Tíminn - 24.07.1976, Page 1
HÁÞRÝSTIVÖRUR
okkar sterka hlið
WMSSMBSSaSSMm
Síðumúla 21
Sími 8-44-43
Niðursuðuvörur til Nígeríu:
Fyrstu viðbrögð jákvæð
— segir Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri S.L.
gébé Rvik —Eins og skýrt var frá
i Timanum fyrir stuttu siðan,
hefur Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins verið með tilraunir
á niðursuðu spærlings og loðnu-
flaka, og fór Eysteinn Helgason,
framkvæmdastjóri Söiustofnunar
lagmetis nýlega til Nigeriu til að
kynna þessa nýju vöru og athuga
markaðsm öguleika. — Fyrstu
viðbrögð Nigeriumanna voru góð,
en ómögulegt er að segja nokkuð
um framtiðarviðskipti á þessu
sviði enn sem komið er, sagði
Eysteinn Helgason, en hann er
nýkominn til landsins frá Nigeriu.
Eysteinn sagði að þetta hefði
aðeins verið frumkönnun á mark-
aði fyrir niðursuðuvörurnar, og
hefði hann kynnt vöruna fyrir
fjölmörgum aðilum i Nigeriu, og
nú væri aðeins að biða og sjá til,
hvert svar þeirra verður.
VERDA GRÁSLEPPUHROGN
FULLUNNIN HÉR Á LANDI?
gébé Rvik — Það væri mjög auð-
velt að fullvinna grásleppuhrogn-
in hér á landi I kavlar, en það eru
um fjórar verksmiðjur sem til
greina myndu koma, og hafa þær
þegar þau tæki sem nauðsynleg
eru.sagði Jón ögmundsson, efna-
fræðingur hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins. — Það eru
markaðserfiðleikar sem valda
þvi, fyrst og fremstjað litið hefur
verið i þessu gert, sagði Eysteinn
Helgason, framkvæmdastjóri
Sölustofnunnar lagmetis, t.d.
hefur verið 30% tollur á þessari
vöru til Frakklands, sem er lang-
stærsli kaupandinn, og hefur
markaðurinn þangað þvf verið
lokaður.
— Þetta eru mest tollaspursmál
i sambandí við Efnahagsbanda-
lagslöndin, en þar eru einmitt
stærstu markaðirnir fyrir kaviar.
— Þetta er mjög einföld fram-
leiðsla, sagði Jón ögmundsson,
sérstaklega þar sem haegt er að
vinna grásleppuhrognin með
þeim vélum sem til eru þegar.
Þetta gæti tryggt atvinnu i niður-
suðuverksmiðjunum jafnvel allt
árið. Útflutningsverðmæti
grásleppuhrognanna myndi auk-
ast að miklum mun, ef við gætum
fullunnið þau hér heima.
Umferðaslys
ASK-Reykjavik. Um klukkan
tuttugu i gærkvöldi varð alvarlegt
umferðarslys rétt vestan við
gatnamót Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar. Sjö ára
gamall drengur varð þar fyrir
bifreið er var á leið vestur eftir
Miklubraut. Bifreiðin hafði rétt
á Miklubraut
farið yfir gatnamótin á grænu
ljósi er drengurinn tók sig skyndi-
lega út úr hópi er var við götuna
og hljóp þvert yfir hana. Að sögn
lögreglunnar eru meiðsli drengs-
ins talin alvarleg, en þau voru
ekki fullrannsökuð er blaðið fór I
prentun i gærkveldi.
RANNSOKNAR-
LÖGREGLUAAAÐUR
HANDTEKINN
FYRIR
TÉKKAFÖLSUN
UPP Á TVÆR
AAILUÓNIR KR.
hs-Rvik. Um skeið hefur staðið
yfir rannsókn út af fölsuðum
tékkum, sem notaðir hafa veriö
i viðskiptum i bönkum og
verzlunum hér i borg og viðar,
og likur þóttu til að sami maður
hefði staðið að. í gærmorgun
handtók rannsóknarlögreglu-
maður mann. sem var að selja
Háaleitisútibúi Iðnaðarbankans
tékka, að fjárhæð 150.000 krón-
ur, með fölsuðum nafnritunum.
