Tíminn - 19.05.1976, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 19. mai 1976
TÍMINN
19
wmmm■
Viðtalstímar
alþingismanna
og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Þórarinn Þórarinsson alþingismaöur verður til viðtals að skrif-
stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstlg 18, laugardaginn 22.
maí frá kl. 10 til 12.
HEROIN
o
frá Hongkong. Tugir leynilegra
verkstæða sjá um aö framleiða
morfm og heróin úrhráópiuminu.
Heróin það, sem framleitt er i
Hongkong nefnist á fagmáli
Hongkong-steinar (Hongkong
Rocks) eða púöursykur (brown
sugar).
Þaö er ekki lengra en fjögur ár
siðan fyrst fór að bera á þessari
gerðaf heróini svo einhverju nam
á mörkuðum Evrópu. Astæöan
fyrir þvi er sú aö Tyrkir, sem
fram til ársins nitján hundruð
sjötiu og tvö voru mikilvægustu
heróinframleiðendur i heimi, og
sáu jafnt heróinhringjum sem
lyfjaverksmiðjum fyrir hráefni
urðu að stöðva alla valmúarækt
gjörsamlega, vegna þrýstings frá
bandarisku rikisstjórninni. Þetta
varð til þess að hin ólöglegu
heróineldhús i Marseille, sem
höfðu framleitt afarsterkt heróin
i formi dufts,/urðu að stööva at-
vinnureksturinn vegna hráe&ia-
skorts. Þar með var hálfur sigur
unninn, búið var að sigrast á
evrópsku uppsprettunni.
Auðvitað blómgast valmúinn
enn i Tryklandi, en nú er hann
kominn undir eftirlit lögreglu og
hers, og bændur mega ekki sjálfir
rista á börkinn til að fá kvoðuna,
heldur kemur það i verkahring
rikisstarfsmanna. Siðan þetta var
gert, hefur ekkert heróin i formi
dufts,sem unniðvarúr tyrknesku
ópiumi, komið á markaði i
Þýzkalandi, og eiturlyfjaneyt-
endur i Evrópu eru nú nær ein-
göngu fóðraðir á Hongkong-stein-
um.
Flugvöllurinn i Amsterdam var
til skamms tima sá staður, þar
sem auðveldast var að smygla
eitri inn i Evrópu, enda var hann
notaður til hins itrasta. En nú
hafa þarlend yfirvöld hert allt
eftirlit þar til muna, og
smyglararnir þvi leitaö á önnur
miö. Nú fljúga þeir mest til
Vinarborgar Zurich, Parisar og
Brussel, og fara siðan með bil eða
lest til hollenzku miðstöövanna.
Þeir ferðast aldrei einir, heldur
eru I slagtogi við aöra innfædda
Asiubúa, með hreina pappira,
sem þeir hafa leigt til að koma
efninu i gegnum tolleftirlitið.
Þeir eru þá dulbúnir sem ferða-
menn eða menn i viðskiptaerind-
um. Einnig er þeim útvegaður
farangur: tvöföld ferðataska sem
auðvelt er að fela i, kápur, sem
fóðrið hefúr allt verið fyllt með
heróini, eða stigvél með holum
hæl, fullum af efninu. Það er
fyrst ’ þegarþettafólk er komið i
gegnum tollin og út úr flug-
stöðvarbyggingunni aö fylgdar-
menn þeirra taka viö smygl-
varningnum og koma honum
áfram.
Þaö eru einnig til aðrar leiöir. 1
Kula Lumpur, sem er höfuöborg
Malaysiu, var sendiráðsstarfs-
maöur nokkur þvingaöur til að
fara i slika smyglferð. Eitur-
lyfjahringur rændi syni hans, og
faðirinn var knúinn til að fljúga
meö tiu kiló af heróini i farangri
sinum til Evrópu. Þaö var ekki
fyrr en hann hafði komið vörunni
á leiðarenda að drengnum var
skilað. Yngsti eiturlyfjasmyglar-
inn sem sögur fara af, var tekinn
á Schwechar-flugvellinum i
Vinarborg. Það var þriggja ára
kinverskursnáöisem vará ferða-
lagi með foreldrum sinum.
Búkurinn á bangsanum hans
hafði verið stoppaður með
heróini. Þar fundust þrjú og hálft
kiló. og var svartamarkaðsvecð
þess sem svaraði sjötiu milljón-
um króna.
Afangastaður fjölskyidunnar
var kinverska hverfið á bak við
aðalbrautarstöðina i Amsterdam,
— aðaldreifingastöð eiturlyfja i
fikniefna i Evrópu.
(Þýtt og endursagtJ.B.) i.
