Tíminn - 11.05.1976, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 11. mal 1976
VIÐURKENNIR AÐ HAFA SKOTIÐ GEIRFINN
AÐ FYRIRMÆLUM SAMBÝLISMANNS SÍNS
Gsal-Reykjavlk — t gær barst
Tlmanum fréttatilkynning frá
sakadómi Reykjavlkur um fram
komnar upplýsingar vegna
rannsóknar á hvörfum tveggja
manna, Guömundar Einarssonar
úr Reykjavlk og Geirfinns
Einarssonar úr Keflavlk. Fer
þessi fréttatilkynning hér á eftir:
Svo sem áður hefur veriö frá
greint hefir að undanförnu staðið
yfir umfangsmikil rannsókn við
sakadóm Reykjavlkur, sem eink-
um hefir beinzt aö því að upplýsa
hver orðiö hafi afdrif tveggja
horfinna manna, þeirra
Guömundar Einarssonar úr
Reykjavik og Geirfinns Einars-
sonar frá Keflavlk.
Rannsókn út af hvarfi
Guömundar Einarssonar hófst I
slöari hluta desember sl. og hafa
siðan setiö i gæzluvarðhaldi þrlr
menn, sem grunaöir eru um að
hafa átt sök á dauöa Guðmundar.
Menn þessir heita Sævar Marinó
Ciesielskl, Kristján Viöar Viöars-
son og Tryggvi Rúnar Leifsson. 1
framburöi þeirra hefur komiö
fram, aö Guömundur hafi látizt I
átökum viö þá aö Hamarsbraut 11
I Hafnarfiröi, og þeir síöan búiö
um lik hans og kvatt til kunningja
sinn, Albert Klahn Skaftason,
sem komiö haföi I bifreiö aö
Hamarsbraut 11 og aöstoöaö þá
viö aö flytja llk Guömundar út I
Hafnarfjaröarhraun. Albert
Skaftason kannast viö aö hann
Dráttarbrautin I Keflavlk
fttikw
rT
I
I
HEMPEEs
þakmálníng
þegar hann lítur niður á HEMPEEs
þökín og sér hve fallegum blæbrigðum
má ná úr litum hans
Nú eru fyrirliggjandi 14 gullfallegir litir af HEMPEL’S þakmálningu.
Um gæöi HEMPEL'S þakmálningar þarf ekki aö efast.
HEMPEL’S er einn stærsti framleiðandi skipamálningar f heiminum.
Seltan og umhleypingarriir hér eru þvl engin vandamál fyrir sérfræðinga
HEMPEL’S MARINE PAINTS.
Framleiðandi á Islandi
Slippfélagið íReykjavík hf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi— Símar 33433 og 33414
hafi fariö ferö þessa en eigi vitaö
hvaö veriö var aö flytja. Albert
var i gæzluvaröhaldi frá 23.
desember til.19. mars 1976. Þrátt
fyrir leit hefur lik Guömundar
ekki fundizt enn.
Þá hefir rannsókn málsins á
siöaristigi mjög beinzt aö þvl aö
upplýsa um tildrög ökuf.eröar,
sem fyrrnefndir Sævar Marinó og
Kristján Viöar eru taldir hafa
fariö I ásamt Erlu Bolladóttur
sambýliskonu Sævars Marinós,
og f jóröa manni, þ.e. ökumanni,
sem ekkier enn ljóst, hver var, til
Keflavlkur og þar aö Dráttar-
braut Keflavikur.svotog aöatferli
þeirra þar. Ferö þessi var aö öll-
um llkindum farin aö kvöldi 19.
nóvember 1974, en eftir þann tima
var Geirfinns Einarssonar sakn-
aö. Samkvæmt frásögnum þeirra
KristjánsViöarsogErluuröu þau
vitni aö ágreiningi og átökum
milli manna. Telur Kristján
Viöar sig þar hafa séö til manna,
sem eltu og umkringdu mann einn
og þjörmuöu slöan aö honum meö
höggum og barsmíöum og jafnvel
eggvopnum. Hafi maöur þessi
veriö oröinn mjög illa á sig kom-
inn og blóöugur er hann sá hann
stöast. Þá hafi einhverjir manna
þessara hins vegar stuggaö sér
frá og Sævar Marinó fariö meö
sig aö bifreiö þeirra, Telur
Kristján Viöar sig minnast þess,
aö er þeir voru komnir I bif-
reiöina,hafihannséö riffil ihönd-
um Sævars Marinós, en Erlu sá
hann þá ékki.
Þá hefir Erla nú nýlega skýrt
svo frá, aö Sævar Marinó hafi er
þetta gekk yfir veriö meö riffil i
höndunum og haldiö honum mjög
aö sér og nánast lagt hann i
hendur hennar og sagt henni fyrir
verkum um þaö hvernig hún
skyldi beita honum gegn nær-
stöddum manni, sem þá var þeg-
ar mjög illa á sig kominn. Hafi
hún siöan aö fyrirmælum Sævars
Marinós beint þessu vopni aö
manninum og hleypt af. Hafi
henni þá sortnaö fyrir augum,
misst byssuna I hendur Sævars
Marinós, sem stóö fast aö baki
hennar, en siöan hlaupiö á brott
og faliö sig, og siöan komist til
Hafnarfjaröar og Reykjavíkur
eins og áöur hefir veriö frá skýrt.
