Tíminn - 18.05.1976, Síða 17

Tíminn - 18.05.1976, Síða 17
Þriðjudagur 18. mai 1976 TÍMINN 17 ÁHORFENDUR MEGA EKKI LÁTA SJÁ SIG! — þegar Guðgeir og félagar leika sinn fyrsta leik á heimavelli næsta keppnistímabil í 1. deildarkeppninni í Belgíu GUÐGEIR LEIFSSONog félagar hans í Charleroi- liðinu verða að leika fyrsta leik sinn í 1. deildarkeppninni í Belgíu næsta vetur, fyrir tómum velli áhorfenda. Ástæðan fyrir því er sú, að áhang- endur liðsins gerðu aðsúg að dómara, eftir einn leik Charleroi í vetur— og var sá dómur kveðinn upp í vikunni, að engir áhorf- endur mættu vera á fyrsta leik Charleroi-liðs- ins á heimavelli. Forráðamenn Charleroi-liðs- ins eru ekki sérstaklega ánægð- ir með þennan dóm, þar sem hann getur valdið félaginu miklu fjárhagslegu tjóni — þ.e.a.s. ef Charleroi leikur gegn sterku liði i fyrsta leiknum. Þá missa þeir tekjur af þeim 30 þús. áhorfendum, sem koma jafnan á völlinn, þegar sterk- ustu lið Belgiu koma i heim- sókn. Charleroi-liðið vann góðan sigur (2:1) yfir Lierse á laugar- daginn og varð félagið þar með i fjórða neðsta sæti i 1. deildar- keppninni, með jafnmörg stig og Beringen, en betri marka- tölu. Malines, Bechem og „mútuliðið” La Louviere féllu niður i 2. deild. Asgeir Sigur- vinssonog félagar hans i Stand- ard Liege töpuðu óvænt (2:3) á heimavelli fyrir Beveren. FC Brugge varð Belgiumeist- ari, hlaut 52 stig, en Anderlecht varð i öðru sæti með 48 stig. — SOS ÓLAFUR Jónsson..skoraði 4 mörk. Torino aftur upp á toppinn TORINO tryggði sér meistaratitil ítaliu i fyrsta skipti síðan 1949, þegar hið ósigrandi Torino-lið lenti i flugslysi og allir leikmenn iiðsins, sem léku jafnframt sem landslið italiu, létu lifið. Torino- liðið, sem hafði verið ósigrandi frá siðari heimsstyrjöldinni, var að koma úr keppnisferðalagi frá Spáni, þegar slysið átti sér stað. Juventus, sem hefur orðið meistari þrisvar sinnum á siðustu fjórum árum, missti af lestinni, þar sem liöið tapaði (0:1) fyrir Perugia. — SOS AAeistara- motio i frjálsum íþróttum Meistaramót tslands i frjáls- iþróttum byrjar laugardaginn 29. mai nk. Keppt verður i eftirtöld- um greinum: Laugardagur: Tugþraut, fyrri hluti, 4x800 m boðhlaup, 400 m. hlaup kvenna. Sunnudagur 30. mal: Tugþraut, siðari hluti 10 km. hlaup og fimmtarþraut kvenna. Mótið hefst kl. 14 báða dagana. Þátttökutilkynningar sendist Jó- hanni Jóhannessyni Blönduhlið 12. simi 18171 fyrir 26. mai nk. ásamt þátttökugjaldi kr. 100 fyrir hvern keppanda. Stoke tapaði í Belgrad Júgóslavar, sem mæta Walesbú- um i Evrópukeppni landsliða I knattspyrnu i Cardiff á laugar- daginn kemur, unnu góðan sigur yfir enska 1. deildarliðinu Stoke i Belgrade á sunnudaginn. Leikur- inn var upphitunarleikur fyrir slaginn gegn Wales I Cardiff — og sáu Júgóslavarnir um að skora öll mörk leiksins. Jerkovic skoraði „Hat-trick” — þrjú mörk fyrir júgóslavneska liðið og siðan skor- aði Peruzovic sjálfsmark fyrir Stoke. Ólafur átti stórleik með Dankersen... KENNY DALGLISH...skoraði sigurmark Skota. — þegar Skotar sigruðu Englendinga (2:1) á Hampden PARK Gifurleg fagnaðarlæti brutust út á Hampden Park I Glasgow á laugardaginn, þegar Skotar unnu sigur yfir Englendingum C2:l) og tryggðu sér þar meö sigur i brezku meistarakeppninni. 