Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 27
][ Stundum þurfa ferðamenn að teygja sig lengra en áætlana- flugið nær. Ferðaáhuginn getur náð alla leið til Rússlands, enda engin furða. Þar finnst borgin Moskva sem er draumur ferðamanna og söguunnenda. Moskva er borg sem sannkallaður ferðamaður myndi vilja dvelja í mánuðum saman enda hefur borg- in upp á að bjóða óendanlega flóru af söguslóðum og mannvirkjum. Vissulega myndi taka tíma að skoða hvern einasta múrstein í borginni en Moskva er engu að síður kjörin ferðamannaborg, bæði fyrir stuttar ferðir og lang- ar. Áður en lagt er af stað í slíka ævintýraferð, án leiðsögumanns, er vert að skoða vel á netinu hvað borgin býður upp á. Fjölmargar heimasíður eru til sem hjálpa til við að skipuleggja skemmtilega borgarferð. Hægt er að byrja á að skoða eftirfarandi síður; http:// www.flybirdy.com, http://www. moscowcity.com, http://www. expresstorussia.com og einnig er sniðugt að kaupa sér góða ferða- bók um Rússland og Moskvu eða ferðabókina Lonely Planet. Enginn ætti að láta fram hjá sér fara að skoða Kreml og Rauða torgið. Kreml hefur bæði stór- brotinn arkitektúr og sögulegt gildi, bæði fyrir fortíð og nútíð. Í nágrenni Kreml er að finna Rauða Torgið, grafhýsi Leníns, sögusafnið og fleiri merkar bygg- ingar. Kirkja heilags Basils er einn af þeim stöðum sem skylda er að skoða. Kirkjan var byggð í kringum 1560 í tíð Ívans grimma. Sagan segir að keisarinn hafi fyrir- skipað svo að arkitekt kirkjunnar, Postnik Jakovlev, yrði blindaður svo hann gæti aldrei skapað neitt jafnt fagurt á ný. Einnig geta söguunnend- ur tekið KGB dagsferð. Skoðað byggingar sem tengjast valdatíð Stalíns sem einkenndist af ógnar- stjórn og ótta. Á þennan máta er hægt að fá nýja sýn á kalda stríðið og afleiðingar þess, Einnig er einstakt að skoða GUM-verslunarmiðstöðina. Skyn- samlegast er að reikna með heil- um degi í GUM. Gott er að hafa rúblur við höndina þar sem marg- ar búðir neita að taka nokkurn annan gjaldmiðil. Ferðamenn verða svo að láta reyna á kænsku sína þegar kemur að því að versla flugfarið. Hægt er að skoða eftirfarandi síður til að fá verðhugmyndir á framhalds- flugi frá áætlunarstöðum íslensku flugfélaganna. Gott er að byrja á heimasíðunum www.easyjet.com og www.ryanair.com. Stúdentar og ungmenni geta nýtt sér þjón- ustu Stúdentaferða og er heima- síðan þeirra www.exit.is. Stundum eru bestu ferðirnar þær sem maður skipuleggur sjálf- ur, óháður og frjáls. johannas@frettabladid.is Mikilfengleg Moskva Hellaskoðun er ævintýraleg upplifun sem krefst lítils undirbúnings. Víða um landið má finna hella sem eru manngengir og bjóða gestum sínum upp á skemmtilegar skoðunarferðir árið um kring, því áhrifa árstíða gætir oft minna í iðrum jarðar en á yfir- borðinu. Hellaskoðendur mega þó eiga von á ís og hálku yfir veturinn og því nauðsynlegt að fara að öllu með gát. Nauðsynlegur búnaður í hellaferð- ir eru góðir skór, hjálmur og gott rafmagnsljós. Að auki er sniðugt að taka myndavél með þar sem margt leynist í myrkrinu sem er ólíkt öllu sem sést ofanjarðar. Kyndlar og kerti eru ekki vinsæl í hellum vegna mengunar en slæm umgengni og skemmdaverk hafa eyðilagt ómetan- legar náttúruperlur á undanförnum árum. Af skemmtilegum hellum fyrir byrjendur í hellaskoðun má nefna Djúpahelli í Bláfjöllum og Raufar- hólshelli í Þrengslum en sá síðar- nefndi er vel yfir kílómetra á lengd. Hellaskoðun allt árið Í HELLUM GÆTIR OFT MINNI ÁHRIFA ÁRSTÍÐA EN Á YFIRBORÐI JARÐAR. Hvatt til hvataferða Kynningar á Íslandi á Norðurlöndum. Grýlukerti af öllum stærðum og gerðum á gólfi Raufarhólshellis. Ráðstefnuskrifstofa Íslands og Ferðamálaráð í samvinnu við Icelandair og Sendiráð Íslands í Stokkhólmi og Kaupamanna- höfn stóðu í síðustu viku fyrir kynningum sem miðuðu að því að markaðssetja Ísland sem áfangastað fyrir ráðstefnur, viðburði og hvataferðir. Norðurlöndin eru einn af mikil- vægustu mörkuðum íslenskrar ferðaþjónustu hvað varðar ráð- stefnu- og hvataferðir. Kynningar hafa verið haldnar í London og Helsinki og nú síðast í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn sem miða að því að markaðssetja Ísland sem áfangastað fyrir hvata- og ráðstefnuferðir. Tíu íslensk fyrir- tæki voru valin með í för sem öll sérhæfa sig í móttöku á ráðstefnu- og hvataferðamönnum. Á kynn- ingarnar voru svo boðaðir erlend- ir fulltrúar sérhæfðra fyrirtækja á þessu sviði sem voru sérvaldir með tilliti til mögulegra viðskipta í framtíðinni. Þessar kynningar reynast því mikill stuðningur við íslenska ferðaþjónustuaðila. Á kynningunum var farið yfir þjónustu Ferðamálaráðs Íslands og Ráðstefnuskrifstofu Íslands. Fyrirhugað ráðstefnu- og tónlist- arhús sem mun rísa í Reykjavík var kynnt ásamt þeirri aðstöðu og möguleika sem landið hefur upp á að bjóða. Nýhöfn í Kaupmannahöfn. Norðurlöndin eru mikilvægasti markaður íslenskrar ferða- þjónustu á sviði ráðstefnu- og hvataferða. Dómkirkja heilags Basils. GUM-verslunarmiðstöðin. Kreml. Bolshoi-balletinn í Moskvu. �������������������������������� ���������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������ ��������������������������������������� �������������������������������������������� ��������������� ��������������������������������� ������������������� ��������������� ������������������ ��������������� ����������������������������� Aðventustemning í Básum Aðventuferð í Bása 25.–27. nóvember. Brottför frá BSÍ kl. 20 föstudaginn 25. nóvember Aðventuferð Jeppadeildar í Bása 3.–4. desember. Brottför frá Hvolsvelli kl. 10 laugardaginn 3. desember. þarf ekki að vera mikill til þess að ferðalagið geti verið gott. Oft er nóg að taka með sér helminginn af því sem maður heldur að sé nauðsynlegt. Farangur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.