Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 76
16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR28
menning@frettabladid.is
!
Rokksveitin Dikta heldur
útgáfutónleika á Gauki á
Stöng í kvöld vegna annarr-
ar plötu sinnar, Hunting for
Happiness.
Dikta var stofnuð þegar flestir með-
limirnir voru í níunda bekk í Garða-
skóla. Árið 1999 gekk söngvarinn
Haukur Heiðar Hauksson til liðs
við sveitina eftir að hafa hitt bassa-
leikarann Skúla Gestsson í strætó
og verið boðið á æfingu. Aðrir með-
limir Diktu eru Jón Bjarni Péturs-
son gítarleikari og trommarinn Jón
Þór Sigurðsson.
Fyrsta plata Diktu, Andartak, leit
dagsins ljós fyrir þremur árum og
vakti hún töluverða athygli á sveit-
inni. Platan hefur selst í um það bil
500 eintökum sem verður að teljast
gott fyrir eins lítt kunna rokkhljóm-
sveit og hún var á þeim tíma.
Fyrrum gítarleikari Skunk
Anansie, Ace, stjórnaði upptök-
um á nýju plötunni og gengu þær
mjög vel að sögn þeirra Dikta-
liða. „Hann hjálpaði okkur við að
velja og „strúktúra“ lögin. Þetta er
rólegri plata en við héldum fyrst að
hún yrði en það er allt í lagi. Platan
er poppaðri í uppbyggingu laga þó
hún sé rokkuð að upplagi,“ segja
þeir félagar. „Við höfðum ekki verið
með „pródúsent“ áður og vorum
dálítið efins fyrst. Platan hefði
orðið allt öðruvísi ef hann hefði
ekki verið með en við erum mjög
ánægðir með útkomuna. Platan er
aðgengilegri en sú síðasta,“ bæta
þeir við og að gítarhljómurinn sé
mjög góður, enda Ace afar öflugur
gítarleikari.
Aðspurðir segja þeir félagar að
nafn plötunnar, Hunting for Happi-
ness, sé fengið úr uppistandi með
breska grínistanum Eddie Izzard.
Þar segir hann að í Bandaríkjunum
sé hamingjan veidd með byssu og
síðan skotin. Dikta-liðar bæta við
að bjartara sé yfir textunum á nýju
plötunni en þeirri síðustu.
Dikta gerði nýverið þriggja
platna útgáfusamning við Smekk-
leysu og er spennt fyrir fram-
tíðinni. Sveitin spilaði á Iceland
Airwaves á dögunum við mjög
góðar undirtektir og myndband
við lagið Breaking the Waves er
jafnframt í vinnslu. Hvað varðar
spilamennsku erlendis segja þeir
að ekkert sé ákveðið í þeim efnum.
„Ace hefur talað við fólk úti og
hann lofaði að það myndi hlusta á
hana [plötuna] en ekki setja hana í
einhvern bunka,“ segja þeir. „Ann-
ars er ekkert planað úti.“
Útgáfutónleikarnir í kvöld hefj-
ast klukkan 21.00 og kostar 500
krónur inn. Mr. Silla sér um að hita
lýðinn upp. freyr@frettabladid.is
Hamingjan veidd með byssu
DIKTA Hljómsveitin Dikta heldur útgáfutónleika í kvöld vegna nýjustu plötu sinnar Hunting for Happiness. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Kl. 12.30
Á Háskólatónleikum í Norræna
húsinu flytja Kolbeinn Bjarnason
flautuleikari, Guðrún Óskarsdóttir
semballeikari og Úlfar Ingi
Haraldsson, sem sér um hljóðstjórn,
verk eftir Úlfar Inga og Johann
Sebastian Bach.
> Ekki missa af ...
... tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í Háskólabíói
á morgun þar sem Rumon
Gamba stjórnar flutningi
áttundu sinfóníu Sjostakóvitsj
og Sinfonia de Requiem eftir
Benjamin Britten.
... hinum árlega upplestri Hins
íslenska glæpafélags á Grand
Rokk annað kvöld þar sem
glæpasöguhöfundar lesa úr
nýjum verkum sínum.
... sýningunni Essens á Kjarvals-
stöðum þar sem sýnt er yfirlit af
verkum Kjarvals.
Í afmælisveisku ljóð.is, sem
haldin verður á Café Rosenberg
í kvöld í tilefni af fjögurra ára
afmæli vefsíðunnar, verður boðið
upp á nýjung sem nefnist Ljóða-
rímixkaríókí Dadda. Þar verða á
ferðinni tveir framúrstefnulegir
menn sem mæta með tölvuna sína
og prentara upp á svið og bjóða
öllum viðstöddum að láta tölvu-
forrit framleiða fyrir sig ljóð eftir
kúnstarinnar reglum.
„Þeir heita Sölvi og Jón, stærð-
fræðingur og bókmenntafræði-
nemi,“ segir Davíð Stefánsson,
sem hefur rekið vefsíðuna ljóð.is
í fjögur ár.
„Þetta var prufukeyrt á föstu-
daginn síðasta og vakti mikla
lukku. Þetta fer þannig fram að
fólk velur sér ákveðna gagna-
grunna, til dæmis bloggsíður eða
mbl.is eða eitthvað annað, og síðan
býr forritið til ljóð úr því og prent-
ar það út. Síðan kemur fólk upp á
svið og les sjálft upp ljóðið.“
Fleira verður gert til skemmt-
unar á afmælisljóðakvöldinu því
þarna mæta skáld að lesa upp
eigin ljóð, sem tölvuforritið þeirra
Sölva og Jóns hefur hvergi komið
nærri.
