Tíminn - 18.05.1976, Side 24
þeytidreifarinn
góð vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig f yrir sáningu
Guðbjörn Guðjónsson
Heildverzlun Siðumúla 22
Simar 8S694 & 85295
Sdltsteinar
fyrir hesta, sauðfé
og nautgripi
blár ROCKIE hvitur KNZ rauður KNZ
SAMBANDIÐ
INNFLUTNINGSDEILD
Gólf-oq
Veggflisar
Nýborg?^
Ármúla 23 - Sími 86755
Tíu börn fórust í órós ó flóttamannabúðir í Líbanon í gær:
Ekkert Idt á átökunum og engin lausn á
stjórnmálakreppunni í sjónmáli ennþá....
Reuter, Beirút. — Tiu böm létu
lifiö i stórskotaliðsárás á búðir
flóttamanna frá Palestinu i
Libanon i gær. Óttazt var, að til
mikilla hefndarráðstafana gæti
dregið, vegna árásarinnar, sem
alls kostaöi um hundrað og
Þjóðarmorð
á Filipps-
eyjum
Reuter, Istanbul. — Rikis-
stjórn Filippseyja mótmælti
i gær við utanrikisráðherra-
fund múhameðstrúarrikja,
ályktun fundarins, þar sem
krafizt var, að hernaðarað-
geröir gegn múhameöstrú-
armönnum á suðurhluta
Filippseyja, yrðu þegar i
stað stöðvaðar.
Fundurinn, sem var slitið
um helgina, samþykkti á-
lyktun, sem lögð var fram af
Libýumönnum, þar sem
krafizt var stöðvunar hern-
aöaraðgerðanna og tafar-
lauss brottflutnings stjórn-
arhersins frá Suöur-Filipps-
eyjum.
I ályktuninni var rikis-
stjórnin I Manila og Frelsis-
hreyfing þjóðemissinnaðra
múhameöstrúarmanna hvött
til að hefja nú samningavið-
ræður, og var þar boðizt til
að senda nefnd ráðherra frá
fjórum múhameöstrúarrlkj-
um sem sáttanefnd.
Þegar mótmælin gegn á-
lyktuninni voru afhent var
Ali Treiki, aðalfulltrúi Libýu
á ráðstefnunni að halda
ræðu, þar sem hann sakaði
rikisstjórnina á Filippseyj-
um um þjóöarmorð á mú-
hameöstrúarmönnum á eyj-
unum.
HEifflSHORfíA
'ÁÍVHLLI
Illa gengur að koma
á stjórnmáia-
sambandi
milli Póllands og páfa
Reuter, Varsjá. — Sendinefnd
frá páfastóli hefur nú dvaliö
um þriggja vikna skeið I Pól-
landi, þar sem hún hefur rætt
málefni rómversk-kaþólskra i
Póllandi við embættismenn
rikisstjórnar kommúnista-
flokksins þar.
í tilkynningu, sem sendi-
nefndin lét frá sér fara I gær
segir Luigi Poggi erkibiskup,
að það muni enn taka nokkurn
tima að uppfylla þá ósk Páls
páfa, að komiö verði á aö nýju
stjórnmálasambandi milli
páfastóls og Póllands.
Stjórnmálasamband var á
milli þessara aðila fyrir siöari
heimsstyrjöld, ai hefur ekki
komizt á siðan. Sambandið
milli veraldlegra og kirkju-
legra yfirvalda i Póllandi
hefur þó batnaö til mikilla
muna slðustu ár, en mörg
vandamál á enn eftir að leysa,
áður en til sambands milli
Póllands og Vatikans kemur.
fimmtiu manns lifið og særði um
fjögur hundruð.
Samkvæmt heimildum
vinstri-sinna og Palestinuaraba i
Libanon, létu börnin lifið þegar
sprengja frá stórskotaliði féll á
barnaskólann i Tel Al-Zatarr búð-
Skjólftar
í Sovét
Reuter, Moskvu. — Mikill
jarðskjálfti varð i gær á
landsvæöum Sovétrikjanna I
Mið-Asiu og sagði útvarpið I
Moskvu, að alvarlegar
skemmdir hefðu orðið á
mannvirkjum og öðru af
hans völdum.
