni
tæk'ist ekki að dylja tilfinningar sínar til Brents fyrir
honum?
— Ertu að ráðleggja mér eða aðvara mig? spurði hún.
— Hvorugt, ástarmál þín koma mér ekki við.
Hann sagði þetta í kæruleysislegum tón, hann reyndi
að sannfæra sjálfan sig um að hann væri kærulaus um
þetta mál. Þess vegna varð honum svolítið hverft við,
þegar hún sagði:
— Mig minnir, að þú hafir sagt, að það væri óhætt að
trúa ókunnugum fyrir leyndarmálum sínum?
— Já, ég sagði það. Hann leit spyrjandi á hana og hún
virti hann fyrir sér með stríðnislegu brosi.
— Var það ekki vegna þess að sá ókunnugi mundi
gleyma öllu saman um leið? Það virðist ekki svo sem þú
hafir gert það.
Hann roðnaði örlítið. Þetta var rétt hjá henni. Sannast
að segja hafði hann varla hugsað um annað en leyndar-
mál hennar. — Ég bið þig afsökunar, sagði hann stíft.
Hún hló lágt, hún hafði gaman af þessum formlegu
orðum. — Það er óþarfi, sagði hún. — Þegar ég er nógu
vitlaus til að segja einhverjum allt, get ég ekki ásakað
hann eftir á f yrir að minna mig á það.
— Það var ekki ætlunín, ég skal aldrei minnast á það
f ramar.
Hann ók upp að húsi f rænku sinnar og hjálpaði Myru út
úr bílnum. Andartak hélt hann um hönd hennar og
skyndilega fann hann blóðið þjóta um æðar sínar. Aldrei
hafði honum f undizt neitt svona hlýtt og lifandi og þessi
hönd, sem hann hélt í sinni.
Hún gekk á undan honum inn. Hún hafði f islétt siffon-
sjal yfir herðunum. Kvöldið var hlýtt og Estelle hafði
lagt á borðið úti á þaksvölunum, þar sem hún hafði heil-
an garð. Hann haf ði oft borðað hérna úti, innan um blóm
og runna í stórum krukkum, þar sem klifurrósir þöktu
veggina og borðið var skreytt með logandi kertum. Það
var ólýsanlega notalegtog Myra saup hveljur, þegar hún
kom þarna út.
— En hvað þetta er stórkostlega fallegt! sagði hún og
andvarpaði.
Estelle kyssti hana á vangann. — Komdu hingað, sagði
hún og dró Myru með sér að veggnum, sem var um-
hverfis garðinn. Fyrir neðan lá París í Ijósaskiptunum
og Signa blikaði eins og silfurborði í Ijósahafinu.
— Þessa sjón man ég svo lengi sem ég lifi, sagði Myra
lágt.
—Ég líka, sagði rödd við hlið hennar og hún sneri sér
snöggt við og stóð augliti til auglitis við Brent. Hún var
alveg róleg. Var það vegna þess að Mark hafði varað
hana við?
— Nei — hún hafði vænzt þess að sjá hann, hún hafði
vonazt til að hitta hann hérna. Ekki vegna þess að hún
elskaði hann, heldur vegna þess að hún varð að tala við
hann. Einhverntíma um kvöldið yrði hún að reyna að
tala við hann í einrúmi. Hún varð að segja honum frá
Jósep gamla, og hver hún hélt að hann væri.
En það var ekki hægt núna, því Justin kom í áttina til
þeirra.
— Elsku Myra, mér verður ókleift að hugsa framar
um þig sem lækni. Þú lítur út eins og gyðja í þessum kjól
— ekki satt, Mark?
— Mér þykir það leitt, en ég hef aldrei hitt gyðju, svo
ég hef engan samanburð.
Justin hló. Hann tók sjalið af Myru og lagði það á stól-
bak.
— Hvað segir þú, Brent? Langar þig ekki til að mála
hana?
