Fréttablaðið - 16.11.2005, Síða 78
16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR30
Miðar í síma 511 4200 og á www.kabarett.is
EKKI MISSA AF KABARETT!
18. nóv. kl. 20 (aukasýning) Örfá sæti laus
25. nóv. kl. 20 (aukasýning)
26. nóv. kl. 20 ALLRA ALLRA SÍÐASTA AUKASÝNING
��������
�������
��
��������������������� � � �
����������������������������������������������������������������������� �����������
������������ �������������� �� �����������
���������������� ���������� ��
����������������������������������
���������������������������������������������������������������������
�������������������������������������������� ������������������������������������
����������������������������������������������������������
����������������������������������������������������
�������������������������������������������������
����������������������� ����������������������������������
������������������������������������������������
Stóra svið
Salka Valka
Fi 17/11 kl. 20 Fi 24/11 kl. 20
Fö 25/11 kl. 20 Su 4/12 kl. 20
Su 11/12 kl. 20
Woyzeck
Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Lau 26/11 kl. 21 Su 27/11 kl. 21
Mi 30/11 kl. 20 UPPS Fi 1/12 kl. 20
Fö 2/12 kl. 20 Fi 8/12 kl. 20
Kalli á þakinu
Su 20/11 kl. 14 L au 26/11 kl. 14
Su 27/11 kl. 14 Su 4/12 kl. 14
Su 11/12 kl. 14 Má 26/12 kl. 14
Id - HAUST
Wonderland, Critic ´s Choice?
og Pocket Ocean
Su 20/11 kl. 20 Mi 23/11 kl. 20
Aðeins þessar sýningar!
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Fö 25/11 kl. 20 Lau 26/11 kl. 20
Lau 3/12 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Su 20/11 kl. 20 UPPSELT
Su 27/11 kl. 20 UPPSELT
Má 28/11 kl. 20 UPPSELT
Su 4/12 kl. 20 AUKAS.
Síðustu sýningar!
Manntafl
Fi 17/11 kl. 20 Fi 24/11 kl. 20
Mi 30/11 kl. 20
GJAFAKORT
GEFÐU EFTIRMINNILEGA
UPPLIFUN
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA
ENDALAUST
18. sýn fös 18. nóv. - örfá sæti laus
19. sýn lau 19. nóv. - örfá sæti laus
20. sýn fös 25. nóv. - Nokkur sæti
21. sýn lau 26. nóv. - Nokkur sæti
22. sýn. 2. des.
23. sýn. 3. des.
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Lífsins tré
Borgarleikhúsið / Nýja sviðið / Lífsins
tré eftir Böðvar Guðmundsson /
Leikgerð: Bjarni Jónsson / Leikstjóri:
Þórhildur Þorleifsdóttir / Leikmynd:
Stígur Steinþórsson / Tónlist: Pétur
Grétarsson / Búningar: Filippía I.
Elísdóttir / Lýsing: Lárus Björnsson /
Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir
/ Dans: Lára Stefánsdóttir / Leikarar:
Björn Ingi Hilmarsson, Edda Björg
Eyjólfsdóttir, Eggert Þorleifsson, Gunnar
Hansson, Halldór Gylfason, Hildigunnur
Þráinsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Sóley Elíasdóttir, Valur Freyr Einarsson
og Þór H. Tulinius / Hljóðfæraleikarar:
Eðvarð Lárusson, Kristín Björg
Ragnarsdóttir og Pétur Grétarsson
Niðurstaða: Það skortir eitthvað líf í
þessa sýningu þótt allir séu að leggja
sig fram.
Áfram er haldið að segja söguna
af Ólafi fíólín og afkomendum
hans. Bækur Böðvars hafa rist sig
djúpt í vitund þjóðarinnar og við
fyllumst aðdáun á því fólki sem
tók sig upp og flutti vestur um
haf á sínum tíma. Þórhildur Þor-
leifsdóttir fer fyrir leikhópnum í
þessari sýningu sem og í Híbýlum
vindanna, en notast nú við rýmið á
Nýja sviðinu þar sem Stígur Stein-
þórsson hefur hannað tilkomu-
mikla leik mynd sem hentar vel
þeim frásagnarmáta sem leikhóp-
ur inn notar.
Það er ekki gott að átta sig á
því í byrjun hvaða stefnu sagan
ætlar að taka en eftir því sem
líður á sýninguna verður ljóst
að aðaláherslan er lögð á sögu
Jens Duffrin sem Ólafur fíólín
eignaðist með seinni konu sinni
Elsabetu Sigfúsdóttur. Jens er
með þroskafrávik eins og við
myndum skilgreina það í dag
og lífshlaup hans er um margt
merkilegt.
Leikhópurinn vinnur eins vel
og hann getur úr þessari leik-
gerð en hún er alls ekki gallalaus
fremur en margt annað í leik-
húsi. Sú aðferð að lesa langa kafla
upp úr sendibréfum fannst mér
ekki þjóna frásagnaraðferðinni
og á löngum köflum datt sýning-
in niður í ládeyðu í stað þess að
flæða áfram.
