Tíminn - 24.07.1976, Blaðsíða 16

Tíminn - 24.07.1976, Blaðsíða 16
FÓÐURVÖRUR þekktar UAA LAND ALLT fyrir gæði Guðbjörn Guðjónsson Heitdverzlun Siðumúla 22 Slmar 85694 & 85295 RAFDRIFIN Brýning tekur aðeins 1—2 mfnútur. DDVKII Stærö aðeins DrL T IHI 25x20x15 sm. EINNIG: 30 tegundir Victorinox hnífa — ryðfritt stál með Nylon sköftum. ÁRNI ÓLAFSSON & CO. ... .n i 40088 a* 40098 __ ^ALLAR TEGUNDIR" FÆRIBANDAREIMA FYRIR Lárétta færslu Einnig: Færibandareimar úr ryöfríu og galvaniseruöu stáli Andreotti ætlar að mynda enn eina minnihlutastjórn Andreotti ætlar nú aO mynda minnihlutastjórn og treysta á velvild Berlinguers... Reuter, Róm — Búizt er við að forsætisráðherraefni flokks Kristilegra demókrata á Italiu myndi eins-flokks minnihluta- rikisstjórn þar i næstu viku — og treysti á stuðning Kommúnista- flokks landsins i þeim mál- efnum sem skipta sköpum, til þess að tryggja setu stjórnar- innar. Stjórnmálasérfræðingar á ítaliu sögðu i gær að minni- hlutarikisstjórn Kristilegra demókrata myndi svo til örugg- lega verða felld með vantraustsatkvæðagreiðslu á italska þinginu, nema þvi aðeins að hinn valdamikli kommún- istaflokkur landsins tæki þá ákvörðun að sitja hjá við at- kvæðagreiðslu. Nokkrir aðilar úr röðum hægri vængs flokks Kristilegra demókrata hafa látið að þvi liggja að þeir gætu staðið á móti myndun eins-flokks minnihluta- stjórnar, ef hún yrði að treysta á velvild kommúnista til þess að lifa. Stjórnmálasérfræðingar sögðu þó að liklega myndi for- sætisráðherraefni Kristilegra demókrata, Giulio Andreotti, halda fast við áætlun sina og mynda rikisstjórnina, þrátt fyrir ljón á veginum innan flokks hans sjálfs og þrátt fyrir þá yfirlýsingu Enrico Berlinguers, leiðtoga italska kommúnistafiokksins, sem hann gaf á fréttamannafundi á fimmtudagskvöld, að flokkur hans væri ekki i vasa neins manns eða flokks annars. Kristilegir demókratar hafa tvö hundruð sextiu og tvö sæti á þingi, en alls eru þingmenn i fulltrúadeild sex hundruð og þrjátiu. Kommúnistar hafa þar tvö hundruð tuttugu og niu þing- menn. sem til þessa hefur ekki viljað gefa endanleg svör um það hve langt stuðningur kommúnista muni ná. Frakkar sprengja Iteuter, Paris. — Frakkar tilkynntu i gær, að þeir hefðu sprengt tvær kjarnorku- sprengjur á tilraunasvæði sinu neðanjarðar i Suður- Kyrrahafi i þessum mánuði. Hefðu sprengingarnar verið hluti af tilraunaáætlun, sem miðaði að þvi að fullgera smáa kjarnaodda. Frakkar stefna að þvi að kjarnorkukafbátar þeirra verði búnir eldflaugum sem bera marga kjarnaodda Bilanir að koma fram í Marsferjunni: Vélarmurinn sem taka á sýni af jarðvegi fastur sendir ferjunnar bilaður Hýjar loftþéttar umbúðir Reuter, Pasadena. — Vonir manna risu i gær um að vélræn bilun i marsferjunni Viking, myndi ekki trufla leit ferjunnar að ummerkjum um lif á plánet- unni. Vandamál hefur komið upp I sambandi við langan vélrænan arm, einna likustum armlegg vélmennis, sem nota átti til þess að taka upp sýni af jarðvegi á Mars, en ætlunin var að fram- kvæma ákveðnar efnafræðilegar tilraunir og athuganir á sýnun- um, til þess að ákvarða hvort þau fælu i sér einhver merki um lif- efni — annað hvort plöntu eða dýr. Armurinn festist i gær, þegar visindamenn létu hann gera æfingahreyfingar. Talið er að vandamálið stafi frá festipinna sem hélt verndarloki á sinum stað, yfir vélræna arminum. Lokið sjálft datt af, eins og það átti að gera, en pinninn, aftur á móti, hefur ekki farið af. James Martin, einn af fram- kvæmdastjórum Viking- áætlunarinnar, sagði að þótt festipinninn hefði orðið til þess I gær, að armurinn næði ekki fulla lengd frá ferjunni, þá væri það ekki svo ýkja alvarlegt vanda- mál. Vísindamenn munu reyna að hrista pinnan lausan á sunnudag, með þvi að hreyfa arminn, en jafnvel þótt það takist ekki, þá telja þeir hægt að hreyfa arminn nægilega mikið til þess að ná jarðvegssýnishornum og koma þeim til rannsóknarstofu Mars- ferjunnar. Hlutverk verndarhvolfsins var að vernda tæki vélræna armsins, og halda honum gerilsneyddum, þannig að hann bæri ekki með sér neitt frá jörðu sem gæti mengað jarðveg á Mars. — Ef við leysum þetta vanda- mál á sunnudagsmorguninn, þá getum við haldið áfram sam- kvæmt þeirri áætlun sem nú er I gildi, og náð jarðvegssýnunum, sagði Martin i gær. En, jafnvel þótt tilraunir til að iosa pinnann mistakist, þá getum við gert allt það sem við ætluðum okkur fyrir þvi, það er, tekið upp jarðvegssýni, komið þvi inn i ferjuna og framkvæmt allar þær kannanir sem við höfðum áætlað, sagði Martin ennfremur. ÁRNI ÓLAFSSON & CO. ---- 40088 a* 4*0098 .