Fréttablaðið - 16.11.2005, Síða 58
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN18
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Það fór ekki mikið fyrir því þegar auglýs-
ingastofan Hvíta húsið keypti hlut í bresku
auglýsingastofunni. Loewy. „Við tilkynntum
þetta 16. júní og þjóðin var upptekin við þjóð-
hátíðina, svo þetta fór ekki hátt,“ segir Magn-
ús Loftsson, framkvæmdastjóri Hvíta húss-
ins.
Magnús hefur unnið hjá Hvíta húsinu í
fimmtán ár. Kom beint frá námi í grafískri
hönnun frá San Fransiskó. „Þessi grein hefur
þroskast mikið á þessu tímabili. Fyrst voru
þetta teiknistofur og textagerð. Síðan með
breyttum fjölmiðlum kemur áherslan á
hvernig eigi að koma skilaboðunum á fram-
færi. Þá kemur birtingahlutinn og síðan hafa
komið í stórum hópum velmenntaðir mark-
aðsstjórar hjá fyrirtækjunum sem hafa sett
okkur upp við vegg og gert kröfur til okkar
um að fylgja og ráða til okkar viðskipta- og
markaðsmenntað fólk.“
STÖÐUGT VAKANDI
Auglýsingageirinn hefur verið sveiflukennd-
ur en Hvíta húsið hefur lfað í fjóra áratugi.
„Okkur hefur gengið vel í samkeppnum, bæði
hér heima og erlendis og markaðstjórar þrjú-
hundruð stærstu fyrirtækjanna hafa valið
okkur þá stofu sem þeir bera mest traust til
undanfarin fimm eða sex ár.“ Magnús segir
að greinin krefjist þess að fólk sé stöðugt
vakandi og fylgist vel með
tímunum. „Við höfum sjálf
staðið fyrir endurmennt-
un og ráðstefnum innan-
húss þar sem fengist er
við ákveðin verkefni, þar
sem fólk þarf að afla sér þekkingar.
Síðan höfum við ráðið fólk sem stendur fram-
arlega á sviðum sem við teljum að við þurfum
að styrkja okkur á.“
Íslensk fyrirtæki hafa leitað vaxtar í út-
löndum. Meðal þeirra eru viðskiptavinir
Hvíta hússins. „Það eru nokkur ár síðan við
unnum auglýsingar fyrir Mastercard sem
voru birtar í Evrópu. Síðan bættist við vinna
fyrir Actavis, þegar fyrirtækið fór í útrás.
Við unnum að nafnabreytingunni og því sem
fylgdi með almannatengslafyrirtæki í
London sem er sérhæft í lyfjafyrirtækjum.
Þeir fengu létt sjokk þegar þeir fréttu að þeir
ættu að vinna með íslenskri auglýsingastofu.
Síðan kom í ljós að vinnan var frábær og það
myndaðiust vinátta og tengsl á milli fyrir-
tækjanna.“
SKAPANDI VINÁTTUSAMBAND
Magnús segir að viðskiptavinirnir hafi verið
að leita út og það hafi í fyrstu kveikt þá hug-
mynd að opna útibú. „Okkur var ráðið frá því.
Við fórum í vinnu með Arev sem Jón Schev-
ing Thorsteinsson rekur í London. Sú vinna
leiddi til samstarfs við mann sem heitir Greg
Clarke sem er sjálfstætt starfandi hausaveið-
ari. Hann fór að leita að fyrirtækjum sem
pössuðu við andrúmsloftið hjá okkur.“ Sjö til
átta stofur fundust sem féllu að skilgreining-
unni. „Við heimstóttum þær og fækkuðum svo
niður í þrjár og enduðum svo á einni.“ Svo vel
vildi til að Loewy var ekki einungis að leita
samstarfs heldur einnig fjárfesta. „Þeir vildu
ekki fá banka í hluthafahópinn, heldur ein-
hvern sem hefði skilning á þeirra rekstri.“
Niðurstaðan var kaup á tíu prósenta hlut í
Loewy og Magnús settist í stjórn. „Það hefur
myndast samband sem er miklu meira en fjár-
festing hjá okkur og samvinna hjá báðum. Það
er skapandi vináttusamband. Við fórum með
alla starfsmenn okkar til London til að hitta