Jafnvel tónlistin nægði ekki
til að lyfta sýningunni í hæðir.
Huggulegar melódíur - en sundur-
laus hljóðfæraleikur með fölsku
hljómlausu píanói gaf frá sér allt
of margar feilnótur fyrir minn
smekk.
Útlit sýningarinnar er afar
smekklegt. Nostrað er við búninga
og leikmuni en lýsingin var of
dimm að mínu mati. Leikarar voru
oft og tíðum í hálfrökkri og fyrir
þann aldurshóp sem er líklegastur
til að sækja þessa sýningu hlýtur
að vera bagalegt að sjá ekki
almennilega í andlit leikaranna.
Það hlýtur að skipta meira máli en
einhverjir skuggar og stemningar
í ljósum og leikmynd.
Þegar öllu er á botninn hvolft
þá er það leikarinn sem þarf
að bera sýninguna uppi eftir að
listrænir stjórnendur eru horfnir
á braut til annarra verkefna. Það
skortir eitthvað líf í þessa sýningu
þótt allir séu að leggja sig fram.
Vissulega voru skemmti-
leg augnablik og maður komst
við þegar Elsabet þakkaði Jóni
Eyjólfs syni fyrir að hafa ekki
ásakað sig þegar sonur hennar
framdi voðaverkið. Sóley Elías-
dóttir og Sigrún Edda voru mjög
góðar sem Elsabet og Málmfríður
og tókst að spanna langt æviskeið
þessara æruverðugu kvenna.
Eins var Þór Tulinius afskap-
lega sympatískur í hlutverki
templar ans Jóns Eyjólfssonar.
Björn Ingi átti geysifína spretti,
einkum í hlutverki Valtýs, og tókst
best upp þegar sonur hans verður
fyrir barðinu á Jens. Birni Inga
tókst að láta skína í það mannlega
í Valtý þrátt fyrir harðneskjulegt
yfirborðið.
Eggert Þorleifsson lék Ólaf
fíólín og það kom einhvern veg-
inn óskaplega lítið frá honum.
Mér var eiginlega alveg sama
um þennan mann. Mér fannst
túlkunin flöt og alls ekki áhuga-
verð.
Gunnar Hansson fékk ekki úr
miklu að moða í þessari sýningu
en átti góðan lokasprett í hlutverki
Lofts gamla. Frábær vinna þar.
Hildigunnur og Edda Björg voru
svolítið í þessu „comic-relief“
hlutverki og gerðu sitt óaðfinnan-
lega. Einkum í hlutverkum Vombu
og Trombu.
Valur Freyr þurfti að dúsa uppi
í rjáfri alla sýninguna og hafði
lítið annað að gera en að lesa upp
úr bréfum. Heldur þótti mér það
léleg nýting á leikaranum og að
hann skyldi nær alltaf þurfa að tala
í hljóðnema virkaði sérkennilega.
Hann kom textanum sínum öllum
til skila og ekkert upp á hann að
klaga. Hitt verður að skrifast á
leikstjórann.
Halldór Gylfason er óumdeilan-
leg stjarna sýningarinnar. Það
er alltaf vandasamt að leika ein-
stakling eins og Jens Duffrin.
Hann ber með sér einkenni eins og
tourette, ofurlítið spastískur, með
lamaða andlitsvöðva, málhaltur
og sitthvað annað sem flokkast
nú til dags undir líkamleg og and-
leg þroskafrávik. Halldór vinnur
hlutverkið af mikilli einurð og
fagmennsku. Það er auðvelt að
falla í þá gryfju að ofgera af því
svona einstaklingar eru ýktir og
þeirra helstu einkenni eru ýkt til-
finningaleg viðbrögð og fari þeir
svo að þamba brennivín ofan í
kaupið þá er ekki von á góðu. Hall-
dór fetar þarna gullinn meðalveg
og uppskeran er heilsteyptur kar-
akter.
Í heildina hefði ég viljað sjá
kraftmeiri sýningu. Kannski var
ekki lagt upp með annað en að
varpa upp svipmyndum frá hinu
liðna. En áhrifin eru minni en efni
standa til. ■
LÍFSINS TRÉ - BORGARLEIKHÚSIÐ
Svipmyndir frá hinu liðna
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Harmur stríðsins
Benjamin Britten ::: Sinfonia da Requiem
Dímítríj Sjostakovítsj ::: Sinfónía nr. 8
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
Rumon Gamba, fer fyrir hljómsveitinni þegar mögnuð
og dramatísk verk verða flutt.
gul tónleikaröð í háskólabíói
FIMMTUDAGINN 17. NÓVEMBER KL. 19.30Fít
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
0
2
8
Tónleikakynning Vinafélagsins hefst kl. 18.00 í Sunnusal Hótel Sögu.
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur kynnir efnisskrá kvöldsins.
Verð 1.000 kr. Súpa og brauð innifalið. Allir velkomnir.