Tíminn - 11.05.1976, Síða 1
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
Landvélar hf
Aflinn fyrstu 4 mánuðina:
Tæplega 125
þúsund lest-
um minni en
á síðasta ári
bilinu frá áramótum til aprilioka.
Þar kemur i ljós, aö bátaaflinn er
rúmlega sjö þúsund lestum minni
I ár en á sama tima i fyrra. Tog-
araaflinn varð hins vegar um sjö
hundruð lestum meiri á fyrr-
greindu timabili I ár, heldur en i
fyrra. Þá er rækjuaflinn mun
betri I ár en árið 1975.
Þorskafli bátanna, skiptist
þannig: Hornafjörður/ Stykkis-
hólmur 89.931 lest, Vestfirðir
14.983 lestir, Norðurland 5.035
lestir og Austfirðir 5.230 lestir.
Landanir erlendis námu 587 lest-
um. Togaraaflinn varð samtals
64.189 lestir, en var 63.491 lest á
sama tima i fyrra, þ.e. frá ára-
mótum til aprílloka.
Heildarrækjuaflinn fyrstu fjóra
mánuði ársins varð 3.755 lestir, en
var 2.681 lest á sama tima árið
1975. Af hörpudiski veiddust alls
485lestir fyrstu fjóra mánuði árs-
ins, en var 537 lestir i fyrra.
Heildaraflinn hér á landi fyrstu
fjóra mánuði ársins varð þvi
522.355 lestir, en var mun meiri á
sama tima i fyrra, eða 647.135
lestir.
Allar fyrrgreindar tölur eru
samkvæmt aflafréttum Ægis og
eru bráðabirgðatölur.
Hinn hefðbundni lokadagur
er i dag, 11. mai.
Timamynd: Gunnar
Ólafur Jóhannesson
endurkjörinn form.
Framsókna rf lokksins
FJ-Reykjavik. ólafur Jóhannesson var endurkjörinn formaður Fram-
sóknarflokksins á aðalfundi miðstjórnar flokksins um helgina. Stein-
grfmur Hermannsson og Tómas Árnason voru endurkjörnir ritari og
gjaldkeri flokksins. Einar Ágústsson var endurkjörinn varaformaður
flokksins, Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir var endurkjörin vararitari og
varagjaldkeri var kosinn Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, í
stað HalldórsE. Sigurðssonar, sem baðst undan endurkosningu.
Ályktanir aðalfundar
miðstjórnar bls. 6-7
Stjórn Framsóknarflokks-
ins. Fremri röð frá vinstri:
Steingrimur Hermannsson,
ritari, Ólafur Jóhannesson,
formaður, og Tómas Árna-
son, gjaldkeri. t aftari röð
eru: Ragnheiður Svein-
björnsdóttir, vararitari, Ein-
ar Ágústsson, varaformað-
ur, og Guðmundur G. Þór-
arinsson, varagjaldkeri.
Timamynd: Gunnar
Geirfinnsmálið:
MORÐ I DRATTARBRAUTINNI
— fjórir menn látnir lausir úr gæzluvarðhaldi
Gsal-Reykjavik. Geirfinnur
Einarsson úr Keflavik var að
öllum líkindum myrtur með
riffli að kvöldi 19. nóvember
1974 I Dráttarbraut Keflavikur
og var banamaður hans, Erla
Bolladóttir, sambýliskona
Sævars Marinós Cieselski. Geir-
finnur Einarsson var myrtur að
fyrirskipan Sævars Marinós,
eftir að ónafngreindir menn
þjörmuðu að honum með högg-
um og barsmiðum og jafnvel
eggvopnum, að þvl er eitt vitnið
segir.
Ofangreint kemur fram i
fréttatilkynningu frá sakadómi
Reykjavikur i gær, en þar
kemur jafnframt fram, að Ein-
ar Gunnar Bollason, Magnús
Leopoldsson, Valdimar Olsen og
Sigurbjörn Eiriksson, sem hafa
sætt gæzluvarðhaldi vegna
rannsóknar á hvarfi Geirfinns
Einarssonar, hafi verið leystir
úr þeirri gæzlu, en að ákvörðun
rannsóknardómara verið gert
að sæta eftirliti lögreglu og tak-
mörkunum á ferðafrelsi i þágu
rannsóknarinnar, eins og segir i
fréttatilkynningunni.
