Tíminn - 19.05.1976, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Miðvikudagur 19. mai 1976
Úmsjón: Sigmundur ó. Steinarsson =
„Ásgeir er meðal
beztu knattspyrnu-
manna Evrópu"
KS-Akureyri. — Það þýðir ekkert
að gefast upp, þótt á móti blási.
Ósigurinn gegn Eyjamönnum
þjappar okkur saman — við erum
ekki búnir að segja okkar
siðasta orð í baráttunni um 1.
deildarsætin, sagði Douglas
Reynolds, þjálfari Þórs eftir tapið
(0:1) gegn Eyjamönnum.
Reynolds sem er frá útborg
London og lék um tima með
áhugamannaliði Manchester
United, hefur þjálfað viða um
lönd — m.a. i olíurikinu Kúwait, i
Alsir og þá hefur hann þjálfað
landslið Liberiu. Reynolds dvald-
ist I Noregi sl. keppnistimabil,
þar sem hann þjálfaði 4. deildar-
lið, sem hann kom upp i 3. deild.
Þórsliðið hefur tekið miklum
stakkaskiptum siðan Reynolds
kom til Akureyrar og byrjaði að
þjálfa liðið af fullum krafti.
Þórsarar byrjuðu með þvi að
bera sigur úr býtum i Alberts-
mótinu, og mátti sjá framfarir I
hverjum leik þeirra i mótinu
undir stjórn Reynolds, sem sagði,
að undanfarið hefði hann lagt
mikla áherzlu á að skapa
samstöðu i liðinu og kynnast leik-
mönnum sem bezt, þvi að
góður„mórall”i liði væri ómetan-
legur. Hann sagðist einnig reyna
eftir beztu getu að kynna sér þau
lið, er Þór léki við hverju sinni, og
ef áhugi og vilji leikmanna yrði
áfram eins og hann væri núna,
kvaðst hann engu kviða um góðan
árangur sinna manna.
Min ósk er sú, að bæði
Akureyrarliðin komist upp I I.
deild næsta keppnistimabil,
þ.e.a.s. árið 1977. Reynolds er
mjög hrifinn af íslandi og
Islendingum en finnst hér vera
anzi mikill kuldi. Til landsins
þekkti hann sáralitið áður en
hann réðst hingað. Það eina, sem
hann sagðist hafa vitað var, að
íslendingar og Bretar áttu i
þorskastri'ði, að hér væri eldur i
jörðu og stórir jöklar, og að frá
Islandi væri knattspyrnumaður-
inn snjalli Asgeir Sigurvinsson,
sem hann teldi vera meðal beztu
knattspyrnumanna i Evrópu I
dag. Um árangur islenzka lands-
liðsins i knattspyrnu siðastl. ár
sagði Reynolds, að hann væri I
einu orði sagt frábær. Sérstak-
lega leikirnir við Austur-
Þjóðverja og Sovétmenn.
Stutt spjall
við Reynolds
þjálfara Þórs
á Akureyri
DOUGLAS REYNOLDS... er bjartsýnn á góðan árangur Þórsliðsins.
KS-Akureyri. — Knattspyrnufé-
lag Akureyrar verður sennilega
eitt þeirra iiða, sem koma til með
að berjast á toppnum i 2. deild i
sumar. Liðið er skipað ungum
mönnum að mestu leyti, en auk
þess leika með Uðinu eldri og
reyndari menn. I vetur og vor
hafa KA-menn æft vel, undir
stjórn hins góðkunna þjálfara
Einars Helgasonar. Einar hefur
þjálfað knattspyrnulið i mörg ár
og þjálfaði m.a. ÍBA-liðið er það
var bikarmeistarar 1969 og lið
ÍBK er þeir urðu íslandsmeistar-
ar 1971.
