Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 53
tekið af og grindurnar lækkaðar eftir því sem við á á hverjum degi. Jóhannes segir að þetta fyrirkomulag spari gríðarlega vinnu. Ekki þurfi að gefa sömu rollunum á hverjum degi. Það leiðir til þess að þau geti verið með stórt bú en samt unnið utan þess. Aðrir bændur hafi kosið að stækka bú sín og fengið þannig meiri tekjur án þess að auka vinnu að sama skapi. Jóhannes segir að árstíðabundnir álags- tímar í sauðfjárrækt, meðal annars meðan á sauðburði standi, geri mönnum erfiðara fyrir að stækka bú sín endalaust. Margir hafi reynt að mæta því með endurhönnun fjárhúsa til að auðvelda vinnu á þessum tímum. Þá verði vanhöld minni og lömbin sprækari. Tími bóndans fer þá frekar í að líta eftir og fylgj- ast með að allt gangi eins og það eigi að gera. Jóhannes bendir líka á annað atriði sem hafi skipt miklu máli við hagræðingu hjá bændum, en það er bylting við heyskap með tilkomu heyrúlla. Vinnan við slíkan heyskap sé mun minni en áður. Þegar þetta sé lagt saman sé búið að hagræða við fóðrun skepn- anna, umhirðu þeirra eins og vigtun og klaufsnyrtingu, sauðburð og heyskap. Samt hefur ekki enn verið fundið nýtt fyrirkomu- lag við haustvinnuna eins og smalamennsku. Bóndinn á Heiðarbæ er sammála þeim sem segja að búum fækki og þau stækki. Á ákveðnum svæðum á landinu sé gróskan mik- il og hann sjái ungt fólk vera að taka við rekstrinum. Það sjái tækifæri sem ekki hafi lengi verið til að dreifa í greininni. Þetta sé ennþá svolítið svæðisbundið og virðist smita út frá sér. Kröfur í dag séu auðvitað miklar og margir möguleikar sem fólk hefur. Þetta séu ánægjuleg merki um framtíð sauðfjárbú- skapar í landinu. MIKILVÆG VÖRUÞRÓUN Gífurlegar framfarir hafa einnig verið í ræktuninni sjálfri. Jóhannes segir að nú séu skrokkar metnir mun nákvæmar en áður. Notaðar séu svokallaðar ómmælingar sem mæla meðal annars bakvöðva og bakfituna í lömbum. Þetta nýtist mjög vel við ræktun enda skipti fituhlutfallið miklu máli þegar meta skal gæði kjötsins. Inn í síðasta búvöru- samning hafi verið tekið tillit til gæðastýring- ar þar sem hluti af ríkisstyrknum haldist í hendur við slíkt vinnulag hjá bændum. Þá sé tekið tillit til ýmissa þátta sem miða að því að bæta framleiðsluna í takt við umhverfið. Annar áhugaverður punktur sem Jóhannes bendir á er hversu miklu máli vöruþróun hef- ur skipt. Sauðfjárbændur hafi tekið þátt í henni. Hér áður fyrr hafi lambakjöt verið selt í heilum og hálfum skrokkum. Þetta hafi sem betur fer breyst mikið. Nú sé kjötið meira unnið og ýmsir tilbúnir réttir framleiddir sem mæti þörfum nútímans. Fólk vilji greini- lega hafa þetta fljótlegt og lambakjöt keppi við ýmsa aðra fljótlega rétti. Þessi vöruþróun hafi átt sinn þátt í söluaukningu. Gæði kjöts- ins hafi batnað og betra ástand í þjóðfélaginu auki eftirspurn eftir gæðameiri vörum. Árni Þorvaldsson á Bíldsfelli segir að af- urðaverð sauðfjárbænda hefði þurft að hækka um sextán prósent til að vera álíka hátt og árið 2000. Þá miðar hann við þróun vísitölu neysluverðs. Allir kostnaðarliðir bænda hafi hækkað á þessum tímabili. Nú fá- ist um 3.700 krónur fyrir lambið ef ríkis- styrkur er ekki meðtalinn. Ullarverðið hafi haldist nokkuð óbreytt. Flutningskostnaður sé meiri og verð fyrir innmat staðið í stað. 500 ÆR LÁGMARK Árni segir ekki forsendur til að lifa eingöngu á fjárbúskap nema vera með 500 fjár eða fleiri. Annars þurfi aðrar tekjur að koma til. Þetta séu ekki miklar tekjur sem fáist af fjár- búskap ennþá. Jóhannes Sigfússon, formaður