Tíminn - 19.05.1976, Page 13
Miðvikudagur 19. mai 1976
TÍMINN
13
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall 56
Venetia hló. — Ætlarðu kannske að segja mér/ að hann
elski hana líka? spurði hún tortryggin
Það veit ég ekki.
— En það get ég sagt þér, áður en við skiljum fyrir
fullt og allt.
Hann hef ur ekki minnsta áhuga á henni og mun aldrei fá
hann. Geturðu raunverulega ímyndað þér mann eins og
hann verða ástfanginn af stúlku eins og Myru? Veslings
stúlkan — hún sóar tímanum til einskis. Það veit ég
mætavel! Og með hæðnislegu brosi sendi hún honum
f ingurkoss og gekk inn í svef nherbergið og lokaði á eftir
sér.
Andartaki síðar heyrði hún fremri dyrnar lokast.
Brent. Brent var farinn! Hún sat eftir með þá
tilf inningu, að hafa glatað einhverju, sem ekki var hægt
að bæta. Hún var svo örvæntingaf ull, að hún gat ekki
einu sinni grátið. Hatrið vall og sauð í henni. Þetta var
allt saman Myru að kenna! Brent yrði aldrei allur
hennar aftur, þótt svo að hann kæmi aftur... en hún vissi,
að það gerði hann ekki.
Ég hata hana, ég hata hana, hugsaði Venetia æst. Ef
hún hefði ekki komið til sögunnar, hefði Brent aldrei
fengið þessa hlægilegu ábyrgðartilf inningu. Ef hún væri
ekki, ætti Venetia ennþá auðmjúka ást og tilbeiðslu
Brents. En hún skyldi eignast það aftur. Venetia gat sært
hana, því Brent hafði sagt henni, að Myra elskaði Mark.
Ég skal taka hann frá henni, það skal ég, hugsaði
Venetia. Ég skal láta hana finna, hvernig það er, þegar
önnur kona eyðileggur líf manns. Mark varð fyrir áhrif-
um i kvöld... ég skal fá hann til að elska mig! Ég skal
láta hann elska mig svo heitt, að Myra fái ekkert tæki-
færi!
Hún neri svo á sér hendurnar, að hringarnir skárust
inn í húðina. Þá kom hún auga á trúlof unarhring Brents.
Hún leit á hann, hissa yfir að augu hennar voru full af
tárum. Hún, sem grét aldrei nema á sviðinu
Hún dró hringinn af f ingrinum og f leygði honum niður
i skúffu.
22. kafli
Morguninn, sem Jósep gamli útskrifaðist, kom Myra til
að kveðja hann. Hann var kominn á fætur og beið aðeins
eftir að Brent kæmi og sækti hann. Hann stóð við glugg-
ann og horfði yf ir húsaþök borgarinnar... gamall maður
sem fengið hafði nýja reisn og öðlast nýja trú á líf ið.
Hún vonaði að ÁAark fengi tækifæri til að sjá hann,
áður en hann færi, en hann var önnum kafinn við
uppskurð og líklegt var að Brent kæmi, áður en hann
væri búinn. En að minnsta kosti get ég núna sagt Mark
sannleikann um Jósep gamla, hugsaði Myra ánægð. Hún
og Brent höfðu komið sér saman um að segja engum frá
honum, meðan hann var enn á sjúkrahúsinu, þannig vildi
gamli maðurinn hafa það. En þegar hann væri farinn,'
vissi Myra, að hún yrði að segja Mark sannleikann. Hann
hafði alltaf haft áhuga á gamla manninum og hún efað-
ist ekki um, að það gleddi hann að nú myndi honum líða
betur eftirleiðis. Aukþess myndi það skýra komu Brents
á sjúkrahúsið... það var greinilegt að Mark hafði lagt
ranga meiningu í hana.
Hún hafði ekki talað við hann sfðan, ef frá voru talin
nokkur orð um sjúklingana. Ef hún gat ekki gleymt
undarlegu tilf inningunni, þegar þau höfðu staðið saman
við skurðarborðið nóttina góðu... það hafði verið rétt eins
og þau væru ein manneskja. Gat slík tilfinning kviknað,
til þess eins að slokkna á næsta andartaki? Hún gat ekki
neitað því, að allt frá þeirri nóttu hafði Mark verið
kaldur og fjarlægur, já stundum nær hranalegur við
hana.
