Fréttablaðið - 16.11.2005, Qupperneq 22
16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR22
Umsjón: nánar á visir.is
Á morgun birtir SÍF uppgjör fyrir
tímabilið júlí til september sem
er fyrsti ársfjórðungur í rekstr-
inum. Fyrirtækinu er spáð meira
en fjögurra milljóna evra tapi,
sem jafngildir um 300 milljóna
króna tapi, og yrði það þá annar
árshlutinn í röð sem SÍF er rekið
með tapi.
Þrátt fyrir að söluvöxtur hafi
verið góður á árinu var verð á laxi
frá Noregi mjög hátt á tímabilinu
eins og raunin var í allt sumar.
Afurðaverð hóf að lækka í sept-
ember og vonast stjórnendur SÍF
til að afurðaverð verði í skikk-
anlegu róli á yfirstandandi árs-
fjórðungi, sem jafnan er bestur á
árinu. ■
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 4.802 +1,03% Fjöldi viðskipta: 428
Velta: 18.590 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
ACTAVIS 44,70 +2,10% ... Bakkavör 45,10 +0,70% ... FL Group
14,80 +0,70% ... Flaga 4,20 +1,20% ... HB Grandi 9,35 +0,00% ...
Íslandsbanki 15,70 +0,60% ... Jarðboranir 22,10 +0,00% ... KB ba-
nki 600,00 +0,80% ... Kögun 55,00 -0,50% ... Landsbankinn 23,50
+0,90% ... Marel 64,00 -0,30% ... SÍF 4,33 -0,90% ... Straumur-
Burðarás 15,50 +3,30% ... Össur 99,00 +1,00%
MESTA HÆKKUN
Hampiðjan +3,62%
Straumur +3,33%
Actavis +2,06%
MESTA LÆKKUN
SÍF -0,92%
Mosaic -0,58%
Kögun -0,54%
�������������������������
������������������������������
�
�
��
��
�
������������
���������������������
�����������������������
������������������
�������
��������������������������
����������������������
����������������������
������������
������������
�����������������
��������������������������������������������
Atorka Group keypti eigin bréf fyrir 30
milljónir að nafnvirði á genginu 5,65
í gær eða fyrir 169,5 milljónir. Eftir
viðskiptin eru 5,69 prósent hlutafjár í
eigu Atorku.
Olíuverð lækkaði á heimsmarkaði í gær
en hlýnandi veður í Bandaríkjunum
hefur valdið því að eftirspurn eftir olíu er
minni en venjulega á þessum árstíma.
Fatið af brentolíu kostaði 54,65 dali.
Hlutabréf í hlutabréfasjóðnum Tækifæri
hafa verið færð á athugunarlista í
Kauphöllinni en stefnt er að afskráningu
félagsins úr Kauphöll Íslands.
JAKOB SIGURÐSSON, FORSTJÓRI SÍF
SPÁR UM HAGNAÐ SÍF Á 1. ÁRS-
FJÓRÐUNGI Í MILLJÓNUM EVRA
Spá Íslandsbanka -4,2
Spá KB banka -4,1
Spá Landsbankans -3,9
Meðaltalsspá -4,07
Lax veldur
vanda
MARKAÐSFRÉTTIR
Aðeins verður áritað á plötuna!
CD og DVD
verð kr. 2199
1.999
CD verð
Hljómar betur!
Þriðja plata Írafárs er komin út.
Fyrstu tvær plöturnar hafa selst í yfir
30 þúsund eintökum. Upptökum
stýrðu Vignir Snær Vigfússon og
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
Tryggðu þér eintak í næstu verslun BT.
Úrvalsvísitalan náði í fyrsta sinn
að fara yfir 4.800 stig í Kauphöll
Íslands í gær en lokagildi hennar
var 4.802 stig og hækkaði hún um
1,03 prósent frá deginum áður.
Líflegt var á hlutabréfamarkaði
í Kauphöllinni í gær en alls voru
426 viðskipti með hlutabréf fyrir
tæpa 18,6 milljarða króna.
Nokkur umræða hefur verið
að undanförnu um hvort markað-
urinn sé nú í sögulegu hámarki en
úrvalsvísitalan setti met annan
daginn í röð. Tíu félög hækkuðu í
viðskiptum gærdagsins en fimm
lækkuðu.
Hlutabréfamarkaður hefur
hækkað um 40 prósent að meðal-
tali undanfarin þrjú ár og hefur
eignastýring Íslandsbanka bent
á að skilyrði þurfi að vera mjög
hagstæð á næsta ári til þess að
búast megi við álíka hækkun.
Eðlilegt sé að búast við 12-15
prósenta hækkun á gengi fyrir-
tækja og því þurfi fjárfestar
sem hafa hlutfallslega meira af
hlutabréfum en skuldabréfum í
safni sínu, hugsanlega að endur-
skoða samsetninguna, vilji þeir
ekki taka of mikla áhættu.
Undanfarna daga hafa orðið
miklar verðhækkanir og aðeins
fjögur félög í Kauphöll Íslands
hafa lækkað í verði undanfarna
daga og öll innan við eitt prósent.
Hins vegar hafa sextán fyrirtæk-
ið hækkað í verði og þar af hefur
Straumur-Burðarás hækkað um
10,71 prósent á undanförnum
sjö dögum og um 17,87 prósent á
fjórum vikum.
Bjarki Logason, hjá grein-
ingardeild Landsbankans, segir
ómögulegt að segja til um hvort
markaðurinn hafi náð hámarki.
„Við höfum sagt það undanfarin
misseri að markaðurinn sé hátt
verðmetinn. Hann er samt búinn
að vera að hækka núna í þrjú ár.
Við sjáum ekki að það séu nein-
ar lækkanir framundan. Fyrir-
tækjum gengur vel, það er mikið
að gerast og útrásin gengur vel.
Það eina sem getur hugsanlega
haft einhver áhrif til lækkunar
er ef það verða einhver mistök í
útrásinni því það getur haft áhrif
á markaðinn hér heima,“ segir
Bjarki. hjalmar@frettabladid.is
Mikil hækkun
í Kauphöllinni
Líflegt var á hlutabréfamarkaði í gær þegar úrvals-
vísitalan náði sína hæsta gildi. Greiningardeild Lands-
bankans telur að markaðurinn muni ekki lækka.