Brent forðaðist að líta i augu hennar. Hann var ringl-
aður yfir því sem hann sá. Þessi nýja Myra ögraði hon-
um og fór í taugarnar á honum um leið. Það var eins og
hún hefði skriðið út úr skelinni, eftir að hann yfirgaf
hana. Væri hún ennþá þessi hógværa, lítilláta stúlka,
sem hann hafði þekkt, ef hann hefði ekki svikið hana
vegna Venetiu? Því meira, sem hann hugsaði um það,
þeim mun meira skammaðist hann sín.
Myra rauf hina vandræðalegu þögn hans. — Hann getur
ekki fengið að mála mig, sagði hún glettnislega. — Það
Samt neitar þU; Vverkfræðingari ^
hjálp frá öörum frá jörðunni
Samkvæmt = Y Þaö viljum við
um!
, ég vara
hjálpuðu til i
isamningi höfu,
{ við rétt til að
ekki. En þú Geiri,
þú getur ráöið
niðurlögum þessara
óþokka sjálfur!
—
ÞRIÐJUDAGUR
13. april
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Hugdettur.Lilja Bjarna-
dóttir Nissen flytur frum-
samda þætti.
15.00 MiðdegistónleikarErling
Blöndal Bengtsson og Kjell
Bækkelund leika Sónötu I
a-moll fyrir selló og pianó
op. 36 eftir Edvard Grieg.
Nýja filharmoniusveitin
leikur „Myndbreytingar”,
tónverk fyrir strengjasveit
eftir Richard Strauss, Sir
John Barbirolli stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn Finn-
borg Scheving sér um
timann.
17.00 Lagið mitt. Anne-Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en tólf
ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýsku.
17.50 ’J’ónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Likamsrækt skólabarna.
Jóhannes Sæmundsson
iþróttakennari flytur siðara
erindi sitt.
20.00 Lög unga fólksinsSverrir
Sverrisson kynnir.
20.50 Að skoða og skilgreina
Kristján Guðmundsson sér
um þátt fyrir unglinga.
21.30 „Endurskin úr norðri”,
tónverk fyrir strengjasveit
eftir Jón Leifs. Hljómsveit
Rikisútvarpsins leikur,
Hans Antolitsch stjórnar.
21.50 „Fyrir börn og full-
orðna” Ljóðaflokkur eftir
Ninu Björk Arnadóttur.
Höfundur les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (48).
22.25 Kvöidsagan: „Sá svarti
senuþjófur” ævisaga Har-
alds Björnssonar Höfundur
inn Njörður P. Njarðvik les
(7).
22.45 Harmonikulög- Guðjón
Matthiasson og Harry Jó-
hannesson leika gömlu
dansana.
23.00 A hijóðbergi. „The
Homecoming” (Heimkom-
an), leikrit eftir Harold
Pinter, siðari hluti. 1 aðal-
hlutverkum eru Cyril
Cusack, Ian Holm, Paul Ro-
gers og Vivien Marchant.
Leikstjóri: Peter Hall.
23.55 Fréttir. Dagkrárlok.
rllKiiiilHllnli
Þriðjudagur 13. april
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20 40 Þjóðarskútan Þáttur um
störf alþingis Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson. Stjórn
upptöku Sigurður Sverrir
Pálsson.
21.20 Fjaðrafok. (Horse
Feathers) Bandarisk
gamanmynd frá árinu 1932.
Aðalhlutverk Marx-bræður.
Bræðurnir eru viðriðnir
knattleikslið háskóla eins,
og sýnt erm.a., hvernig þeir
búa sig undir kappleik. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
22.25 Skákeinvigi i sjónvarps-
sal. Sjötta og siðasta ein-
vigisskák stórmeistaranna
Guðmundar Sigurjónssonar
og Friðriks Olafssonar.
Skýringar Guðmundur Arn-
laugsson.
22.55 Dagskrárlok