1 vor bættist KA góður liðs-
styrkur, þar sem Hörður Hil-
marsson, fyrrum landsliðsmaður
ogfyrirliði Vals, Guðjón Hilmars-
son úr Val og miðherjinn mark-
sækni Gunnar Blöndalhafa geng-
ið I raðir þeirra. Binda forráða-
menn liðsins miklar vonir við
þessa nýju liðsmenn.
Nú er unnið við nýtt Iþrótta-
svæði, sem KA er að koma sér
upp og væntanlega verður hægt
að taka malarvöllinn i notkun I
sumar.
Að sögn Stefáns Gunnlaugsson-
ar formanns knattspyrnudeildar
RAY CLEMENCE... hinn frábæri markvörður Livcrpool og enska
iandsliðsins. Hann hefur skipaö sér á bekk með beztu markvörðum
heims. Clemcnce og Keegan voru kcyptir til Liverpool frá Scun-
thorpc fyrir smáupphæð — 20 og 35þús.pund á sinum tlma.
„KeeqanoqClemence
ó heimsmælikvarða"
en það dugar ekki Englendingum", segir Johann Cruyff
— Englendingar eiga langt I land,
með að eignast landsiið, sem
getur skákað Hoilendingum og
V—Þjóðverjum, sagði Johann
Cruyff, hinn snjalli knattspyrnu-
maður frá Hollandi, sem leikur
með spænska liðinu Barcelona. —
Astæðan fyrir þvi er, að þeir eiga
aðeins tvo leikmenn, sem eru á
heimsmælikvaröa. Það eru þeir
Kevin Keegan og Ray Clemence,
hinir frábæru leikmenn Liver-
pool-Iiðsins, sagði Cruyff.
Cruyff sagði, að sóknarleikur
Englendinga væri ekki nógu
skarpur og taldi hann ástæðuna
fyrir þvi vera, aö miðvallarspilið
hjá Englendingum væri ekki nógu
sterkt. Þá sagðihann, að það væri
óskiljanlegt, hvers vegna Don
Revie.einvaldur enska landsliðs-
ins, notaði ekki Charlie Georgeá
miðjuna. — Hann er frábær
knattspyrnumaður, það sannaði
hann, þegar hann lék með Derby-
liðinu gegn Real Madrid.
— Ég myndi hiklaust velja þá
Keegan og Clemence I óskalið
mitt. — Þeir eru mjög öruggir og
þeir komu i veg fyfir að Barce-
lona-liðið léki til úrslita i UEFA-
bikarkeppninni. Clemence leikur
mjög yfirvegað og örugglega og
hann er kominn I sama gæðaflokk
og Lev Yashin (Rússlandi),
Gordon Banks (Englandi!, og
Dino Zoff (ttaliu). Keegan er
stórkostlegur leikmaður, sem er
hagsýnn og mikill stjórnandi,
sem hefur yfir miklum hraða og
skotkrafti að ráða. Hinar snöggu
skiptingar og útsjónarsemi hans,
skapa mikla hættu, sagði Johann
Cruyff.
— SOS
KEVIN KEGGAN
lN*fc?
EINAR HELGASON....
þjálfari KA.
KA, er mjög góður andi i liðinu og
eru þeir staðráðnir i að stefna að
1. deildar sæti i sumar. Fyrir
stuttu dvöldu KA-leikmenn ásamt
fjölskyldum sinum, þjálfara og
forráðmönnum liðsins i æfinga-
búðum að Illugastöðum i
Fnjóskadal. Var það liður I loka-
undirbúningi fyrir 2. deildar
keppnina.
Revie
kallar á
Rimmer...
DON REVIE, einvaldur enska
landsliðsins, hefur valið Jimmy
Rimmer, hinn snjalla markvörð
Arsenal I landsliðshóp sinn, sem
fer til Bandarikjanna og tekur
þátt iþriggja þjóða keppni, ásamt
Bandarikjamönnum og ttölum,
og fyrirHM-leikinn gegn Finnum.
Rimmer tekurstööu Phil Parkes,
QPR, sem gat ekki tekið þátt i
Bandarikjaferðinni. _______gos