Alþingi
o
Þar lagði ég til, að lánafyrir-
greiðsla til leiguibúðanna væri
jafnhagkvæm og sjálfvirk og
var um Breiöholtsframkvæmd-
irnar. Allsherjarnefnd Samein-
aðs þings visaði tillögunni til
Húsnæðismálastofnunar til um-
sagnar og Húsnæöismálastofn-
un lagöi til að tillagan yrði send
nefnd, sem starfar og starfað
hefur lengi að endurskoðun hús-
næðismálalöggjafar. Félags-
málanefndEfri deildar hefur nú
tekið upp þetta skylduákvæöi
sem var meginmál þessarar
tillögu og komið þvi inn i breyt-
ingu á lögum um Húsnæöis-
málastofnun, og málið er far-
sællega leyst og kann ég henni
beztu þakkir fyrir.
Húsnæðismálastjórn er vel
skipuö. Hún er starfandi hér I
Reykjavik og skipuð Reykvik-
ingum, en okkur dreifbýlingum
þykir nú stundum, sem við
eigum þar of fáa formælendur.
Ég tel óhjákvæmilegt, að við
kjörnir fulltrúar þjóðarinnar
hérá Alþingi látum þetta mál til
okkar taka vegna þess að viö
svo búið má ekki standa. Við
verðum að hafa með einhverj-
um hætti hönd i bagga með
skiptingu fjármagnsins, svo
sem er t.d. um vegaáætlun, og
við ættum aö hafa þá þekkingu á
staðháttum, að við værum betur
til þess fallnir en embættismenn
kerfisins. Þá gefst færi á þjóð-
félagslegri skýringu, sem
óhjákvæmilegteraðkoma á fót.
Það er þýðingarlaust að byggja
upp atvinnufyrirtæki úti i dreif-
býlinu, fyrirtæki sem bera uppi
þjóðarbúið, byggja skóla,
heilbrigðis- og menningarað-
stöðu, en láta svo húsnæðis-
málaþáttinn i ólestri, þróunin á
að stefna i aðra átt.
Landshlutasamtök sveitar-
félaga hafa bent á nauösyn
þessarar skýringar m .a. á fundi
á Isafirði i fyrra, þar sem þeir
töldu óhjákvæmilegt að veita
örvunarlán.þarsem þörfin væri
brýnust. Þessi stýring gæti ver-
ið með ýmsu móti, bæði for-
gangur einstakra framkvæmda
og einnig væri hugsanlegt og
raunar réttmætt að veita mishá
lán eftir landssvæðum. Það er
kunnara en frá þurfi að segja,
að það er miklu dýrara að
byggja i dreifbýlinu heldur en
hér, bæöi vegna mikils
flutningskostnaöar, miklu
lengri byggingartima, þar sem
vegna veðráttu er ekki hægt aö
steypa nema um þriðjung ársins
fyrir vestan, norðan og austan,
og jarðvinna öll er torveld
vegna klaka, á meðan hér-syöra
er bygginarstarfsemi i fullum
gangi allan veturinn. Langur
byggingartimi hefur aö sjálf-
sögðu I för með sér stóraukna
vaxtabyrði. Þá er rétt að nefna,
að sums staðar er skortur á
iðnaöarmönnum. Ég vænti þess
aö flestir hæstvirtir alþingis-
menn veröi sammála mér um
nauösyn þess og réttmæti, að
finna leiö til að tryggja réttan
hlut dreifbýlisins i húsnæöis-
málum, þvi að annars tekst
okkur ekki að byggja landið allt
og nýta gögn þess og gæði og
auðlegð sjávarins i kringum
landið.
Sumarstarf fyrir börn og
unglinga
Bæklingurinn „Sumarstarf
fyrir börn og unglinga 1976” er
kominn út, og er dreift til allra
aldurshópa á skyldunámsstigi i
skólum Reykjavikurborgar i dag
og næstu daga. í bæklingi þessum
er aö finna framboð borgarstofn-
ana á starfi og leik fyrir börn og
unglinga i borginni sumariö 1976.
Um er að ræða eftirtaldar stofn-
anir: Fræðsluskrifstofa Reykja-
vikur, Æskulýösráð Reykjavikur,
Leikvallanefnd Reykjavi'kur,
Iþróttaráð Reykjavikur, Skóla-
garöar Reykjavikur Vinnuskóli
Reykjavikur.
Starfsþættir þeir, sem um getur
i bæklingnum eru fyrir aldurinn
2—16 ára. Flest atriðin snerta
iþróttir og útivist, en einnig eru
kynntar reglulegar skemmtisam-
komur ungs fólks.
Gæzlan
Sjaldan hefur þörf íslendinga
fyrir samstöðu verið slik sem
nú. Starfsmenn Kisiliðjunnar
skora á alla tslendinga að
leggja sitt af mörkum til þess að
fullur sigur náist I landhelgis-
málinu.”
