Fréttablaðið - 16.11.2005, Side 48
Bókatíðindi koma inn um bréfalúguna
á hverju einasta íslenska heimili, og
þar er hægt að finna nýútkomnar
bækur við allra hæfi.
Bækur handa
öllum
ÍSLENDINGAR GEFA ÚT OG
LESA FLEIRI BÆKUR EN
FLESTAR AÐRAR ÞJÓÐIR Í
HEIMINUM SAMKVÆMT
HÖFÐATÖLU, OG ALLTAF ER
HÆGT AÐ FINNA EIN-
HVERJA BÓK SEM HEILLAR.
„Hann fékk bók, en hún fékk ekki
minna,“ syngja sumir um jólin,
enda er langt síðan stúlkur fengu
nál og tvinna í jólagjöf og bæk-
ur löngu orðnar sígildar gjafir
handa báðum kynjunum.
Fyrr í þessari viku hófst Ís-
landspóstur handa við að bera
Bókatíðindi 2005 inn á hvert
heimili í landinu, og eru þeir
margir sem líta í bæklinginn þeg-
ar finna þarf gjafir handa allra-
erfiðustu vinunum og ættingjun-
um. Bókatíðindi eru einnig finn-
anleg í öllum bókaverslunum og
á bókasöfnum.
Upplýsingar um fleiri tugi ný-
útkominna bóka er að finna í
bæklingnum, en í ár eru ein-
göngu birtar kynningar á nýjum
bókum, ólíkt því sem áður hefur
verið. Bókunum er eftir sem áður
skipt í 13 flokka: íslenskar barna-
og unglingabækur; þýddar
barna- og unglingabækur; ís-
lensk skáldverk; þýdd skáldverk;
ljóð; listir og ljósmyndir; fræði
og bækur almenns efnis; saga,
ættfræði og héraðslýsingar; ævi-
sögur og endurminningar; hand-
bækur; matur og drykkur; hljóð-
bækur; og spil.
12 ■■■■ { íslenskur iðnaður }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
www.fl ugger.is
10
35
43
Gæðamálning
Gott verð
Polytex 7
Ljósir litir 4 lítrar 1.990 kr.
Íslensk gæðamálning með góða hulu,
endingargóð og auðveld í notkun.
Skeifan 4
Snorrabraut 56
Bæjarlind 6
Dalshraun 13
Hafnargata 90
Austursíða 2
Austurvegur 69
Hlíðarvegur 2-4
Sólbakka 8
Flügger ehf
Stórhöfða 44
110 Reykjavík
Sími 567 4400
Guðbrandur byrjaði að læra gull-
smíði 1959 og stundaði hana hér í
fjögur ár. Eftir það fór hann út til
Þýskalands að læra og hefur unnið
við gullsmíði hér heima síðan þá.
Spurður að því hvað hann sé að fást
við þessa dagana segir Guðbrandur.
,,Það er nú bara, hvað á ég að
segja... almenn gullsmíði, en jólin
fara að koma og það er aðaltímabil-
ið í sölu.“
Blaðamaður spurðist fyrir um
hvernig vinnuferli væri háttað til
dæmis við það að vinna einn hring:
,,Fyrst er að ákveða hvernig hann á
að vera, það er auðvitað aðalmálið,
svo þarf að sjá hvað á að nota í
verkið, plötu, vír eða stöng og þegar
það er ákveðið þarf kannski að valsa
efnið til og gera það tilbúið undir
smíði. Seinna tekur önnur vinna við,
þá þarf að slípa hringinn til, setja í
hann steina eða slíkt. Vinna við ein-
faldan hring tekur kannski um tvo
tíma, svo þarf að sitja yfir hringnum
aðeins, setja í hann steina og fleira.
Guðbrandur segir að gullsmíðin
hafi tekið þátt í tæknivæðingunni í
gegnum tíðina og segist hafa heyrt
sögur utan úr heimi um mikla vél-
væðingu þar við skartgripagerð þar
sem hendur komi varla nálægt verk-
unum. Hann segist þó ekki hafa tek-
ið mikinn þátt í vélvæðingunni og
tekur fram að hann vinni þetta nær
allt líkt og áður, fyrir utan nokkrar
breytingar. En Guðbrandur segist
vinna þetta mest allt enn í höndun-
um. ,,Það er líka varla mikið hag-
kvæmt að vera með mikinn vélbún-
að nema maður sé í mikilli fram-
leiðslu. Menn eru víst jafnvel farnir
að setja steina í með vélum, en þeg-
ar ég var að byrja í þessu var sagt að
það yrði aldrei hægt,“ segir Guð-
brandur.
Hefur ekki tekið mikinn þátt í vélvæðingunni
.
GUÐBRANDUR VINNUR MEST ALLT Í
HÖNDUNUM FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Guðbrandur J. Jezorski er gullsmiður hefur smíðað úr
gulli síðan 1959.
12-13 Iðnaður-lesið 15.11.2005 15:39 Page 2