þeirra fólk. Við pöruðum saman
fólk sem er að fást við svip-
aða hluti hjá báðum fyrir-
tækjum og það ræddist
við í tvo klukkutíma. Þetta
var ómetanlegt og þeir sem
kynntust þarna eru í miklum sam-
skiptum og leita í reynslu og þekkingu hvers
annars.“
REYNDUR STJÓRNARFORMAÐUR
Þekkingarflæðið er því tals-
vert, en auk þess hafa fyrir-
tækin unnið saman að stærri
verkefnum. „Þeir hafa
reyndar komið meira hingað
en við farið til þeirra og
sambandið er að þróast í all-
ar áttir og fyrirtækin njóta
bæði ávinnings af þessum
samskiptum og hafa lært
hvort af öðru.“
Magnús segir að fyrir
utan ávinninginn af þessu
samstarfi hafi Loewy vaxið
óháð Hvíta húsinu og fjár-
festingin reynst góð. „Þegar
við keyptum þá voru 45
starfsmenn. Þeir eru nú 145
og stefna í tvö hundruð fyrir
jól.“ Stefnan er tekin á
skráningu á Aim-markað
eða tilboðsmarkað í London
á næsta ári. „Stjórnarfor-
maður Loewy heitir Luke
Johnson. Hann er fjárfestir
og það sem drífur hann
áfram er ekki markaðsfræði
og auglýsingagerð. Hann
kemur með mikla þekkingu í
rekstrinum. Það er þvílíkur
skóli að sitja stjórnarfundi í
svona fyrirtæki og sjá hvern-
ig þetta er gert í svona fyrir-
tæki. Hann er jafnframt
stjórnarformaður Channel Four.“ Johnson
auðgaðist á kaupum á keðjunni Pizza Express
1991. „Hann var kosinn viðskiptamaður árs-
ins 2003 í Bretlandi. Það er mjög mikilvægt að
hafa svona mann á bak við sig og geta vísað til
þess í samskiptum við viðskiptavini úti.“
STÆKKUN OG SAMVINNA OPNAR NÝJAR DYR
Magnús segir að hann vænti mikils af þessu
samstarfi og ekki nema brot af þeim ávinn-
ingi sem liggi í verkefninu sé kominn fram.
„Þetta hefur líka myndað mjög skemmtilega
orku innan fyrirtækisins. Það hefur orðið ein-
hvers konar vakning, eins og við séum að
byrja á einhverju algjörlega
nýju.“ Hann segir fyrirtækið
alltaf hafa gert vel við
starfsfólk og uppskorið
mikla starfsmannatryggð á
móti. „Andinn og menningin
hefur verið mannleg og við
viljum halda í þetta. Við finn-
um fyrir því sama hjá
Loewy, en það er auðvitað
erfitt að halda henni þegar
fjölgun starfsmanna er
svona ör.“
Fjárfestingin hefur þýtt
að Magnús sækir reglulega
stjórnarfundi í London.
Hann segist reyna að raða
saman fundum í þessum
ferðum til að lágmarka
fjölda ferða. „Þeir hafa sýnt
þessu skilning og Loewy tek-
ið þátt í kostnaði vegna
stjórnarsetunnar.“ Framund-
an eru stór verkefni, meðal
annars fyrir Hitachi í Evr-
ópu. „Það er verkefni til
þriggja ára um endurmark-
aðssetningu Hitachi í Evrópu.
Stækkunin og samvinnan
hafa gert Loewy mögulegt að
koma til greina í slík verk-
efni.“
Magnús segir að þrátt fyr-
ir mikinn eril þá gefist tími til
að sinna fleiru en vinnunni. „Ég er frekar
skipulagður þannig að mér tekst að halda helg-
unum nokkuð lausum.“ Hann býr í Garðabæ
ásamt manni sínum og tveimur hundum. Þeir
eiga sumarbústað í Fljótshlíðinni og reyna að
fara mikið þangað um helgar. „Svo reynum við
að fara á skíði á veturna innan- og utanlands.“
Hádegisverður fyrir tvo
á Hótel Holti
Steikt hörpuskel með sultuðum engi-
fer, smokkfiski og lime-froðu
Sniglar með laukformi, sveppum
og beikonsósu
Nautalund með piparkartöflumauki,
spínati og burgundy-sósu
Gufusoðin sandhverfa með Jerúsal-
em-ætiþistlum, mangóchutney og
kóríander kryddsalati.
