Tíminn - 17.06.1976, Blaðsíða 16

Tíminn - 17.06.1976, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Fimmtudagur 17. júnl 1976 A. Conan Doyle: j Húsið „Þrjár burstir" (The Three Gables) in með, og bað mig nefna verð á þeim. Nú eru nokkur þessara húsgagna frá gamla heimilinu minu og mjög vönduð, eins og þér sjáið, svo ég nefndi stóra upphæð sem andvirði þeirra. En maðurinn samþykkti þegar í stað þá upphaeð, er ég hafði nefnt. Mig hefur ávallt langað til að ferðast eitthvað, og nú var þessi sala svo hagstæð, að ég mundi vissulega verða fjárhagslega sjálfstæð, ef kaupin gengu fram. I gær kom svo maður- inn aftur og hafði nú meðferðis fullgerðan kaup- samning. Til allrar hamingju sýndi ég hr. Sutro, lög- fræðingi mínum, samninginn áður en hann væri undir- ritaður. Hr. Sutro sagði við mig: — Þetta er mjög undar- legt skjal. Er yður Ijóst, að ef þér skrif ið undir þetta, þá megið þér ekki taka nokkurn skapaðan hlut með yður burt úr húsinu, ekki einu sinni hlut, sem eru yðar persónuleg einkaeign? Þegar svo umboðsmaðurinn kom aftur um kvöldið, sagði ég honum, að ég vildi aðeins selja húsgögnin. — Nei, allt er með í sölunni, sagði hann. — En fötin mín og skartgripir mínir? — Nú — jæja, einhverja undanþágu mætti kannske gera um slíka hluti. En ekkert má taka brott úr húsinu órannsakað. Skjól- stæðingur minn er fús til að borga vel, en hann hefur sínar kenjar og sérstaka háttu. Hjá honum gildir reglan: allt eða ekkert. — Þá getur ekki af neinum kaupum orð- ið, svaraði ég. Og við þetta situr, en mér fannst allt þetta svo óvenjulegt, að ég hélt... Hér varð óvænt truflun allt í einu. Holmes lyfti upp hendinni, svosem hann áminnti um þögn. Því næst lædd- ist hann fram að dyrunum og reif skyndilega upp hurð- ina. Hann seildis til og dró inn í stofuna hávaxna konu. Hún streittist lítið eitt á móti, en Holmes hélt föstu taki í öxl hennar. — Sleppið mér! Hvað á þetta að þýða?, skrækti hún. — Hæ, Súsanna, hví ert þú hér? — Nú, frú mín, ég kom til að spyrja, hvort gestirnir ætluðu að biða eftir kvöldverðinum, þegar herrann greip mig. — Ég hef heyrt til hennar síðustu fimm mínúturnar, sagði Holmes. — Þér eruð svolítið kvef uð, Súsanna, er ekki svo?. Þér dragið andann of þungt til þess að geta með hægu móti staðið á hleri. Súsanna leit illum augum og hálfundrandi á Holmes. — Hver eruð þér og með hvaða rétti eruð þér að leggja hendur á mig? Ég þurfti aðeins að spyrja að nokkru áður en þér fær- uð. Nefnduð þér, frú Maberley, við nokkurn mann, að þér hefðuð í hyggju að skrifa mér og leita hjá mér ráða? — Nei, hr. Holmes. Það gerði ég ekki. — Hver setti bréfið yðar í póstinn? — Einmitt. Nú, Súsanna, hverjum skrifuðuð þér eða gerðuð viðvart um að húsmóðir yðar ætlaði að leita ráða hjá mér? — Þetta er ósatt. Ég sendi engin boð. — Heyrið nú Súsanna. Fólk, sem er mjög mæðið lifir sjaldan lengi. Það er Ijótt að skrökva. Hverjum gerðuð þér kunnugt um þetta? — Súsanna, greip nú frúin fram í. Ég held að þú sért vond kona og svikakvendi. Ég man það núna, að ég sá þú varst að tala við einhvern yfir girðinguna. — Það var um min eigin málefni, svaraði þernan önuglega. — Má ég láta þess getið, að það var Barney Stockdale, sem þér voruð að tala við, mælti Holmes. — Nú ef þér vitið það þurf ið þér líklega ekki að spyrja. — Ég var ekki viss um það áður, en ég er viss um það nú. En, Súsanna, það þýðir tíu sterlingspund til yðar ef þér segið mér, fyrir hvern Barley er að starfa. — Fyrir þá, sem geta boðið þúsund pund í stað tíu, sem þér bjóðið. — Svo auðugur maður. En þér brosið. Hér