Landssambands sauðfjárbænda, segir fleiri horfa á þetta nú sem alvöru atvinnugrein. Þó verði afkoman ekki viðunandi fyrir fjöl- skyldubú nema búið byggi á fimm til sex hundruð fjár. Erna Bjarnadóttir bendir líka á að velta sauðfjárbúa sé lítil eða í kringum fjórar millj- ónir króna. Þessi grein bjóði því ekki upp á miklar tekjur fyrir bændur þótt sóknarfæri séu vissulega fyrir hendi og þetta geti gefið ágætlega af sér. Jóhannes bendir á að útflutningur hafi gengið vel. Verð á afurðum ytra hafi farið hækkandi. Lækki gengi krónunnar aftur fái bændur fleiri krónur fyrir hvert selt kíló sem komi sér vel. Vinna tíu tíma á dag Sauðfjárbændur reyna að hagræða vinnunni. Á sauðfjárbúum hefur vinnu- stundum við sauðfé fækkað um fjórar klukkustundir eða 0,2 prósent frá árinu 2000 til ársins 2004. Vinna við bústörf á sauð- fjárbúum var að meðaltali 3.624 klukkustundir árið 2004 eða um 9,9 klukkustundir á dag. Þar af eru 2.133 klukkustundir vegna vinnu við sauðfé. Þetta kemur fram í saman- tekt Ásdísar B. Geirdal og Ingi- bjargar Sigurðardóttur hjá Hagþjónustu landbúnaðarins, sem þær unnu úr vinnuskýrsl- um fyrir umrætt tímabil, síðast fyrir árið 2004. Af samtölum við bændur eru margir þeirra að leita leiða til að fækka vinnustundum við sauðfjárbúskap. Sú vinna bygg- ist mikið á því að auðvelda gjaf- ir yfir vetrarmánuðina. Vilja bændur geta verið með fleiri ær á búum sínum án þess að lengja vinnutímann í sama hlut- falli. Aðrir vilja auðvelda sér störfin til að hafa meiri tíma til að vinna utan bús, sem hefur reynst mörgum nauðsynlegt til að hafa sæmilegar tekjur. Mánuðina janúar til loka apr- íl er meðal vinnustundafjöldinn á dag um 7,6 klukkustundir. Í maí til loka ágúst er meðal vinnustundafjöldinn um 12,4 klukkustundir enda sauðburður og heyskapur vinnuaflsfrekur þessa mánuðina. Frá september til og með desember er fjöldi vinnustunda hins vegar um 9,6 klukkustundir. Á sauðfjárbúum eru vinnu- stundir flestar í maí eða 17,8 klukkustundir á dag. MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 13 Ú T T E K T Fr ét ta bl að ið /E .Ó L. SJÁLFALA SAUÐKINDUR AÐ SUMRI Eftir að fé er rekið á afrétt til beitar þurfa bændur að sinna túnum og engjum til að safna fóðri fyrir komandi vetur. Margir þeirra leita nú leiða til að auðvelda sér störfin svo tekjur sauðfjárbúa geti aukist um leið og kostnaði er haldið niðri. Það er forsenda þess að sauðfjárbændur geti bætt afkomu sína og sauðfjárrækt orðið alvöru atvinnugrein. TÍMAFREKUR SAUÐBURÐUR Flestar vinnustundir á sauðfjárbúum eru í maí í kringum sauðburðinn. Þá er unnið að meðaltali 17,8 klukkustundir á dag. H L U T F A L L S L E G S K I P T I N G V I N N U S T U N D A Á S A U Ð F J Á R B Ú U M Sauðfé 59% Garðrækt 3,2% Hlunnindi 2,7% Tún og engi 9,2% Viðhald 17% Viðh. véla 1,7% Annað 7,2% 4.600 krónur í ríkisstyrk Ríkið greiðir tæpar þrjá milljarða króna vegna sauðfjárframleiðslu á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2006. Þar af eru um 1,6 milljarðar króna beingreiðslur til bænda. Beingreiðslur eru ekki lengur tengdar kvóta á framleiðslu. Bændur geta fram- leitt það sem þeir vilja af kindakjöti. Hafi þeir hins vegar rétt á greiðslum miðast þær við svokallað ærgildi. Fyrir hvert ær- gildi fær bóndi 4.600 krónur í ríkisstyrk. Eigi hann um 100 ærgildi fær hann samtals 460 þúsund krónur greiddar í nokkrum áföngum yfir árið. Það hafa ekki verið mikil viðskipti með ærgildi eins og raunin er með kvóta á mjólk. 12_13_Markadur-lesið v/myndir 15.11.2005 14:52 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.