Drykkir
Vatn
Pilsner
Alls 5.300 krónur
▲
H Á D E G I S V E R Ð U R I N N
Með Magnúsi
Loftssyni
framkvæmdastjóra Hvíta hússins
A U R A S Á L I N
Magnús Loftsson
Starf: Framkvæmdastjóri Hvíta hússins
Fæðingardagur: 12. janúar 1957
Maki: Gunnar Ásgeirsson
FJÁRFEST Í ÞEKKINGARFLÆÐI Magnús Loftsson, framkvæmdastjóri Hvíta hússins segir fjárfestingu í bresku auglýsinga-
stofunni Loewy miklu meira en fjárfestingu. Skapandi vináttusamband hafi myndast á milli fyrirtækjanna og bæði fyrirtæk-
in hafi notið reynslu og sambanda hvors annars.
Miklu meira en fjárfesting og samvinna
Magnús Loftsson stýrir auglýsingastofunni Hvíta húsinu og situr í stjórn bresku auglýsingastofunnar
Loewy sem Hvíta húsið keypti hlut í síðasta sumar. Hafliði Helgason hitti Magnús og ræddi við
hann um kveikjuna að og reynsluna af samstarfinu við Loewy.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ei
ða
Framundan eru stór verkefni, meðal annars fyrir Hitachi í Evrópu.
„Það er verkefni til þriggja ára sem snýst um endurmarkaðssetningu
Hitachi í Evrópu.“
Lög um
bankaokur
Aurasálin hefur brotið heilannn um
hvað Landsbankanum gangi til
með að hækka vextina á íbúða-
lánunum. Aurasálin er nefnilega
á varðbergi gagnvart okri banka-
stofnana. Sjálf hefur hún nefni-
lega oft þurft að glíma við ósann-
gjarnar kröfur banka um uppá-
skriftir og tryggingar vegna
nauðsynlegrar fyrirgreiðslu.
Aurasálin hefur oft verið, að henni
finnst niðurlægð, af bankastjór-
um sem hafa neitað að lána henni
nema gegn tryggingum og uppá-
skriftum ættingja. Þessar kröfur
hafa bankarnir sett fram þrátt
fyrir að Aurasálin hafi ekki verið
í meiri vanskilum við bankakerf-
ið en gengur og gerist. Bankar
virðast nefnilega ekki skilja að
það eru ýmis útgjöld sem þarf að
standa skil á áður en kemur að
því að greiða af lánum.
Nóg eru nú gjöldin sem tekin eru
af skuldunum og því engin
ástæða fyrir bankanna að vera
með þessa tortryggni í garð
Aurasálarinnar. Eitt tvö gjaldþrot
og smávægilegar tafir á ein-
hverjum greiðslum eru engin
ástæða til þeirrar óhóflegu tor-
tryggni sem bankarnir sína
tryggum viðskiptavinum sínum.
Þótt Aurasálin hafi alltaf sýnt sín-
um viðskiptabanka mikla tryggð,
þá verður það sama ekki sagt um
bankann. Þar virðast menn vera í
vasanum á innheimtufyrirtækj-
um sem heimta að fá smávægileg
vanskil til þess að geta smurt
ofan á þau.
Það er því ekki að undra að Aura-
sálin er tortryggin þegar banki
reynir að láta líta svo út að hann
sé að hækka vexti af góð-
mennsku og skynsemi einni sam-
an. Þá fer Aurasálin að hugsa
sinn gang og velta fyrir sér hvað
að baki búi. Hækkun vaxta á
íbúðalánum er til þess að græða
meira. Það er eina niðurstaðan
sem getur búið að baki.
Eins og Aurasálin hefur marg oft
bent á þá eru bankarnir á höttun-
um eftir ofsagróða af öllu sem
þeir gera. Þetta sjá því miður
ekki margir. Íbúðalánasjóður á að
lækka vextina ennþá meira núna
og reka bankana niður. Seðla-
bankinn á líka að lækka sína
vexti og svo á að setja lög um að
bankar megi ekki hagnast nema
um ákveðna upphæð sem er mið-
uð við eigið fé þeirra. Slíkar regl-
ur myndu þegar hafa góð áhrif á
óhófleg völd bankanna.
Aurasálin vill ekki láta þar við
sitja. Full ástæða er til þess að
setja einnig reglur um það að
bannað sé að senda skuldir til
innheimtufyrirtækja og dráttar-
vextir verði lækkaðir verulega.
Allt myndi þetta stuðla að meiri
jöfnuði þegnanna og aukinni
valddreifingu í samfélaginu. Það
er í raun furðulegt að enginn
stjórnmálamaður hafi tekið upp
þennan málstað. Gerist það ekki
er Aurasálinni nauðugur einn
kostur að fara í framboð.
18-19 Markadur- lesið 15.11.2005 14:55 Page 2