Tíminn - 24.07.1976, Side 7

Tíminn - 24.07.1976, Side 7
Laugardagur 24. júli 1976. TÍMINN 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhús- inu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur f Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug- lýsingaslmi 19523. Verð I lausasölu kr. 50.00. Askriftar- gjaldkr. 1000.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Viðgerðaraðstaðan á Keflavíkurflugvelli Hinn 11. marz siðastliðinn afgreiddi Alþingi samhljóða eftirfarandi þingsályktunartillögu, sem Jón Skaftason hafði flutt: „Alþingi ályktar að láta athuga i samráði við Flugleiðir h.f. og önnur flugfélög, er hagsmuna hafa að gæta, á hvern hátt hagkvæmast sé að koma upp aðstöðu til viðgerða og viðhalds flugvélum á Keflavikurflugvelli”. Jón Skaftason hafði fyrst flutt þessa tillögu á þinginu i fyrravetur og flutti hana svo aftur á þinginu i vetur.Rökstuðningur Jóns fyrir tillög- unni var m.a. þessi: „Keflavikurflugvöllur er eini alþjóðlegi flug- völlurinn á Islandi. Erlendar og innlendar flug- vélar hafa notað hann til millilendinga á flugi yfir Norður-Atlantshaf og i sambandi við þær hefur risið upp talsverð atvinnustarfsemi þar, sem væntanlega fer vaxandi i framtiðinni. Á Keflavikurflugvelli vantar þó tilfinnanlega viðgerðar- og viðhaldsaðstöðu fyrir flugvélar, sem þarf að vera fyrir hendi á vel búnum al- þjóðlegum flugvelli. Sú aðstaða, sem fyrir hendi er, er að langmestu leyti á vegum varnarliðsins og fyrir herflugvélar. Timabært er þvi að athuga, hvernig bezt má að þessum málum standa i framtiðinni, og má minna á tvennt i þessu sambandi. í fyrsta lagi standa nú fyrir dyrum miklar framkvæmdir á Keflavikurflugvelli. Er m.a. gert ráð fyrir að skilja alveg að hernaðarflug- þjónustuna og farþegaþjónustuna. Er stefnt að byggingu nýrrar flugstöðvar fyrir farþegaflug á nýjum stað á vellinum og miklum fram- kvæmdum til þess að búa betur að þessari starfsemi. Viðgerðar- og viðhaldsþjónusta flugvéla þyrfti að vera þáttur þessara fram- kvæmda. í öðru lagi brann viðgerðarflugskýli Flug- félags íslands á Reykjavikurflugvelli til grunna i s.l. janúarmánuði. Sú starfsemi, sem þar fór fram, er þvi á hrakhólum um sinn og ekki vitað nú, hvernig úr verður bætt svo haganlegast sé. Um hundrað manns, að mestu leyti lærðir flugvirkjar, störfuðu við flugskýli Flugfélags íslands á Reykjavikurflugvelli. Þrátt fyrir bráðabirgðaaðstöðu i flugskýli varnarliðsins á Keflavikurflugvelli til eftirlits og viðhalds Boe- ingvéla Flugfélags íslands og aðstöðu fyrir Fokkervélar félagsins i flugskýli Landhelgis- gæzlunnar, er atvinnuöryggi þessarar stéttar ótryggt. Viðgerðir og viðhald islenzkra flug- véla erlendis kostar mikinn erlendan gjald- eyri, sem við höfum mikla þörf fyrir til ann- arra nota.” Siðan Alþingi samþykkti þessa tillögu Jóns Skaftasonar, hefur verið upplýst, að íslend- ingar eru eigendur þriggja stórra flugvéla- skýla á Keflavikurflugvelli, sem vel má nota til viðgerðar og viðhalds, að dómi islenzkra flug- virkja. Hér hefur þvi skapazt aðstaða til að hrinda þessari ályktun Alþingis i framkvæmd fyrr en ella, en tvímælalaust er hér um að ræða mikið hagsmunamál flugvirkja, flugfélaga og þjóðarbúsins i heild. Þ.Þ. New York Times um framboð demókrata: Demókratar völdu sterkustu mennina Þeir eru á ný undir merkjum Wilsons og Roosevelts Það virðist Tnricfctmiveg- inn sameiginlegt álit banrife riskra blaða, að demókröt- um haíi ekki getað heppnazt betur framboö sitt og þeir sæki nú fram undir hinum gömlu hefðbundnu merkjum Wilsons og Roosevelts, sem eru frægustu forsetar þeirra. Þetta kemur m .a. fram i for- ustugrein i New York Times, sem fer hér á eftir I lauslegri þýðingu: DEMÓKRATAR i Banda- rikjunum hafa nú útnefnt þá Jimmy Carter rikisstjóra Georgiafylkis og Walter F. Mondale öldungadeildarþing- mann frá Minnesota fram- bjóðendur sina i forseta- kosningunum 1976. Bjartsýni og eining rfkir meðal flokks- manna, sem ganga nú til kosningabaráttunnar fullviss- ir þess að frambjóðendur þeirra muni eiga fylgi að fagna sem viöast með banda- risku þjóðinni. Þeir Carter og Mondale, sem