Tíminn - 24.07.1976, Blaðsíða 11

Tíminn - 24.07.1976, Blaðsíða 11
Laugardagur 24. júli 1976. TÍMINN n Myndir Guömundar Einarssonar frá Miðdai sýna á skemmtilegan hátt Þorlákshöfn rétt eftir alda- mótin. Þorláksmessa í Þorlákshöfn ASK-Reykjavik.l dag og á morg- un eru siðustu forvöð að sjá heimilisiðnaðar og heimildar- sýninguna á — þorláksmessu á sumri — sem hefur verið i Þor- lákshöfn. Á sýningu þessari gefur á að lita þróunarsögu Þorláks- hafnar i myndum og sýningar- gripum sem staðarmenn hafa unnið. Þarna er einnig mjög merkilegt yfirlit af teikningum eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal, en skyssur af þeim gerði hann á sjóménnskuárum sinum á fyrri hluta aldarinnar. Margt hafa bæjarbúar gert sér til skemmtunar þessa daga, en hátiðarhöldin hófust s.l. laugar- dag. Þá var boðið oddvitum og þingmönnum úr Árnessýslu til kaffisamsætis i félagsheimilinu. A þriðjudagskvöld var svo aðalsamkoman. Þá setti Gunnar Markússon skólastjóri — Þor- láksmessuna — Við þetta tækifæri söng Söngfélag Þorlákshafnar, en stjórnandi var Ingimundur Guðjónsson. Sigurgrimur Jóns- son frá Holti við Stokkseyri sagði frá sjómennsku i Þorlákshöfn 1918. Leikflokkur sýndi leikrit Agnars Þórðarsonar, Omar kem- ur heim, og Sigurður Þorleifsson sagði frá uppvexti sinum I Þor- lákshöfn en hann er þar fæddur. Söngfélag Þorlákshafnar á samkomunni s.l. þriðjudagskvöld W wk * £b| Vi Ir ' » " ^ ~ 1 1 Sé' ' w W' Wr Nýju fiskverkunarhús isbjarnarins i örfirisey Tfmamynd: Róbert. ÍSVINNSLA HAFIN í hinum nýju húsakynnum ísbjarnarins í Örfirisey —hs—Rvik. — Þaö er nú öðru nær að við séum að fara að fiytja, sagði Ingvar Vilhjálmsson, for- stjóri isbjarnarjns, er hann var inntur eftir þvi, hvort flutningur stæði fyrir dyrum hjá fyrirtæk- inu. isvinnslan er hins vegar komin i gang i hinum nýju húsa- kynnum isbjarnarins I örfirisey. Ingvar sagði allt i óvissu um það, hvenær starfsemin yröi flutt. Aðallega væri það fjármagns- skortur sem tefði, en lánasjóð- irnir hafa verið eitthvað tregir til utlána upp á siðkastið. Enn hefur ekki verið ákveðið, hvað verður um gömlu fiskverk- unarhúsin úti á Seltjarnarnesi. Trilla til sölu 4,8 tonn mikið yfir- byggð 8-9 ára. Vél Volvo Penta 25-30 ha með tvöföldu kæli- kerfi. Dýptarmælir og fl. Upplýsingar í sím- um 91-42758 eða 93- 6257. SÝNINGARBÍLL Á FERÐ UM LANDIÐ Akurevri í dag kl. 5-7 og d morgun í Mývatnssveit kl. 5-6 og Húsavík kl. 7-10 SUBARU BÍLLINN - SEM ALLIR TALA UM framhjóladrifsbíll sem verður fjórhjóladrifsbitlinn, sem klifrar eins og geit, vinnur eins og hestur en er þurftarlítill eins og fugl. INGVAR HELGASON Von^rland:0v/Sogaveg — Símar 84510 og 8451 1 Rafha hitatúba og fylgihlutir til sölu. Upplýsingar i sima 3-84-30 til kl. 18 og 3-34- 82 eftir kl. 18. Akranes Vantar börn til þess að bera út Timann. Guðmundur Björnsson, simi 1771.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.