er þá um að ræða auðuga konu. Fyrst við erum svo langt komin er réttast, að þér segið okkur naf n hennar og fáið tíu punda seðilinn. — Ekki þótt sáluhjálp yðar lægi við. — Talið nú strax, Súsanna. — Ég er að fara héðan. Ég hef fengið nóg af ykkur öllum. Ég sendi eftir koffortinu mínu á morgun. Hún ruddist fram að dyrunum. — Verið þér sælar, Súsanna. Fáið yður eitthvað, sem linar sársaukann. Holmes varð strax alvörugefinn, er dyrnar höfðu lokazt eftir Súsönnu. — Nú verður að hef jast handa. Athugið, hve hratt og öruggt er unnið frá hinni hliðinni. Bréf yðar til mín var póstmerkt kl. 10 fyrir hádegi. Samt gat Súsanna komið boðum til Barneys. Hann fær tíma til að finna umbjóð- anda sinn, sem ég býst við að sé kona, og taka við f yrir- 111 iiill Fimmtudagur 17. júni Þ jóðhátið ardagur íslendinga 8.00 Morgunbæn Séra Jón Au&uns fyrrum dómprófast- ur flytur. 8.05 tslenzk hátfóartónlist, sungin og leikin. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustugreinum dagblaö- anna. 9.15 Morguntónleikar 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Frá þjóðhátiö I Reykja- vlk. a. Hátiðarathöfn á •Austurvelli Már Gunnars- son formaður þjóðhátiöar- nefndarsetur hátíðina. For- seti Islands, dr. Kristján Eldjárn, leggur blómsveig að fótstalla Jóns Sigurðs- sonar. Geir Hallgrlmsson forsætisráöherra flytur á- varp. Avarp fjallkonunnar. Lúðrasveit verkalýðsins og Karlakórinn Fóstbræður leika og syngja ættjarðar- lög, þ.á.m. þjóðsönginn. Stjórnendur: Ölafur L. Kristjánsson og Jónas Ingi- mundarson. Kynnir: Ólafur Ragnarsson. b. 11.15 Guðs- þjónusta I Dómkirkjunni. Séra Úlfar Guðmundsson biskupsritari messar. Guð- mundur Jónsson og Dóm- kórinn syngja. Organleik- ari: Ragnar Björnsson. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veöurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Kórsöngur i útvarpssal: Skagfirzka söngsveitin syngur islenzk og erlend lög. Söngstjóri: Snæbjörg Snæbjarnardóttir. 14.00 Svipmyndir úr sjálf- stæðisbaráttu Islendinga á 19. öld. Einar Laxness cand. mag. tekur saman dag- skrána. 15.00 Létt tónlist frá útvarp- inu I Wellington á Nýja-Sjá- landi. Stanley Black og Os- wald Chessman stjórna hljómsveitunum, sem leika. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir 16.25 tslandsljóö eftir Einar Benediktsson Elin Guðjóns- dóttir les. 16.40 Barnatlmi a. Sigrún Björnsdóttir sér um stund fyrir ungu börnin, litla barnatlmann. b. Gunnar Valdimarsson stjórnar þætti fyrir stálpaðri börn, þar sem fjallað veröur um listsköpun á Islandi fyrr og slðar. 17.30 „Eitthvað til að lifa fyr- ir” eftir Victor E. Frankl. Hólmfriður Gunnarsdóttir les þýðingu sína á bók eftir austurriskan geðlækni (4). 18.00 Stundarkorn með Rögn- valdi Sigurjónssyni pfanó- leikara. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 1 sjónmáli. Skafti Harð- arson og Steingrimur Ari Arason sjá um þáttinn. 20.00 Einsöngur f útvarpssal: Elisabet Erlingsdóttir syng- ur 20.25 Leikrit: „Happið”, gamanleikur eftir Pál J. Ar- dal. Leikstjóri: Baldvin Halldórsson...Persónur og leikendur: Hallur hrepp- stjóri... Valdimar Helgason, Valgerður dóttir hans... Ragnheiður Steindórsdóttir, Helgi ráösmaður... Bessi Bjarnason, Grlma móðir hans... Guðrún Stephensen, Kristin ráðskona... Sigrlöur Hagalin, Gunnar kennari.... Jón Gunnarsson, Sigga vetrarstúlka... Lilja Þóris- dóttir. 21.40 Lúðrasveitin Svanur leikur 22.00 Fréttir 22.15 Veöurfregnir Danslög af hljómplötum. Þ.á.m. leikur og syngur hljómsveit Hauks Morthens 01.00 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.