Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 84
36 16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Í Háskólabíói og Regnboga
„Hversu lengi á að halda manni hérna?!“
- jökull ii
MasterCard kynnir:
NOKKRAR AF VINSÆLUSTU MYNDUNUM SÝNDAR
ÁFRAM Í DAG VEGNA FJÖLDA ÁSKORANNA.
ALLRA, ALLRA SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ.
AUKADAGUR TVÖ
Handboltakappinn Logi Geirsson
lýsir óánægju sinni með gengi
Lemgo í nýlegum pistli á heimasíðu
sinni og segir þar frá því að hann hafi
rætt við stjórnarformann félagsins
um að fá ákveðinn Íslending til að
koma til Þýskalands til að bæta
hugarfar og sjálfstraust leikmanna.
Sá sem Logi vill fá til Lemgo er
enginn annar en Egill „Gillzenegger“
Einarsson, einkaþjálfari, piparsveinn,
pistlahöfundur og ímyndarráðgjafi
með meiru.
„Ég get ekki sagt að þetta komi mér
sérstaklega á óvart,“ segir Gillz, sem
sjálfur hefur verið að spila á línunni
með liði Íþróttaakademíunnar í
utandeildinni hér á Íslandi með
góðum árangri. „Ég myndi sjá um að
koma mönnum í almennilegt stand
og herða þá upp andlega um leið.
Síðan er sá möguleiki fyrir hendi að
ég yrði spilandi einkaþjálfari og það
líst mér náttúrulega mjög vel á. Það
er vissulega stórt stökk að fara frá
utandeildinni í þýska boltann en ég
er tilbúinn í það,“ segir Gillz.
Í frásögn Loga á heimasíðunni
segir einnig hvernig stjórnarformað-
urinn brást við þegar hann sá mynd af
Gillzenegger. „Nau, Nau, Lógí og ster-
um, var það fyrsta sem ríkasti maður
Lemgo sagði. Ég hló svo mikið að ég
missti matarlystina en svo sagði hann
orðrétt: Ef hann kann að henda hand-
bolta þá kaupum við hann,“ segir Logi
meðal annars í pistli sínum.
Sjálfur segir Gillz að handbolti sé
einmitt afar auðveld íþrótt - það
eina sem þurfi sé að kunna að kasta
og grípa. „Svo þegar þú er kominn
með níutíu kílóa vöðva á línu er
voðalega lítið hægt að gera,“
segir Egill og á þar auðvit-
að við sjálfan sig. „Annars
er Logi topphnakki sem á
að taka til fyrirmyndar, vel
strípaður, grimmur í saln-
um og heltattúveraður.
Er hægt að biðja um
eitthvað meira? Ef kall-
ið kæmi frá Lemgo er
það allavega eitthvað
sem ég myndi íhuga
alvarlega,“ segir Gillz
að lokum.
HANDBOLTAMAÐURINN LOGI GEIRSSON: ER EKKI ÁNÆGÐUR MEÐ HUGARFAR SAMHERJA SINNA
Logi vill fá Gillzenegger til Lemgo
GOLF Ólöf María Jónsdóttir ætlar
sér sigur á úrtökumótinu fyrir
evrópsku mótaröðina í golfi en
Ragnhildur Sigurðardóttir er
einnig meðal keppenda á mót-
inu og freistar þess að vinna sér
keppnisrétt á mótunum í evrópsku
mótaröðinni.
„Ég stefni á sigur á þessu
móti. Mótið leggst vel í mig og
ég held að ég komi ágætlega
undirbúin til leiks. Ég hef æft
ágætlega í Bandaríkjunum en
kom þó heim til Íslands, svona
til þess að laga tímamismuninn
og leggja lokahönd á undirbún-
inginn. Það er alltaf gaman að
fara til Spánar að spila golf,“
sagði Ólöf glaðbeitt. Hún held-
ur til Spánar á morgun en mun
þó ekki hefja keppni fyrr en á
laugardag.
Ragnhildur Sigurðardóttir mun
hefja leik á morgun en hún hefur
að undanförnu dvalið á Spáni við
æfingar. Margrét Geirsdóttir er
með Ragnhildi í för en hún verður
kylfusveinn hennar á mótinu.
Þetta er fyrsta úrtökumótið í
golfi kvenna sem haldið er á La
Cala-vellinum á Costa del Sol á
Spáni. - mh
Ólöf ætlar sér sigur í úrtökumótinu
Úrtökumót fyrir evrópsku mótaröðina í golfi kvenna hefst á morgun og verða þær Ólöf María Jónsdóttir
og Ragnhildur Sigurðardóttir meðal þátttakenda. Ólöf ætlar sér að vinna mótið.
FÓTBOLTI Þegar Mike Tyson segir
mann vera að lifa lífinu á réttan
hátt er hugsanlega kominn tími á
að staldra við, líta um öxl og velta
vöngum yfir hvort maður sé á
réttri leið. Í þeirri stöðu er Wayne
Rooney í dag en Mike Tyson hefur
hvatt hann til þess að vera áfram
hann sjálfur.