En nú varð hún að einbeita sér að Jósep gamla. Þegar
hann heyrði fótatak hennar, sneri hann sér við og brosti.
Hann leit ennþá fremur veiklulega út, en þó tíu sinnum
betur en þegar hann hafði komið á sjúkrahúsið. Hvíld og
gott fæði hafði gert sitt, og allt sem hann þarfnaðist nú,
var sálarró, f járhagslegt öryggi og vinna.
— Ég sé, að það er allt i lagi með þig, sagði hún.
— Rétttil getið Myra. Ég er frískur einsog f iskur.
Myra mátti ekki vera að því að dvelja neitt, það biðu
f leiri sjúklingar eftir henni, þess vegna rétti hún aðeins
fram höndina og sagði brosandi: — Vinna og meiri
vinna, er allt, sem þú þarfnast hér eftir.
— Það er einmitt það sem ég ætla að gera, svaraði
hann. — Brent segist ætla að standa yfir mér með
svipuna í hendinni og gæta þess að ég slái ekki slöku við.
— Ég skal gera mitt. Ég vona, að þú haf ir ekki gleymt,
að þú ætlaðir að mála mig?
MIÐVIKUDAGUR
19. mai
7.00 Morgunútvarp.
12. Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Til umhugsunar. Þáttur
um áfengismál i umsjá
Arna Gunnarssonar.
13.30 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Gest-
ur i blindgötu” eftir Jane
Blackmore. Valdis Hall-
dórsdóttir les þýðingu sina
(8).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.16 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrr börn yngri en
tólf ára.
17.30 Mannlif i mótun. Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri á Akureyri rifjar upp
minningar sinar (5).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.15 Landsleikur i knatt-
spyrnu: Noregur—island.
Jón Asgeirsson lýsir siðasta
hálftima leiksins frá Ulle-
vall-leikvanginum i Osló.
19.45 Tilkynningar.
19.50 Kvöldvaka.
21.30 Útvarpssagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis. Sigurður A.
Magnússon les þýðingu
Kristins Björnssonar (29).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sá svarti senuþjófur”,
ævisaga Haralds Björns-
sonar. Höfundurinn, Njörð-
ur P. Njarðvik, les (22).
22.40 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.25 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
19. mai
18.00 Björninn Jógi Bandarisk
teiknimyndasyrpa. Þýðandi
Jón Skaptason.
18.25 Demantaþjófarnir
Finnsk framhaldsmynd 2.
þáttur. Efni fyrsta þáttar:
Strákarnir Pertsa og Kilu
eru komnir i sumarleyfi og
vita ekki, hvað þeir eiga að
taka sér fyrir hendur. Þeir
gera alræmdan glæpamanni
greiða, og lögreglan fær
grun um, að strákarnir séu
á einhvern hátt tengdir
flokki demantaþjófa.
Þýðandi Borgþór
Kjærnested. (Nordvision-
Finnska sjónvarpið)
18.45 Gluggar Breskur
fræðslumyndaflokkur.
Glergerð. Risaflugvélar.
Oliuborpallar. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Nýjasta tækni og visindi.
Mvndataka af hitageislum
likamans. Nýjungar- i
uppskipunartækni. Verndun
höfrunga. Fylgst með
jörðinni úr gervihnöttum.
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
21.05 Bilaleigan Þýskur
myndaflokkur. Páskavatn
Þýðandi Briet Héðinsdóttir.
21.30 t kjallaranum Hljóm-
sveitin Cabaret flytur
frumsamin lög. Hljóm-
sveitina skipa Tryggvi J.
Hubner. Valgeir Skagfjörð.
Ingólfur Sigurðsson. Finnur
Jóhannsson og Jón
Ólafsson. Stjórn upptöku
Egill Eðvarðsson.
21.50 Kvennastörf —
kvennalaun Dönsk fræðslu-
mynd um konur á vinnu-
markaðnum. launamisrétti
og ýmis önnur vandamál.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson. (Nordvision-
Danska sjónvarpiðl
22.30 Dagskrárlok