> Onnur tæknileg vandamál hafa nú varpað skugga á fullkomna lendingu Viking Marsferjunnar, og fyrstu myndirnar sem hún sendi frá plánetunni. Meðal annars hafa senditæki bilað og fleira. Sendirinn sem kemur upplýsingum til jarðar, um sendi móðurskipsins sem er á sporbaug um Mars, fór skyndilega á fimmtud. að senda með mun minni orku en átti að vera. Vand- ræðin virðast stafa af truflunum á fyrirmælasendingum til raf- eindaheila Viking ferjunnar. Þótt sendirinn gefi ekki frá sér nema eins watts orku, i stað tiu watta, eins og hann á að gera, geta þó visindamenn fengið það sem þeir óskuðu eftir út úr ferð ferjunnar, nema hvað þeir verða þá að takmarka verulega fjölda mynda sem þeir fá frá plánet- unni. Særinga- mdl í Vestur- Þýzkalandi Reuter, Aschaffenburg. — Tuttugu og þriggja ára gömui stúlka, sem var nem- andi i guðfræði, svalt til bana ellefu mánuðum eftir að kaþólskur prestur hóf sær- ingar yfir henni, — til þess að reka djöfulinn úr henni, — að þvi er saksóknarinn i Aschaffenburg i Vestur- Þýzkalandi skýrði frá i gær. Karl Stenger, saksóknari, sagði að rannsókn málsins hefði leitt i ljós-að stúlkan hafi sjálf svelt sig til bana, en hún lézt á heimili sinu i þorpinu Klingenberg, þann 1. júli siðastliðinn. Foreldrar hennar leituðu á siðasta ári til prestins, eftir að læknum hafði mistekizt að hjálpa henni, en einn læknanna taldi að hún þjáðist af flogaveiki. Presturinn, faðir Arnold Renz, sextiu óg fimm ára gamall, skoðaði stúlkuna og sagði að þess sæjust ýmis merki að hún væri á valdi djöfulsins. Heimildin til að beita særingum við stúlkuna kom siðan frá biskupi hér- aðsins, dr. Franz Stangl. Stenger saksóknari skýrði frá þvi igær að allir þeir sem viðriðnir væru málið gætu átt von á ákæru fyrir að valda dauða með kæruleysi. Foreldrar stúlkunnar sögðu að hún hefði neitað að sæta læknismeðferð, en saksókn- arinn heldur þvi fram að læknar hefðu ef til vill getað haldið henni á lifi með þvi að gefa henni næringu i æð. Fréttablaðið Bild i Þýzka- landi hafði eftir föður Renz: — Djöfullinn talaði úr munni hennar. Hann hegðaði sér jafnvel eins og Nero og Hitl- er. Hann sagði ,,ég hef svo mikil völd nú, þvi enginn trú- irá tilveru mina lengur”, og siðan hló hann. — Faðir Renz tók særingar sinar upp á segulband og segir saksóknarinn að bönd- in staðfesti, að presturinn hafi aðeins beitt bænum i viðskiptum sinum við stúlk- una. Biskupinn, sem gaf út heimildina til beitingar sær- inga við stúlkuna, var i sumarleyfi i gær og náðist ekki til hans. Maóistar dbyrgir fyrir sprengingunum ó Spdni rwm KAFFIÐ fráBrasilíu Reuter, Madrid. — Lögreglan á Spáni sagði i gær að klofnings- hópur úr spænska Kommúnista- flokknum, sem er ólöglegur, beri ábyrgð á sprengingaöldu þeirri sem olli skemmdum á opinberum byggingum og minnismerkjum i ýmsum borgum á Spáni um siðustu helgi. Nokkrir félagar úr hópnum hafa verið handteknir, að þvi er segir i tilkynningu frá lög- reglunni. Þeir hafa viðurkennt að hafa komið fyrir sprengjunum i Madrid og i sex öðrum borgum siðastliðinn sunnudag, en þá voru liðin rétt fjörutiu ár frá upphafi borgarastyrjaldarinnar á Spáni. I tilkynningunni sagði ekki hverjir mennirnir væru, né heldur hve margir hefðu verið handteknir. Lögreglan sagði aðeins að hinir ábyrgu væru úr Kommúnista- flokki Spánar, en heimildamenn meðal stjórnarandstæðinga skýrðu frá þvi að þeir væru félag- ar i flokksbroti Maóista, sem klofið hefðu sig frá flokknum á siðasta ári. Tvennt slasaðist i sprengingun- um á Spáni um helgina, en þeim var aðallega beint gegn höfuð- stöðvum spænsku Þjóðar- hreyfingunnar, sem er eini lög- legi stjórnmálaflokkur landsins, enn sem komið er, svo og gegn skrifstofum verkalýðshreyfing- arinnar, sem rikið hefur yfir- stjórn á. Jeppa cx Dráttarvéla hjólbaröar 10.700 !v-S'-' .. Stærð 650-16/6 12.760 Stærð 750-16/6 i TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDIH/F AUÐBREKKU 44 - 46 S/MI 42606

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.