Þetta eru þau Bragi Ólafs-
son, Halldóra Kristín Thorodd-
sen, Haukur Ingvarsson, Henrik
Garcia, Hildur Lilliendahl, Hörð-
ur Dan, Óttar Martin Norðfjörð
og Toshiki Toma.
Skúli Þórðarson trúbador mun
síðan brjóta upp hátíðleikann með
eitruðum lögum sínum. ■
HAUKUR INGVARSSON Hann er eitt þeirra
ljóðskálda sem lesa upp úr verkum sínum á
afmælisljóðakvöldi vefsíðunnar ljóð.is, sem
haldið verður á Café Rosenberg í kvöld.
Dæla frá sér ljóðum
„Þessir tónleikar áttu að vera
leyndarmál,“ segir Jakob Frí-
mann Magnússon, einn meðlimur
Rifsberja, þegar hann er inntur
eftir heldur óvenjulegum atburði
en í kvöld heldur áðurnefnd Rifs-
berja sína fyrsta tónleika í 32 ár á
Næsta Bar.
Auk Jakobs spila Stuðmennirnir
Þórður Árnason, Tómas Tómasson
og Ásgeir Óskarsson í sveitinni
en við hljóðnemann verður Gylfi
Kristinsson sem hætti á sínum tíma
og lagði stund á framhaldsnám
í sálarfræði. „Við hljóðrituðum
aldrei neitt en í síðasta mánuði
fundust upptökur í Danmörku
frá sunnudagskvöldi í Glæsibæ,“
útskýrir Jakob og furðar sig á
fundarstaðnum. „Fyrir þá sem
vilja á hinn boginn kynna sér
hljómsveitina vorum við undir
áhrifum hennar þegar Stuðmenn
tóku upp Tívólí,“ bætir Jakob við.
Rifsberja spilaði þó nokkuð
mikið á árunum 1971-73 og segir
Jakob að flestir tónleikarnir hafi
verið „djammsession“ þar sem
gestir og gangandi tóku í hljóð-
færi og spiluðu með hljómsveit-
inni. „Við spiluðum þróað og
framsækið rokk og vorum í miklu
uppáhaldi hjá hippum þess tíma,“
segir Jakob en sá böggull fylgdi
skammrifi að lítil sala var á barn-
um. „Það lagði þess í stað þykkan
kannabisreyk yfir salinn, bareig-
endum til mikils ama,“ útskýrir
hann og hlær. Sveitin kom iðulega
fram með þykka leðurhatta frá
Guðna Erlendssyni en hann var
einhver framsæknasti hippi þess
tíma að mati Jakobs. „Svo vorum
við alltaf í dökkum fötum,“ bætir
hann við og segir að þeir hafi
stundum snúið baki í áhorfendur
enda hafi hljómsveitir þess tíma
verið í sífelldri sjálfskoðun. „Ég
veit samt ekkert hvert við snúum í
kvöld,“ viðurkennir hann.
Hið sérkennilega nafn hljóm-
sveitarinnar á sér nokkuð skringi-
lega sögu en hún á rætur sínar að
rekja til Seyðisfjarðar. „Þar var
ungur drengur gripinn glóðvolgur
við að ræna rifsberjum úr garði
hefðarkonu. Þegar hún tók í hann
varð drengurinn kjaftstopp en gat
loks stunið upp einu orði sem var
Rifsberja.“
- fgg
32 ára hléi lokið
hjá Rifsberja
JAKOB FRÍMANN Mun stíga á stokk með
hljómsveitinni Rifsberja sem ekki hefur
komið saman í háa herrans tíð
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Bókmenntaþing ungra lesenda
í Reykjanesbæ, málþing í Kenn-
araháskóla Íslands og málþing
um Grunnavíkur-Jón í Þjóð-
minjasafninu eru meðal þeirra
viðburða sem efnt verður til í
tilefni af degi íslenskrar tungu
í dag, sem jafnan er haldinn á
fæðingardegi Jónasar Hallgríms-
sonar.
Dagsins er minnst með
margvíslegu móti, meðal annars
með samkomum, sýningum og
upplestrum í skólum og annars
staðar víðs vegar um land.
Í ár er bryddað upp á þei-
rri nýjung að efna til sérstaks
bókmenntaþings sem ætlað er
börnum og unglingum á aldrin-
um tíu til sextán ára. Frummæl-
endur verða börn og unglingar úr
skólum í Hafnarfirði, Grindavík
og Reykjanesbæ og fjalla þau
um það hvort gaman sé að lesa.
Þingið verður haldið í safnaðar-
heimili Keflavíkurkirkju klukkan
10-12.
Á málþinginu í Kennarahá-
skólanum flytja þeir Haraldur
Bernharðsson, Gauti Kristmanns-
son og Sigurður Konráðsson fyrir-
lestra um breytingar sem verða á
íslenskri tungu og ýmsar tilraunir
til þess að hamla gegn þeim.
Klukkan 16 verður svo hátíð-
arsamkoma í Listasafni Reykja-
nesbæjar í Duushúsum þar sem
menntamálaráðherra afhendir
Verðlaun Jónasar Hallgrímsson-
ar 2005 auk tveggja sérstakra
viðurkenninga fyrir störf í þágu
íslensks máls.
Íslensk tunga í brennidepli
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI