Tíminn - 19.05.1976, Blaðsíða 4
TÍMINN
Miðvikudagur 19. mai 1976
Varaforsetaefni óskast
Ef Gerald Ford hlýtur útnefn-
ingu flokks sins sem forsetaefni
fyrir forsetakosningarnar i
Bandarikjunum á komandi
hausti, þá hefur sú spurning
vaknað, hvern hann muni fá
með sér.sem varaforsetaefni.
Reyndar er ekkert útséð með
hvort af þvi verður, þvi að mót-
frambjóðandi hans Ronald
Reagan hefur dregið mjög á
hann i forkosningunum undan-
farnar vikur, og getur þvi
brugðið til beggja vona fyrir
Ford. En myndi hann kjósa
Elliot Richard, viðskiptaráð-
herra, sem ætið virðist reiðubú-
innað bjóöa sigfram ihvaðsem
er, eða fornvin sinn frá
Mið-Vestur rikjunum Donald
Rumsfield, fyrrverandi starfs-
mánnastjóra og núverandi
varnarmálaráðherra? Kannski
hann leiti á fjarlægari mið i von
um að það auki fylgi hans og fái
Howard Baker eða William
Brock, öldungadeildarþing-
menn frá Suðurrikjunum. Og
hvað um rikisstjórana Bob Ray
i Iowa, Christopher Bond i
Missouri eða Dan Evans i
Washington. Allir koma þessir
sterklega til greina, en hann
hefur fleiri i takinu, svo sem
eins og John Conally frá Texas,
Edward Brokke, blakkan
öldungadeildarþingmann frá
Massachusettes, Nelson Rocke-
feller eða jafnvel Ronald
Reagan. Gerald Ford er ekki
sérlega litrikur eða áhugavekj-
andi persónuleiki, en hann er
slunginn og reyndur
stjórnmálamaður og langtum
margbrotnari heldur en hann
viröist vera. Hann kemur ekki
til með að kjósa sér varafor-
setaefni fyrr en hann hefur
vandlega athugað framboðs-
listademókrata. Velmá vera að
hann komi þjóöinni á óvart með
þvi að kjósa konu varaforseta-
efni. Kona sú, sem hér um ræðir
heitir Carla Hills og er
húsnæðis- og dreifbýlismála-
ráðherra. Vitað er að Betty,
eiginkona forsetans er þvi mjög
hlynnt svo og milljónir kvenna
út um öll Bandarikin. Carla
þykir óvenju gáfuð og er hún
áreiðanlega jafnhæf i þetta em-
bætti og hver þeirra karlmanna,
sem Ford myndi velja. Auk þess
lifgaði það upp á forseta-
kosningarnar, sem hafa verið
með daufara móti undanfarin
ár. Myndin er svo af þeim
Geraldi Ford og Cörlu Hills.
Prinsinn alltaf kvenmannslaus
Vesalings Karl prins, hann má
aldrei lita svo á kvenmann, að
heimspressan tiundi ekki allar
hans augnagotur með tilheyrandi
athugasemdum um að nú ætli
hann að fara að trúlofast þessari
eða hinni blómarósinni. En prins-
inn er enn staðfastur I einlifi sinu,
og enn hefur ekkert orðið úr
trúlofun. A meðfylgjandi mynd,
sem tekin var I einhverju sam-
kvæmii London, virðir hann leik-
konuna Susan Hampshire fyrir
sér, og hún fer öll hjá sér sem von
er, þar sem öllum heiminum er
kunnugt um að prinsinn má ekki
lita á konur og er fyrir löngu orð-
inn fullorðinn.
Hærri tekjur, aukin áfengisneysla
„Alveg er ljóst, að aukin
áfengisneyzla leiðir til vaxandi
tjóns af völdum áfengis”, segir
tölfræðingur áfengisverzlunar-
innar I Osló. ,,Þar sem aukning
áfengisneyzlunnar var 3,4% árið
1975 og aukningin 1974 nam 11,2%,
má ljóst vera, að vá er fyrir dyr-
um. Augljóst er að aukin áfengis-
neyzla veldurauknutjóni og þeim
fjölgar, sem áfengi nær tökum á.
Nákvæmar rannsóknir, sem ná
yfir ára bil, leiða i ljós mjög náið
samband milli hærri launa og
aukinnar áfengisneyzlu. Augljóst
er, að tekjuaukning er ein mikil-
vægasta orsök aukinnar áfengis-
neyzlu. Hvaða aðgerðir eru
áhrifarikastar til að hafa hemil á
þessari öfugþróun?
Afengisverð hefur ekki fylgt
þróuninni I verðlags- og launa-
málum. Því miður var verð
áfengis ekkert hækkað við launa
hækkunina miklu 1974. Með þeirri
launaþróun, sem verið hefur
siðari ár, hefðum við þurft að
endurskoða verðlagningu áfengis
á hverju ári. Aðstaðan til að ná i
áfengi skiptir einnig miklu máli i
þessum efnum. Og við skulum
gera okkur ljóst, að þessi "þáttur
er ekki aðeins háður fjölda
veitinga- og sölustaða, heldur
einnig því hvenær veitinga- og
sölutiminn er. Fjölgun útsölu-
staða hefur neikvæð áhrif á
neyzluna, það er að segja ýtir
undri aukna áfengisneyzlu”.
Vertu svo ekki að glápa svona á mig.
— Ég var á heimleiö frá vinnu...
Nei, en hvaö þú lítur vel út f dag
elskan.... og þá hitti ég gamlan
skóiafélaga.
sn
DENNI
DÆMALAUSI
,,Af hverju þarf fólk alltaf aö fara
á spitala til aö fá börn. Geta þeir
ekki sent þau heim?”