voru allt að þvi sjálf- kjörnir á flokksþinginu i New York I fyrri viku, eru vafa- laust „sterkustu” frambjóð- endur sem hugsazt gátu, og eiga eftir að reynast repú- blikönum þungir i skauti, hvort svo sem Gerald Ford eða Ronald Reagan — eða jafnvel þótt báðir væru —- verður fyrir valinu. Hinn undraverði árangur Jimmys Carter að ná útnefn- ingu tU forsetakjörs mun lengi verða i minnum hafður i bandariskri stjórnmálasögu. Hann var sem næst óþekktur er hann hóf baráttu sina fyrir 10 mánuðum sem „nýtizku” suðurrikja-fylkisstjóri. Hann steypti hverjum hægri og vinstri flokksstólpanum á fæt- ur öðrum, og stjakaði þeim, sem reyndu að troða meðal- veginn með honum, til hliöar. Og smiðshöggið rak hann á þennan þátt sigurgöngu sinnar með vali varaforsetaefnis — liklega að betur a thuguðu máli en áður eru dæmi til i sögu Bandarikjanna: Hann valdi þann frambjóðanda, scm oltið hafði út úr baráttunni áður en hún hófst, vegna þess að hann taldi sig vonlausan um sigur. Enguaðsiður var Mondale vel valinn: Hann nýtur mikillar virðingar á þingi, auk þess sem hann er framboðinu mik- ill styrkur — jafnvel þótt Cart- er þættist láta annað i veðri vaka — einmitt þar sem for- setaefnið er veikast fyrir, þ.e. meðal þeirra hægfara frjáls- lyndismanna sem mynda kjarna flokksins á Vestur- ströndinni, norðurhluta Mið-Vesturrikjanna, og i Norðausturhéruðunum. CARTER á ekki einungis stálvilja sinuimskarpri greind og óbilandi sjálfstrausti að þakka útnefninguna, heldur ekki siður þeim furðulegu hæfileikum sinumaðná trausti kjósenda i hverju máli, hvaða skoðun.sem þeirannars höfðu fyrir. Þannig fékk hann á sitt band hið breiða miðfylgi demókrata. Carter sjálfur var annars talinn nokkuð ihalds- samur, allt þar til á flokks- þinginu, einkum i samanburði við helztu keppinauta sina i forkosningunum. Engu að siður er stefnuskrá flokksins, sem samþykkt var á flokksþinginu, i meginatriðum frjálslynd, og vandlega sniðin að þörfum Carters. Hiö glæsi- lega val varaforsetaefnis, og ræður beggja frambjóöenda, er þeir þáðu útnefninguna, benda eindregið til þess að kosningabaráttan muni fylgja hefðbundnum brautum demó- krataflokksins, allt frá Woodrow Wilson með kjörorð sitt um „nýtt frelsi” (New Freedom) og Franklin D. Roosevelt með „uppstokkun” sina (New Deal). Eins og vænta mátti skuld- batt Carter sig á hvorugan veginn i hinni fremur óhefð- bundnu ræðu sinni á flokks- þinginu. Hann — og þó einkum Mondale — lögðu i ræðum sin- um megináherzlu á einingu flokksins og þjóðarinnar, en jafnframt kom Carter á óvart meö skrumkenndum og sundrandi árásum á litt -skil- greinda „forréttindastétt”, sem „valdið hafi þjáningum of margra”, sem „aldrei skorti mat né klæði”, sendi börn sin i „einkaskóla, sem séu öðrum lokaðir”, sem „aldrei sé látin svara til saka fyrir mistök sin”, o.s.frv. I SAMA orðinu og hann boð- aði „algjöra uppstokkun á skattakerfi voru,” sjúkrasam- lag fyrir alla þjóðina, og aðrar langþráðar umbætur hinnar sömu frjálslyndisstefnu, lét hann ekki hjá liða, að leggja áherzlu á það, „hve mikilvægt frjálst framtak væri þjóð vorri”, „samkeppni er árangursrikari en áætlunar- búskapur” og „stjórninni ber aðhafa sem minnst afskipti af hinu frjálsa efnahagskerfi voru” — sem allt eru hugsjón- ir „ameriskari en eplakaka” og til þess fallnar að eyða þeim ótta ihaldsaflanna, að flokkurinn hafi sveiflazt of langt til vinstri — sem hann hefur ekki gert. Demókrataflokkurinn virð- ist, eftir þvi sem bezt verður séð, stefna inn á sina venju- leguhóflega frjálslyndu braut, gagnstæða þeirri, sem ein- kennt hefur flokk Repúblikana undanlarið, og búizt er við af hinni nýju stefnuskrá hans. En demókratar kosningaársins 1976 eru demókratar i nýjum stil — lausir við þá ólgu, sem hrjáði þá (og allt að þvi sundr- aði) árin 1972 og 1968. Nú erú þeir undir forystu stjórnmála- snillings, sem vann sinn sigur undir merki sameiningar, og væntanlega stefnir að mark- miðum sinum og flokksins með viljafestu og „öguðu afli”. (11.Þ. þýddi og endursagði). Mondalc og Carter á flokksþingi dcmókrata.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.