„Hann getur ekki hagað sér
eins og fullorðinn maður á þess-
um aldri. Hann er ungur, farsæll,
veður í kvenfólki. Sumum finnst
það kannski ekki sniðugt en svona
vill unga fólkið lifa lífinu,“ sagði
Tyson. „Hann er að lifa draum
allra drengja. Líf án laga og
reglna. Ég er hrifinn af því hvern-
ig hann hagar sér. Hann á að haga
sér svona.“
Tyson, sem hefur lifað tímana
tvenna, vonast til þess að hitta
Rooney einhvern daginn enda
segir hann þá tvo eiga margt sam-
eiginlegt.
„Fjöldinn mun alltaf flykkja
sér á bak við menn eins og Roon-
ey. Ekki með góða stráknum sem
gerir aldrei neitt óvænt. Það er
skrítið hvernig komið er fram
við hann. Honum er sagt að vera
strákur en haga sér eins og full-
orðinn. Hvernig er það hægt?
Íþróttir snúast um að vera óþrosk-
aður. Þess vegna eru svona margir
íþróttamenn of lengi í bransanum
- þeir vilja vera krakkar áfram.
Hversu margir íþróttamenn eru
til, eins og ég og Rooney, sem geta
rifið stólpakjaft án þess að vera
lamdir?“ spyr Mike Tyson, sem
virðist vera kominn með mikinn
áhuga á knattspyrnu.
Spurning hvort Wayne Rooney endurskoði lífsstíl sinn:
Mike Tyson hrifinn af
lifnaðarháttum Rooneys
MIKE TYSON Farinn að veita Wayne
Rooney föðurlegar ráðleggingar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
ÓLÖF MARÍA JÓNSDÓTTIR Er búin að
vera við æfingar í Bandaríkjunum
að undanförnu og ætlar sér sigur á
úrtökumótinu. Ragnhildur Sigurðardóttir
tekur einnig þátt á mótinu, en hún hefur
æft á Spáni upp á síðkastið og kveðst
sjaldan hafa verið í betra formi.
FÓTBOLTI Forráðamenn Everton eru
ósáttir við forsvarsmenn skoska
knattspyrnufélagsins Glasgow
Rangers þessa dagana, þar sem
þeir hafa lýst því yfir að David
Moyes, knattspyrnustjóri Ever-
ton, sé líklegur til þess að taka við
stjórnartaumunum hjá Rangers í
framtíðinni.
Talsmaður Everton, Ian Ross,
sagði það ólíðandi að félög séu
að lýsa yfir áhuga sínum á knatt-
spyrnustjórum sem séu samn-
ingsbundnir öðrum félögum. „Við
höfum ekki fengið neina formlega
fyrirspurn frá Rangers, enda yrði
henni ekki vel tekið hjá okkur.“
Moyes, sem kosinn var knatt-
spyrnustjóri ársins í ensku
úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð,
hefur staðið sig vel hjá Everton,
þó ekki hafi gengið vel hjá liðinu á
þessu keppnistímabili. Hann var á
sínum tíma leikmaður erkifjanda
Rangers í Glasgow, Celtic.
- mh
David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, orðaður við Rangers:
Forráðamenn Everton ósáttir
KÖRFUBOLTI Á fimmtudag tekur
Keflavík á móti lettneska liðinu
BK Riga í Evrópukeppninni í
körfubolta. Lettarnir koma með
sterkt stuðningsmannalið með
sér eða 100 manns og svo er von
á um 20 Lettum sem búsettir eru
hér í landi að því er fram kemur á
heimasíðu Keflavíkur.
Það er vonandi að Lettarnir
verði hressari en Finnarnir sem
komu síðast í heimsókn til Kefla-
víkur og höfðu allt á hornum sér.
Fjör í Keflavík:
Lettarnir ætla
að fjölmenna
SIGURÐUR INGIMUNDARSON Fellur vonandi
betur í kramið hjá Lettunum en Finnunum.
Kæru Hauka vísað frá
Dómstóll KKÍ hefur vísað frá kæru sem
Haukar höfðuðu gegn Skallagrími eftir
leik liðanna í Iceland-Express deildinni
hinn 30. október. Haukar töldu að
Dimitar Karadzovski hefði verið ólögleg-
ur með liði Skallagríms en kærunni var
vísað frá vegna verulegra annmarka á
formi hennar.
> Úlfar og Óli bestir
Úlfar Hinriksson og Ólafur Jóhannesson
voru valdir þjálfarar ársins á aðalfundi
knattspyrnuþjálfarafélags Íslands. Ólafur
gerði FH að meisturum í karlaflokki en
Úlfar stýrði Breiðabliki til tvöfalds sigurs í
kvennaboltanum ásamt Birni Björnssyni.
Þrátt fyrir þá staðreynd rakar Úlfar einn
inn verðlaunum sem þjálfari ársins í
kvennaflokki og hlutskipti Björns sem fyrr
furðulegt en sem kunnugt
var vissi enginn að
hann væri þjálfari
liðsins ásamt Úlfari
fyrr en í lok sumars.
Úlfar hefur heldur ald-
rei minnst á hans
þátt í sigrunum
og spurning
hvort hann
hafi hreinlega
vitað af ráða-
hagnum?