Tíminn - 18.05.1976, Qupperneq 9

Tíminn - 18.05.1976, Qupperneq 9
Þriðjudagur 18. mai 1976 TÍMINN 9 ^TRMJVÉLlN ^rxáT'ha5 l ræöingar a p Ver&íröWf- 37.5' Mfenwood ^ttir heiwiilis Þá auglýstu hann i smáauglýsingum Dagblaðsins og fáðu öil nauðsvnleg eyðublöð (þ.á.m. afsalseyðublað) ókeypis í afgreiðslu Dag- blaðsins að Þverholti 2. Þar færð þú einnig skriflegar leiðbeiningar um hvers gæta þarf við frágang söiugagna. WtBIKnK aiMwuna 2 sfmi 2 7022 (| Bílaviðskipti - w- , T-'áÉSfSSsQf-i.v'.'' Tilraunastöðin að Reykhólum. Spurning 4: Og að iokum. Teija yfirmenn þessarar visindastarfsemi nokk- urra breytinga eða viðbótarverk- efna þörf við þessa tilrauna- mennsku hér á Reykhólum? Svar: Þótt þessi spurning sé þóttalega orðuð, er sjálfsagt að svara henni lika. Það er oft rætt um framtiðar- verkefni, sem vinna mætti á til- raunastöðinni á Reykhólum ef nægilegt fé og aðstaða fengist og mun ég drepa á nokkur atriði. a. Sauðfé. Háustið 1974 hófst tilraun með að fóðra ær eingöngu á heyfóðri allan veturinn. Þeirri tilraun verður haldið áfram. Til umræðu heíur komið aö taka upp á Reykhólum rannsókn- ir á súgþurrkun heys með lofti, sem hitað er upp með jarðvarma og fóðrunartilraunir á heyinu. Þá þyrfti að halda áfram skýrsluhaldi yfir sauðféð með sama sniði og verið hefur og leggja kapp á að auka og bæta af- urðirnar með kynbótum. Sérstakt vísindalegt rann- sóknaverkefni biður úrlausnar I Reykhólafénu, en það er rann- sókn á áhrifum skyldleikarækt- ar á afurðasemi fjárins. Reykhólastofninn hefur verið ræktaður á staðnum frá þvi haustið 1961 án þess að nokkur kind hafi verið keypt að búinu til kynbóta fyrr en haustið 1974, að keyptur var alhvítur hrútur að sem var þó undan hrút frá Reyk- hólum. 1 athugun er að taka alhvita ull og alhvitar gærur I sérvinnslu I samvinnu við iðnfyrirtæki I land- inu. Yrðu þá til sölu sérhannaðar vörur úr þessum hráefnum. Ullin og gærurnar frá Reykhólum gætu orðið veigamikil uppistaða I slikri sérvinnslu. Þá hefur verið sótt um leyfi til að fá hrúta frá Reykhólum til sæðinga, en leyfi hefur ekki enn fengizt fyrir flutningi á þeim. A næstunni er gert ráð fyrir að kanna möguleikana á þvi að fá að taka sæði úr hrútum á Reykhól- um og sæða með þvi alhvltar ær á Hvanneyri og Hólum og ef til vill lika á Hesti. b. Þangvinnsla og þangmjöl til fóðurs Það virðist liggja mjög beint við að gera þangvinnslurann- sóknir i samvinnu við tilrauna- stöðina á Reykhólum og fóðrunartilraunir með þangmjöl á tilraunafénu þar, vegna þess að þangvinnsla er þar I næsta ná- grenni. Væri rétt að veita sérfróð- um manni I þangrannsóknum að- stöðu við stöðina. c. Æðarfugl Rannsóknir á orsökum þess, að æðarvarp hefur vlða gengið úr sér, eru mjög litlar, og engar til- raunir eru I gangi með aukningu á varpi. Æskilegt væri að koma á fót rannsóknum og tilraunum með æðarvarp á Reykhólum. Aðstaða til þeirra rannsókna er að mörgu leyti ákjósanleg þar, enda hefur tilraunastöðin varpnytjar og að- stöðu til að nýta þær. Það er ein- læg ósk okkar tilraunamanna að bæta aðstöðuna við Reykhóla- stöðina, en það má með sanni segja, að hún hafi alltaf verið öskubuska tilraunastöðvanna I landinu og alltaf hlotið lægri f jár- framlög en hinar. Tilraunastöðvunum I hinum landsfjórðungunum hefur vegnað betur, og virðist sem Ibúar þeirra fjórðunga, og sérstaklega þing- menn þeirra, hafi stutt betur við tilraunastarfsemina I héruðum slnum heldur en gert hefur verið á Norðvesturlandi, og virðist mér þó þörfin fyrir öfluga tilrauna- starfsemi fyrir landbúnaðinn öllu meiri I þvl kjördæmi en vlðast annars staðar, enda blómgast byggð þar ekki sem skyldi. Tilraunastjórinn á Reykhólum ,hefur engan aðstoðarmann við tilraunirnar, og ekki hefur fengizt fjármagn eða leyfi til að kaupa bifreið fyrir búið eða tilrauna- starfið, sem þó er framkvæmt víða á Vestfjarðakjálka. Auk þess vantar mikið upp á að nægilegt fé hafi fengizt til að halda við og endurnýja húsa- og vélakost. Enda er árlegt framlag rlkisins til tilraunastarfsemi landbúnaðarins I þessu stóra hér- aði nokkurn veginn jafnt verðinu á einni stórri jeppabifreið. Þaö væri óskandi, aö bændur og þingmenn á þessum stööum, og raunar vlöar, geröu sér grein fyr- ir þvi, aö án öflugrar tilrauna- og rannsóknastarfsemi, bæöi til aö ráöa bót á ýmsum vandamálum búrekstursins, túnræktar, hey- skapar og fóörunar, og auk þess til aö finna og reyna nýjungar, þá veröa engar framfarir og menn hjakka alltaf i sama farinu. Nú vil ég skora á Jakob og sveitunga hans að styðja til- raunastarfsemina I héraöi slnu og hjálpa tilraunastjóranum og okk- ur hér syðra, sem viljum vinna að þvi að bæta afkomu bænda á Norövesturlandi, að knýja á f jár- veitingarvaldið með okkur til að tilraunastööin I ykkar héraði þurfi ekki að dragast lengra aftur úr tilraunastöðvunum I hinum landsfjórðungunum. Ég vil auk þess þakka Jakobi fyrir aö gefa mér þetta tækifæri til að koma þessu hagsmunamáli okkar og Ibúa Norðvesturkjálk- ans fyrir augu lesenda blaðsins. Með þökk fyrir birtinguna, Til sölu heybindivél, baggasleði og heykló. Upplýsingar i sima 1191, Selfossi. Jörð eöa hluti af jörö óskast til kaups. Fyrirhugaö er aö reisa heiisuhæli á jöröinni. Upplýsingar um staösetningu, húsa- kosto.fi. sendistblaöinu fyrir 30. þ.m. merkt Jörö 1473. KONI höggdeyfar Vorum að fó höggdeyfa í Mazda 818 og 929 Pantana óskast vitjað sem fyrst T5TT ARMULA 7 - SIMI 84450 Sauöfé.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.