85 þús. áhorfendur sáu Skota vinna sinn fyrsta sigur yfir Englending- um siðan 1967 á Wembley, en Skotar unnu þá góðan sigur — 3:2 og urðu fyrstir til að sigra heims- meistara Englands. Englendingar urðu fyrri til að skora — það var Dýrlingurinn Mick Channon, sem skoraði með góðum skalla eftir aðeins 11 minútur. Aðeins sex mínútum siðar, mátti Ray Clemence, markvörður Englands, hirða knöttinn úr netinu hjá sér, eftir að Don Masson hafði skallað glæsi- lega i netið hjá Englendingunum. Masson sem leikur með Lundúna- liðinu Queens Park Rangers, hef- ur áttstórgóða leiki með Skotum i meistarakeppninni — það sást ekki gegn Englendingum, að hann hafi aðeins leikið þrjá lands- leiki með skozka liðinu heldur var eins og hann hafi verið fastamað- ur i þvi siðastliðin ár. Kenny Dal- glish skoraði sigurmark Skota i byrjun siðari hálfleiksins, eftir ljót mistök Clemence, markvarð- ar, sem missti knöttinn i gegnum klofið á sér. Liðin voru skipuð þessum leik- mönnum á Hampden Park: Skot- land: Rough (Partick), McGrain (Celtic), Forsyth (Rangers), Jackson (Rangers), Donachie (Man. City), Masson (Q.P.R.), Gemmill (Derby), fyrirliði, Rioch (Derby), E. Gray (Leeds), Jor- dan (Leeds) og Dalglish (Celtic). England: Clemence (Liverpool), Thompson (Liverpool), Todd (Derby), McFarland (Derby), Mills (Ipswich), Kennedy (Liver- pool), Keegan (Liverpool), Fran- cis (Q.P.R.), fyrirliði, Channon (Southampton), Pearson (Man. United) og Taylor (Crystal Palace). Þeir Doyle (Man. City) og Cherry (Leeds) komu inn á, sem varamenn fyrir McFarland og Pearson, sem meiddust. Walesbúar unnu sigur (1:0) yfir N-trum i Swansea á föstudags- kvöldið, 10 þús. áhorfendur sáu Leighton James (Derby) skora sigurmarkið. — SOS — en það dugði ekki gegn hinu sterka Gummersbach-liði, sem tryggði sér V-Þýzkalandsmeistaratitilinn ÓLAFUR H. Jónsson átti stórleik með Dankersen-liðinu, þegar það mætti hinu geysilega sterka Gummersbach-liöi i Frankfurt á laugardaginn. 7. þús. áhorfendur sáu leikinn, sem var gifurlega spennandi, en honum lauk með sigri G um m ersba c h-liös ins (12:11), sem tryggði sér þar með V-Þýzkalandsmeistaratitilinn. Ólafur var i miklum vigamóði i leiknum — var sterkur i vörn og skoraði þar að auki 4 gullfalleg mörk. Axel Axelsson gat ekki leikið með, vegna meiðsla. Gummersbach náði 4 marka for- skoti (9:5), um miðjan siðari hálfleikinn, en Ólafur og félagar gáfust ekki upp, þeim tókst að jafna 9:9 og siðan 10:10 og 11:11 — en rétt fyrir leikslok skoraði Gummersbach sigurmarkið. Mikill fögnuð- ur í Glasgow... DON MASSON...þrir stórleikir á Hampden Park u viku. STAÐAN Lokastaðan i bresku meistara- keppninni varð þessi: Skotland 3 3 0 0 8:2 6 Fngland 3 2 0 1 6:2 4 Wales 3 1 0 2 2:4 2 N-írland 3 0 0 3 0:8 0

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.