Tíminn - 19.05.1976, Page 1
FLUGSTÖÐIN HF
Simar 27122 — 11422
Leiguf lug— Neyðarf lug
HVERTSEM ER
R SEM ER
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
Landvélarhf
Brezka blaðið Financial Times:
Norðmenn hafa milligöngu
um nýjar tilraunir til lausn
ar landhelgisdeilunni
Gsal-Reykjavik — Brezka blaðið
Financial Times greindi frá því i
gærmorgun, að nú væru í þann
veginn að hefjast nýjar tilraunir
til lausnar landhelgisdeilunnar
fyrir milligöngu Norðmanna.
Timinn ræddi i gær við Helga
Ágústsson forstöðumann Islands-
deildar norska sendiráðsins i
London og sagði hann, að brezku
blöðin hefðu litið skrifað um
hringlandahátt brezku togaranna
á tslandsmiðum, en Guardian
hefði þó litillega minnzt á það, að
brezku togararnir væru á leið á
Austfjarðamið aftur i gær
Helgi Agústsson sagöi, að
Times hefði nýlega skýrt frá þvi,
að brezku togaraskipstjórarnir,
svo og togaraeigendur, hefðu
neitað að taka i notkun tæki, sem
kæmi i veg fyrir togviraklipping-
ar varðskipanna. Helgi sagöi, að
hann hefði lesið um þaö i brezku
blaði fyrir nokkru, að samtök
brezka fiskiðnaðarins fengju dag-
lega upphringingar frá ýmsum
mönnum, sem hefðu hugmyndir á
takteinum um það, hvernig
togararnir gætu. forðazt togvira-
klippingar islenzku varðskip-
anna.
Ekki kvaðst Helgi vita gjörla
ástæðuna fyrir þvi, að brezku
togaraskipstjórarnir og eigendur
togaranna hefðu neitað að taka
slikt tæki i notkun, en kvaðst
álita, að tækið væri fyrirferðar-
mikið og ekki nægilega öruggt.
Hann sagði, að tæknilegur ráðu-
nautur samtaka brezka fisk-
iönaðarins hefði lagzt gegn notk-
un tækisins.
Helgi Ágústsson sagði, að Hull-
þingmaðurinn John Prescott.
sem nýlega kom hingað til lands
vegna landhelgisdeilunnar, hefði
nýlega ráðizt harkalega á brezku
rikisstjórnina og gagnrýnt hana
fyrir stefnuna i landhelgisdeil
unni. Helgi sagði, að Prescott
hefði sérstaklega deilt á Hatters
ley fyrir það, að sóa tækifærum ti
lausnar deilunni. Þá sagði Helg
að lokum, að Sunday Telegrapf
hefði nýlega i ritstjórnargreir
hvatt til þess að striðinu við Is
lendinga yrði tafarlaust hætt.
í dag
Jafntefli
á Euwe-
mótinu
----> O
Heroin
— > 0 0
Brezku veiðiþjófarnir
Fá engar
HV-Reykjavík. — Það er rétt, að
brezka rikisstjórnin gaf út yfir-
lýsingu um það i dag að rikiö
muni ekki bæta togaraeigendum
og sjómönnum það tjón sem þeir
verða fyrir af völdum islenzku
varðskipanna. Ég hef ekki enn
heyrt viðbrögð sjómanna sjálfra
við þessu, en David Cairns, full-
trúi hjá stéttarfélagi þeirra, var
þessu ákaflega reiður, þegar ég
talaði við hann áöan og hafði hann
i hyggju að skrifa forsætisráð-
herranum harðort bréf, sagði Jón
bætur
Olgeirsson, ræðismaður Islands i
Grimsby, i viðtali við Timann i
gærkvöldi.
— Ég heyrði það á Cairns, sagði
Jón, að honum þótti það ill-
skiljanlegt að rikisstjórnin skuli
neita að greiða þessar bætur,
meðan hún eyðir margfalt meira
fé i vernd togaranna á miöunum.
I rekstri verndarskipanna liggur
aðal kostnaðurinn en bæturnar
væru tiltölulega litlar, miðaö við
hann.