Samkvæmt frétt sakadóms
urðu þau Kristján Viðar Viðars-
son, einn banamanna Guö-
mundar Einarssonar, og Erla
Bolladóttir, vitni að ágreiningi
og átökum milli manna, er þau
komu i Dráttarbraut Keflavikur
að kvöldi 19. nóvember i bifreið
frá Reykjavik. Kristján Viðar
telur sig þar hafa séð til manna,
sem eltu og umkringdu mann
einn og þjörmúðu að honum
með höggum og barsmiöum, og
jafnvel eggvopnum.
Er Kristján sá mann þennan
siðast, var hann orðinn m jög illa
haldinn og blóðugur, en Kristján
segir, að sér hafi verið stuggað
frá af einhverjum þessara
manna, og hafiþá Sævar Marinó
farið með sig að bifreið þeirra.
Kristján telur sig minnast
þess, að hann hafi séð Sævar
Marinó með riffil i höndunum,
er þeir voru komnir i bifreiöina,
en Erlu hafi hann ekki séð.
Erla Bolladóttir hefur nýlega
greint frá þvi, að Sævar hafi
verið með riffil i höndunum,
þegar þetta varð, og hafi hann
haldið rifflinum mjög fast að
sér, og nánast lagt hann I hend-
ur hennar — og sagt henni fyrir
verkum um það, hvernig hún
skyldi beita honum gegn nær-
stöddum manni, sem þá var
þegar mjög illa á sig kominn.
Erla kveðst siðan hafa beint
þessu vopni að manninum, sam-
kvæmt fyrirmælum Sævars
' Marinós — og hleypt af.
Henni hafi þá sortnað fyrir
augum, misst byssuna i hendur
Sævars — en siðan hlaupið á
brott og falið sig.
Erla telur, að maðurinn, sem
varð fyrir skotinu, hafi verið
Geirfinnur Einarsson.
Samkvæmt frétt sakadóms
hefur treglega gengið að fá
fram hjá Sævari Marinó, hvað
gerzt hafi þarna, sem og um af-
drif Guðmundar Einarssonar,
og hefur hann orðið margsaga i
þeim efnum.
Fram kemur I frétt saka-
dóms, að Kristján Viðar og Erla
Bolladóttir hafi talið sig bera
kennsl á nokkra þeirra, sem
voru staddir i Dráttarbraut
Keflavíkur þetta kvöld, og voru
þeir Einar Gunnar Bollason,
Magnús Leopoldsson, Valdimar
Olsen og Sigurbjörn Eiriksson
tilgreindir i þvi efni. Þessir
menn hafa þó staðfastlega neit-
að þvi.
1 frétt sakadóms frá i gær
kemur ekki fram, hver hafi ver-
ið tildrög ferðarinnar til Kefla-
vikur, og ekki er heldur minnzt
einu orði á sjóferð frá Dráttar-
brautinni þetta umrædda kvöld.
Þá þykir Timanum rétt að
geta þess, að á blaðamanna-
fundi fyrr i vetur með rannsókn-
ardómara málsins var að þvi
spurt, hvort ekki væri talin á-
stæða til þess að úrskurða Erlu
Bolladóttur i gæzluvaröhald.
Kvað rannsóknardómarinn nei
við þeirri spurningu og sagði, að
Erla væri „100% vitni”, svo not-
uð séu hans eigin orö.
Erla Bolladóttir hefur nýlega
verið úrskurðuð i gæzluvarð-
hald, eins og kunnugt er, og hafa
upplýsingar hennar siðustu
daga gjörbreytt rannsókn máls-
ins, eins og fram kemur i þess-
ari frétt.
Rannsókn þessa máls verður
haldið áfram, bæði af hálfu
rannsóknarlögreglu og fyrir
dómi.