Maður þessi reyndist vera rann-
sóknarlögreglumaður, sem
sjálfur hefur unnið að rannsókn
tékkamisferlis.
Samkvæmt upplýsingum,
sem rannsóknarlögreglan sendi
frá sér i gær, er nafn mannsins
Matthias Guðmundsson, og hef-
ur hann i skýrslu sem tekin var
af honum i gær kannazt við að
hafa notað i viðskiptum nokkra
falsaða tékka, auk tékka þess,
sem hann var með er hann var
staðinn að verki. Timinn hefur
áreiðanlegar heimildir fyrir
þvi, að hann hafi svikið út um
tvær milljónir króna siðan hann
hóf störf hjá rannsóknarlög-
reglunni i Reykjavik i febrúar
1975, en hann starfaði áður i lög-
regluliði Reykjavikurborgar.
Matthias var færður i varð-
hald og hefur málinu verið visað
til sýslumannsins i Kjósarsýslu,
þar sem hann á heimilisvarnar-
þing.
Þessi handtaka er afleiðing
geysiumfangsmikillar rann-
sóknar á tekkamisferli, sem
bæði rannsóknarlögreglan og
bankarnir hafa staðið að, en ef
að likum lætur eru öll kurl ekki
komin til grafar ennþá.
-hs- Rvik. Það hefði líklega
orðið handagangur i öskj-
unni, ef flyðran sú arna hefði
dregizt á færi og sennilega
hefði hún veitt kröftuga mót-
spyrnu. En gegn hinum stór-
virku og þungu vörpum má
hún sin lítils og þvi fór sem
fór — þarna liggur hún eins
og skata, eins og máltækið
segir. Timamynd: Róbert.
Aætlun aerð um lokn-
dreifinqu sjónvaips
— heildarkostnaður: miljarður
MÓL-Reykjavik .Menntamála-
ráðherra hefur skipað nefnd, sem
á að gera timasetta áætlun um
dreifingu sjónvarps til þeirra
landsmanna, sem hafa það ekki
nú þegar eða búa við ófullnægj-
andi sjónvarpsskilyrði. Einnig á
nefndin að gera tillögur um fjár-
öflun til þessara framkvæmda.
Nefndina skipa Ingi Tryggvason,
Sverrir Hermannsson og Stein-
grímur Hermannsson, sem er
formaöur.
Það eru enn nokkur hundruð
býli, sem búa við mjög léleg eða
alls engin sjónvarpsskilyrði sagði
Vilhjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra, er Timinn
spurðist fyrir um málið. Hér er
aðallega um að ræöa svæði á
Austur- og Suðausturlandi, Vest-
fjörðum og hér og þar um
Norðurland. Þá eru skilyrði
viðast hvar á miðunum slæm.
Það er ljóst, að þetta verkefni
er mjög dýrt og verður varla
framkvæmt i bráðina, þvi
kotnaðurinn gæti farið allt upp i
einn miljarð, ef vel á að gera.
Fjáröflun til þessara fram-
kvæmda verður til athugunar hjá
nefndinni, en á siðasta þingi var
súhlið málsins rædd að einhverju
leyti. Steingrimur Hermannsson
ofl. fluttu þá frumvarp sem gerði
ráð fyrir að hluti afnotagjaldsins
rynni til þessara framkvæmda,
en frumvarpið var ekki afgreitt.
Þá flutti Þorvaldur Garðar
Kristjánsson tillögu, þar sem gert
var ráð fyrir að byggðasjóður
stæði fyrir framkvæmdunum og
var þeirri tillögu visað til rikis-
stjórnarinnar.
Nú höfum við sent stjórn
byggðasjóðs bréf og beðið þá að
athuga gaumgæfilega hvaða þátt
þeir geti tekið i framkvæmdun-
um. Auk þess hefur verið haft
samráð við bæði útvarpsstjóra og
póst- og simamálastjóra og þeir
beðnir að greiða fyrir störfum
nefndarinnar eftir beztu getu. Og
er þá vonandi að einhver skriöur
komizt á máliö, þvi hér er bein-
linis um að ræða hrein mannrétt-
indi, sagði Vilhjálmur að lokum.