Jarðskjálftinn átti upptök
sin i Kyzyklum-eyðimörkinni
i Uzbekistan. Þar mældist
hann niu stig á opinberan
sovézkan mælikvarða jarð-
skjálfta.en meðhonum mæl-
ist hæst tólf stiga jarðskjálfti
og eru átta stig nægileg til að
skemma hús alvarlega.
Útvarpið I Moskvu talaði
um manntjón af völdum
skjál ftans.en ekki er vitað
nánar um það enn.
Fréttastofan Tass skýrði
frá þvi, að skemmdir hefðu
orðið á nokkrum stöðum, en
tiltók ekki hvar. í frétta-
skeyti stofunnar sagði siðan:
— Viöhlltandi aðgerðir eru
hafnar, til þess að vinna
gegn eftirköstum jarð-
skjálftans og koma fórnar-
lömbum hans til aðstoðar. —
Dagblaöiö Izvestia sagði i
gær að verstu skemmdirnar
hefðu orðiö i bænum Gazli,
en þar er taliö að búi um átta
þúsund manns.
Jarðskjálftinn I gær mun
hafa verið um 7.2 stig á
Richterkvarða.
unum, i útjaðri Beirút. Um
þrjátiu börn slösuðust.
Búðir þessar, sem eru mjög
fjölmennar og þéttbyggöar, hafa
áður komið við sögu átakanna
milli hægri og vinstri manna i
Libanon. Hverfi Inæsta nágrenni
búðanna eru á valdi hægri
manna.
Meðal þeirra, sem i gær féllu i
átökunum f Libanon, voru þrjátiu
og fjórir, sem fórust þegar
sprengja féll á þéttsetið kvik-
myndahús I vesturhluta Beirút,
sem vinstri-menn hafa á valdi
sinu. Hundrað og tiu manns særð-
ust I kvikmyndahúsinu, auk
þeirra sem féllu.
Dagblað, sem gefiö er út af
vinstri-sinnum, sakaöi i gær
hægri menn um að hafa breytt
Beirút i „blóðfljót”, en hægri
menn héldu þvi fram á móti, að
margt manna hefði látið lifið
vegna stórskotaliðsárása vinstri
manna á sjúkrahús i austurhluta
Beirút.
Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum i Beirút, að forsætis-
ráðherra Libýu, Abdel-Salam
Jalloud, hefði komið til Beirút frá
Damaskus i gær. Hafi hann rætt
borgarastyrjöldina og vandamái
þau sem hún skapar við Kamal
Junblatt, leiðtoga vinstri manna i
Libanon, en hersveitir þeirra
hafa yfirhöndina i átökunum þar.
Yasser Arafat, leiötogi Frelsis-
hreyfingar Palestinu (PLO) var
einnig viðstaddur viðræðurnar.
Talið var að Jalloud hafi viljað
reyna að lægja deilurnar milli
vinstri-sinna I Libanon,
Palestinuaraba og Sýrlendinga.
Jalloud og Arafat ræddu á
sunnudag við Hafez al-Assad, for-
seta Sýrlands, en vinstrimenn í
Libanon og þeir Palestlnuskæru-
liðar sem styðja þá hafa sakað
rikisstjórn hans um að vera tól i
höndum Bandarikjamanna og að
milli þeirra rikja sé nú samsæri
uppigegn vinstri öflum i Libanon.
Libýa hefur staðið algerlega
með vinstri mönnum I átökum
þeim, sem staðið hafa i Libanon
um fjórtán mánaða skeið.
Útvarpið I Beirut sagði í gær, að
Elias Sarkis sem fyrir rúmri viku
Framhald á bls. 23
Nýtt njósnamól í Vestur-Þýzkaland
Ráðuneytisritari handtekinn
Reuter, Bonn. — Nýtt njósna-
hneyksli vari gær afhjúpað við ut-
anrikisráöuneytið I Vest-
ur-Þýzkalandi. Þrjátiu og sex ára
gömul kona, sem starfað hefur
sem ritariviöráðuneytið, var um
helgina handtekin I Bonn, grunuö
um njósnir fyrir kommúnistariki,
eftir þvi sem segir i tilkynningu
frá rikissaksóknara þar.