HAFA FENGIÐ EITT
STÓRT VEIÐISVÆÐI
Gsal-Reykjavik — Brezku togar-
arnir voru i gærmorgun á leið á
Austfjarðamið og slðari hluta
dags voru togararnir komnir á
miöin austur af Hvalbak. Mikil
þoka var á miðunum og átti land-
helgisgæzlan erfitt með að segja
til um það nákvæmlega, hversu
margir togarar voru á miðunum,
en taldi þá vera 32 talsins. Togar-
arnir voru allir fyrir sunnan frið-
aða svæðið i gærdag.
Brezku togaraskipstjórarnir
fengu þvi framgengt aö veiðivæð-
ið yrði stækkað til muna, og að
sögn Þrastar Sigtryggssonar,
skipherra, sem var i stjórnstöö
Landhelgisgæzlunnar i gær, nær
veiðisvæðið nú frá Langanesi allt
suður undir Ingólfshöföa.
— Þótt veiðisvæðiö sé nú orðið
þetta stórt endast brezku togara-
sjómennirnir sennilega ekki lengi
til þess að veiða á svona stóru
svæði, heldur þjappa sér saman,
sagði Þröstur.
Eitt skip hefur nú bætzt I vernd-
arflota brezku togaranna, en það
er skuttogarinn Southella, sem
brezka rikisstjórnin tók nýlega á
lelgu. Þröstur Sigtryggsson, skip-
herra sagði i gær, að liklega hefði
skuttogarinn það hlutverk að
koma I veg fyrir að varöskipin
komizt að togurunum til þess að
klippa.
Mikill órói hefur veriö I brezku
togaraskipstjórunum siöustu
sólarhringa og ferö þeirra á Vest-
fjarðamið var raunar algjör fýlu
ferð,
LANDHELGISGÆZLUNNI
BERAST PENINGAGJAFIR
Gsal/SJ-Reykjavik — I gær kom
gömul kona, ellillfeyrisþegi, inn
á skrifstofur Landhelgisgæzl-
unnar I Reykjavik og færði þar
Landhelgisgæzlunni peninga-
gjöf að upphæð kr. 40 þúsund.
Konan vill ekki láta nafns sins
getið, en kvaðst vilja gefa þessa
peninga til styrktar Landhelgis-
gæzlunni.
— Þetta er ekki I fyrsta
skipti, sem eldra fólk færir
Landhelgisgæzlunni peninga-
gjafir, sagði Pétur Sigurðsson,
forstjóri Landhelgisgæzlunnar I
samtali við Timann I gær. Pétur
sagði að t.d. hefði ónefnd kona
sent honum bréf 16. desember
s.l. með 10 þús kr. og I bréfinu
hefði staðið, að peningunum
skyldi varið til væntanlegra
flugvélakaupa með góðum ósk-
um.
SJ-Reykjavík. — Starfsmenn
Klsiliðjunnar við Mývatn hafa
ákveðið að gefa ein daglaun til
eflingar Landhelgisgæzlunni.
A fundi starfsmannanna 17.
mai var samþykkt eftirfarandi:
„Starfsmenn Kisiliðjunnar
h.f. við Mývatn lýsa yfir óá-
nægju sinni með viðbrögð is-
lenzkra stjórnvalda i land-
helgisdeilunni. Þvi til áherzlu
samþykkja allir starfsmennirn-
ir aö leggja ein daglaun til hlið-
ar, og senda þau til eflingar
Landhelgisgæzlunni. Þeir von-
ast til þess að fleiri starfshópar
fylgi fordæmi þeirra, þannig að
vanbúnaður Landhelgisgæzl-
unnar verði ekki átylla til nauð-
ungarsamninga viö Breta.
Framhald á bls. 19.
Verður ekkert gert
fyrr en sjórinn ógnar
einbýlishúsunum?
Svona leikur sjórinn landið hér
innan borgarmarka Reykjavík-
ur. Fvrir framan þar sem
Pálmar Sigurösson stendur á
myndinni stóö beitingaskúrinn
lians i vetur, en sjórinn gengur
svo á landiö aö Pálmar hefur
þurft að færa skúrinn ofar. Fyr-
ir mánuði varö siöan einnig að
flytja næsta kofa uppfyrir, og
sést nú grilla i hann efstan i röð-
inni dökkan að lit.
— Það er skelfilegt að vera
vitni að þvi að sjórinn fari svona
með jöröina, segja hrogn-
kelsaveiöimennirnir við Ægis-
siöu.