Nær allir starfsmennirnir
voru á fundinum, framkvæmda-
stjórar sem verkamenn, og sið-
an hafa þeir fáu, sem þar voru
ekki, einnig samþykkt ofanritað,
að sögn trúnaðarmanns Verka-
lýðsfélags Húsavikur i Kisiliöj-
unni h.f., Siguröar Ragnarsson-
ar.
Flensborgarskóli
Næshkomandi laugardag 22.
mai verður Flensborgarskóla i
Hafnarfirði slitið og hefjast
skólaslitin kl. 14.00. Verða nú i
annað sinn útskrifaðir stúdentar
frá skólanum.
Við skólaslit 1. júni 1975 þegar
fyrstu stúdentar Flensborgar-
skóla voru útskrifaðir ákváðu
nokkrir eldrimemendur aö stofna
Stúdentafélag Hafnarfjarðar, og
var framhaldsstofnfundur hald-
inn 29. des. s.l.
Voru stofnendur milli 50 og 60
þariá meðal flestir nýstúdentar.
Fyrstu stjórn félagsins skipa:
Matthias A. Mathiesen, form.,
Vilhjálmur Skúlason varaform.,
Bragi Quðmundsson ritari, Gunn-
ar Linnet gjaldkeri og Asta Lúð-
viksdóttir meðstj. I varastjórn
eru Helga Guðmundsdóttir og
Haraldur Sigurðssoa
I tilefni skólaslitanna nú verður
efnt til kvöldfagnaðar þar sem
nýstúdentum verður fagnað og
afmælisárgangar gagnfræðinga
‘ og stúdentar frá i fyrra koma
isaman. Kvöldfagnaðurinn verður
i Skiphól sunnudagskvöldið 23.
mai og hefst með borðhaldi kl.
19.00. Fagnaöinum stýrir
Vilhjálmur Skúlason.
Stutt ávörp flytja: Guðlaugur
Þorvaldsson háskólarektor og
fulltrúi nýstúdenta. Berglind
Bjarnadóttir óg Margrét Pálma-
dóttir syngja og ómar Ragnars-
son flytur skemmtiþátt. Aö lokum
verður dansað til 2.. e.m.
Innlend orlofsdvöl . Sumarheimilið Bifröst . Borgarfirði
fiMÍSKSiiSTriii
Si||
.!!!!
rjii
UJ
filíf
BIFROST
orlofsdvöl sumarið 7976
Aöstaöa: Orlofsdvölin er seld á
tveggja manna herbergjum með
handlaug og þriggja manna herbergj-
um með snyrtingu og sturtu.
Orlofsgestir hafa m.a. aðgang að
gufubaði, bókasafni og vel búinni
setustofu.
Börn: Börn undir 8 ára aldri fá ókeyp-
is mat og uppihald i fylgd foreldra
sinna. 8—12 ára börn greiða 1/2 fæðis-
gjald og 1000 kr. fyrir aðstöðu á her-
bergi.
ORLOFSTÍMAR
5 til 8. júni opið hús 1—3 dagar orlofskjör
8. til 15. júni uppselt
15. til 19. júní opiö hús 1—4 dagar orlofskjör
19. til 26. júni orlofsdvöl vika 6.300 á mann
26: til 3. júlí orlofsdvöl vika 6.300 á mann
3. til 10. júlí orlofsdvöl vika 6.300 á mann
10. til 17. júlí orlofsdvöl vika 6.300 á mann
17. til 24. júlí orlofsdvöl vika 6.300 á mann
24. til 31. júlí orlofsdvöl vika 6.300 á mann
31. til 8. ágúst uppselt
8. til 12. ágúst opið hús 1—4 dagar orlofskjör
12. til 21. ágúst uppselt
21. til 28. ágúst orlofsdvöl vika 6.300 á mann
Opið hús: Fólk getur pantað pláss og
framlengt að vild og kynnzt þannig
starfseminni. Gisting og fæði á orlofs-
kjörum. Tveggja m. herb. kr. 1800 og
þriggja m. herb. kr. 2.700.
Fæði orlofskjör: Sérstök matarkort
ávísun á 7 heitar máltiðir og morgun-
mat eða síðdegiskaffi og brauð í 10
skipti.
Matarkortið er ekki bundið við einn,
handhafi getur ráðstafað því að geð-
þótta.
Pantanir og upplýsingar i Bifröst simatimi 9—13 og 15—19 virka daga og
i síma 81255 kl. 14—17 til 21. maí.
Innlend orlofsdvöl . Sumarheimilið Bifröst . Borgarfirði