A sama tima var yfirmanni
hennar, Heinrich Boex, fyrrum
sendiherra, vikið úr st(S)u sinni,
sem yfirmaður utanrikismála-
skrifstofu kristilega Demókrata-
flokksins, meðan á rannsókn
málsins stendur.
Þeir, sem rannsóknina hafa
með höndum, segja að mál þetta
sé þvi sem næst jafnumfangsmik-1
ið og mál Guenter Guillaume,
sem á siðastliðnu ári var hand-
tekinn fyrir njó.snir i þágu
kommúnistarikis, en það var
vegna þess máls, sem Willy
Brandt varð að segja af sér.
Kissinger og
Genscher hittast
Reuter, Bonn. — Henry
Kissinger, utanrikisráðherra
Bandarikjanna, mun fara til
Bonn þann 23. þessa mánaðar,
til samræðna við Hans Diet-
rich Genscher, utanrikisráð
herra V-Þýzkalands. Heim-
sóknin mun verða i beinu
framhaldi af utanrikisráö-
herrafundi NATO i Osló, eftir
þvi sem v-þýzka utanrikis-
ráöuneytið sagði i gær.
Lekinn úr Urquiola
stefnir á Marokkó
Reuter, LaCoruna. —
Mengunarsérfræöingur sagði I
gær, að hann áliti að olia frá
flaki spænska oh”uflutninga-
skipsins Urquiola hefði þegar
borizt langt út á sjó og nálgað-
ist strönd Marokkó.
Spánski sjóherinn hefur
bannað fréttir af björgunarað-
geröum við La Coruna, eink-
um fregnir af þvi, hve lekinn
úr skipinu er mikill, og stað-
festing á kenningu Carlsen,
hefur ekki fengizt.
Olia frá tankskipinu, sem
strandaði við innsiglinguna i
höfnina i La Coruna á mið-
vikudag i siðustu viku, hefur
þegar mengað um hundraö
kildmetra langa strandlengju
á Spáni, en ei er vitað hversu
mikið af hundraö og tiu þús-
und tonnafarmiskipsins hefur
lekið út.
Scotland Yard rann-
sakar „mannorðstil-
ræði” S-Afrikumanna
Reuter, London. — Scotland
Yard-lögreglan hefur nú til at-
hugunar grunsemdir um að
diplómat við sendiráð SuÖ-
ur-Afríku i London hafi reynt
að komast yfir klámkvik-
myndir, til þess að eyöileggja
mannorö eins af stjórnmála-
ieiðtogum Bretlands.
Talið er, að sú deild Scot-
land Yard, sem hefur með
alvarlega glæpi aö gera, hafi
nú til athúgunar gögn um mál
þetta frá blaöinu Guardian,
sem fyrst birti grunsemdirum
það.
Sagði Guardian, að tvitugur
unglingur hefði komiö til rit-
stjórnar þess, og skýrt frá þvi
aö hann hefði verið þátttak-
andi i gerð klámkvikmyndar,
þar sem þekktur stjórnmáta-
maður fór með aðalhlutverk.
Sagöi unglingurinn, aö annar
ritari sendiráðs Suður-Afriku
hefði haft samband við sig og
reynt að fá eintak af kvik-
myndinni. Ritarinn heitir Jo-
han Russouw.
Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum I gær, að konan, sem
handtekin var, heitir Helge Berg-
er og að hún hafi verið búsett i
Bonn frá 1971.1 tilkynningu sak-
sóknarans segir, að hún sé sterk-
lega grunuö um að hafa afhent
Austur-Þjóðverjum upplýsingar
og skjöl um tiu ára skeið.
Boex, sem dregst inn I rann-
sóknina vegna náinnar vináttu
við Berger, er ritari Evrópusam-
bands kristilegra Demókrata-
flokka.
Hann hefur neitað algerlega að
vera á nokkurn hátt tengdur
njósnum eða starfsemi sem sé
þeim skyld.
Berger starfaði með Boex þeg-
ar hann var yfirmaður verzlunar-
nefndar V-Þýzkalands i Varsjá,
frá 1966 til 1970.
Hempds
skípamálnÍRg getur varnað því
aðstálogsjór
Éku *
.í - í. ,
9 S/ippfé/agið íReykjavíkhf
Má/n/ngarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433og 33414