Tíminn - 07.05.1976, Blaðsíða 21

Tíminn - 07.05.1976, Blaðsíða 21
Föstudagur 7. maí 1976. TÍMINN 21 Strandamaður skrifar; „Vonum að þeir finni sér verkefni við hæfi Sigurður Jónsson, skrifar: Vegna svara menntamála- ráðherra við spurningum minum um dreifingu sjónvarps i þættinum „Bein lina” sunnudaginn 25. april, langar mig að vekja athygli hans og annarra alþingis- manna á að skilningur og samúð er ekki það sem við erum að fara fram á, heldur 'raunhæfar aðgerðir. Alþingi hefur nú haft fjögur ár til að athuga tillögur um dreifingu sjónvarps, án þess að komast að niðurstöðu um hvað eða hvort nokkuð skuli gert til þess að allir lands- menn fái notið útsendinga sjónvarps. Fyrr á þessari öld var sagt: „Vilji er allt sem þarf”, og hið sama á einnig við hér um sjónvarpiö. Ef vilji alþingis- manna væri fyrir hendi væri vel hægt að samþykkja báðar þær tillögur sem nú liggja fyrir Alþingi um sjónvarp á sveitabæi og breytingu á útvarpslögunum. Ég hefði þó talið að tillagan um breytingu á útvarpslögum ætti að miða við að fénu, sem með breytingunni aflaðist, yrði varið til viðhalds og endurbóta á dreifikerfi útvarps og sjón- varps. En byggðasjóður leggði til það fé sem þarf til að koma upp þeim endurvarpsstöðvum sem þarf fyrir sjónvarpið, og það bundið við að stöðvarnar kæmust allar upp á næstu tveimur árum. Einnig væri vert að athuga hvort meiri sóun það er á okkar dýrmæta gjaldeyri að leyfa innflutning lita- sjónvarpstækja, sem skila verulegum tekjum til uppbyggingar sjónvarps- dreifikerfirins, heldur en að verja gjaldéyrinum til tak- markalausra svallferða Islendinga til annarra landa, sér og þjóð sinni oft til litils sóma. Ennfremur vil ég benda öll- um háttvirtum alþingismönn- um á, af gefnu tilefni, að við íslendingar erum ein þjóð og án þess að ganga inn á annarra svið" eigum að bera allir jafnar byrðar með sköttum og skyld- um og við eigum einnig að njóta allir sama réttar til opinberrar þjónustu, án tillits til búsetu. Ef hins vegar Alþingi, það sem nú situr, lætur sér nægja að „athuga málið”, eins og menntamálaráðherra sagði, án þess að hafast nokkuð meira að, þá sýnist mér að ræða Alberts Guðmundssonar um sjónvarpsmál á Alþingi I vetur sé raunveruleg stefnu- ræða Alþingis I sjónvarps- málum og málefnum dreif- býlisins yfirleitt. En ef svo er ekki þá er enn timi til að bæta þar úr á þessu þingi og þing- styrkur nægur hjá þing- mönnum dreifbýlisins til að koma þeim málum fram sem vilji þeirra er til. Stóra Fjarðarhorni, 27. april Sigurður Jónsson Getum lært af Kínverjun Svo virðist, úr fjarska séð að minnsta kosti, að Kínverjum hafi tekizt miklu betur en til dæmis Indverjum, svo að nefnd sé næststærsta þjóð Asiu, að koma lagi á mál sin og sjá öllum sinum milljónum farborða. Mér skilst lika.að þeir fari talsvert aðrar leiðir en til dæmis er gert i Sovétrikjunum, þar sem svo mikið kapp er lagt á stóriðju. Kinverjarnir sýnast treysta miklu meira á smáiðnað og leggja kapp á, að hvert þorp sé sjálfbjarga, eftir þvi sem við verður komið. Ég hef það á tilfinningu, af þeim frásögnum sem ég hef lesið, að þeir setji ekki gróöa efstan alls, heldur vilji varðveita kyrrlátt lif, vafa- laust i þeirri trú, að þvi fylgi meiri farsæld en svimháum tölum og gifurlegum afköstum i drynjandi vélasölum. Við vitum, að Kinverjar eru ævaforn menningarþjóð, sem tileinkað hefur sér mikla þolin- mæði og elju og býr að fornri Mao formaður getur vafalltið kennt okkur margt. Hitt er svo annaö mál hvernig okkur nýt- ist það hér, sem vel á við i Kina. speki. t sumum greinum, sem heita mega næstum þvi nýmæli á mælikvarða aldanna, hafa þeir mjög langa og mikla reynslu, erfða frá kynslöð til kynslóðar. Þar á meðal er fisk- rækt og fiskeldi. Nú vill svo til, að við höfum tengt vonir við þessa atvinnugrein, og við eigum menn, sem af þekkingu og dugnaði hafa unnið að þessum málum. Hvernig væri nú, að þeir leituðu liðsinnis hjá Kinverjum, sem hafa reynslu margra alda að baki sér og föluðust eftir að fá að njóta góðs af henni? Kinverjar hafa getið sér gott orð hér, að mér heyrist, og sendiráðsmenn þeirra hafa farið talsvert aðra leið i viðleitni sinni að kynnast okkur, heldur en titt 'er um slika sendimenn. Ekkert er liklegra en þeir tækju málaleitan af þessu tagi vel. Ég, sem þetta skrifa, er ekki neinn sérfræðingur á neinu sviði, heldur aðeins ósköp venjulegur borgari, sem aðeins á minn kunningjahóp. Ég segi ekki, að ég hafi neitt vit á þessu umfram aðra menn, fjarri þvi. Ég skýt þessu fram til athugunar þeim, sem miklu betur vita Siguröur Sigurðsson. HRINGIÐ I SIMA 18300 AAILLI KLUKKAN 11 — 12 Hvað fannst þér þegar brezku togararnir fóru út fyrir 200 mllurnar? Guðmundur Bjarnason, sölumaður: Það litla, sem ég fylgist með i þessu máli ennþá, það lizt mér á sem sigur fyrir okkur og mikilvægan áfanga. TÍMA- spurningin Heiðar Breiðfjörð, verkamaður: Mjög gott, þetta er mikill áfangi og ég tel að þarna hafi þolin- mæði okkar Islendinga sigraö. Þó býst ég varla viö að þetta verði Þóroddur Gunnarsson, sjómaöur: Þetta er mjög athyglisverður sigur. Það næsta sem þeir senni- lega gera er að bjóða eiúhverja samninga, sem við vonandi tök- um ekki á móti. Björgvin Ingibergsson, simamaður: Mér lizt virkilega vel á þetta, þetta er verðskuldaður sigur, sem helzt ber að þakka iandhelgisgæzlunni. Bretarnir eru búnir að gefast upp, eru orðnir þreyttir á þessu. Gunnar Magndsson, skrifstofumaður: Mér finnst þetta ágætt. Ég held að Bretarnir séu aö gefast upp, sem bezt sést á þvi að mér skilst að niu af freigátum þeirra séu komnar i slipp til viðgerða vegna skemmda sem þær hlutu á ls- landsmiöum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.