Eftir myndum aö dæma telur
Erla næsta sennilegt, aö sá, sem
fyrir þessu varö, hafi veriö Geir-
finnur Einarsson. Ekki er frekar
upplýst um afdrif hans. Treglega
hefir gengiö aö fá fram hjá
Sævari Marinó hvaö gerzt hafi
þarna sem og um afdrif
Guömundar Einarssonar, og
hefir hann oröiö margsaga I þeim
efnum. Kristján Viöar og Erla
töldu sig bera kennsl . á nokkra
þeirra, sem voru þarna staddir á
athafnasvæöi Dráttarbrautarinn-
ar, og voru þeir Einar Gunnar
Bollason, Magnús Leópoldsson,
Valdimar Olsen og Sigurbjörn
Eiriksson tilgreindir I þvl efni, en
þeir hafa staöfastlega neitaö þvi.
Hafa þeir Einar Gunnar, Magnús,
Valdimar og Sigurbjörn aö
undanförnu sætt gæzluvaröhaldi
vegna þessarar rannsóknar, en
hafa nú verið leystir úr þeirri
gæalu, en aö ákvöröun rannsókn-
ardómara verið gert aö sæta
eftirliti lögreglu og takmörkunum
á feröafrelsi I þágu rannsóknar
málsins.
Rannsókn er haldiö áfram bæði
af hálfu rannsóknarlögreglu og
fyrir dómi. Þau Sævar Marinó,
Kristján Viöar, Erla og Tryggvi
Rúnár eru öll I gæzluvaröahaldi
vegna rahnsóknar málsins og
jafnframt gert aö sæta sérfræöi-
legri rannsókn á llkamlegu og
andlegu heilbrigöi, og er sú
rannsókn hafin fyrir nokkru.
Astæöa er til aö ætla aö menn
þeir sem staddirvoru i Dráttar-
braut Keflavikur umrætt sinn
hafi skýrteinhverjum frá því. Þá
er ástæöa til þess aö ætla aö þeir
Sævar Marinó, Tryggvi Rúnar og
Kristján Viöar hafi skýrt ein-
hverjum frá afdrifum Guðmund-
ar Einarssonar.
Er hér meö skoraö á þá sem
sllka vitneskju hafa aö gefa sig
þegar fram viö rannsóknarlög-
regluna.
Frá sakadómi Reykjavíkur.
Fimmtán verndar
skip á 17 togara
Gsal- Reykjavik. Brezku
verndarskipin hafa slegið skjald-
borg um togarana, og varðskipin
komast þvi ekki aö þeim, sagði
Jón Magnússon, talsmaður Land-
helgisgæzlunnar, I samtali. við
Timann I gær, en þá voru á Is-
landsmiöum fimmtán verndar-
skip og sautján togarar!
Hann er þvi dýr fiskurinn, sem
brezku togararnir veiða þessa
dagana, og má I þvl sambandi
nefna, að sennilega eru um 2000
manns á verndarskipunum
fimmtán, sem verja togarana
fyrir varðskipunum.
Freigáturnar eru nú sex tals-
ins, Galathea, Leander, Lowest-
oft, Tartar, Ghurka og Salisbory.
Dráttarbátarnir eru fimm,
Statesman, Euroman, Lloyds-
man, Roys.terer og Typhoon. Aö-
stoöarskipin eru þrjú, Hausa,
Miranda og Othello — og eitt
birgöaskip er á miöunum, Tide-
pool.
Húsvíkingar
kaupatogara
gébé Rvik — Húsvlkingar hafa
ákveðið að kaupa skuttogara,
sem er I smiðum á Akranesi og er
áætlað að hann verði afhentur i
júni I sumar. Togarakaup hafa
veriö á döfinni nokkuð lengi hjá
Húsvikingum, en gengiö var
endanlega frá þessum kaupum
fyrir nokkrum dögum. Togarinn
er um 300 lestir að stærð.
Hlutafélag mun veröa stofnaö
um kaup á togaranum og stærstu
hluthafar eru Fiskiöjusamlagið á
Húsavik, Húsavikurbær og Kaup-
félag Þingeyinga. — Upphaflega
höföu Vestmannaeyingar ætlaö
að kaupa skip þetta, en þeir hurfu
frá því og þá var ákveðið aö Hús-
vlkingar keyptu þaö.
Heimsfrægur
gébé Rvlk — Hinn heimsfrægi
organleikari, dr. Michael
Schneider prófessor, er staddur
hér á iandi I boði Féiags Islenzkra
organleikara. Hann mun halda
tónleika I Dómkirkjunni I kvöld,
þriðjudagskvöld, klukkan 20:30.
Þá mun hann halda fyrirlestur á
vegum Tóniistarskólans I
Reykjavik.en auk þess gefa þeim
organleikari
organleikurum, sem þess óska,
tækifæri til að leika fyrir sig mið-
vikudaginn 12. mal.
Dr. Michael Schneider prófess-
or mun halda héöan til
Þýzkalands á fimmtudaginn. —
Efnisskráin á tónleikunum I
dómkirkjunni er hin sama og
Felix Mendelssohn — Bartholdy
haföi áriö 1840 I Tómasarkirkju I
Leipzig.