Tíminn - 24.07.1976, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.07.1976, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Laugardagur 24. júli 1976. Ekki öll hlutverk jafn skemmtileg Heyrnarlaus kynslóð Margir þeir, sem nú hlusta á rokktónlist muna, þegar þeir komast á sjötugsaldurinn, hafa meiri áhuga á heyrnartækjum en tónlist. Rokktónlist, sem er hávaðasamari en 104 decibel getur orsakað heyrnartap hjá þeim sem hlusta. Þess vegna hefur Julius Bloom fram- kvæmdastjóri Carnegie Hall i New Yorkborg bannað allt rokk-hljómleikahald með hávaða sem fer fram úr þeim mörkum. Undir þetta bann koma hljómsveitir svo sem Led Zeppelin, Slade, Grand Funk Railroad, Rolling Stones og Black Sabbath. Hávaðinn á diskótekum er álfka og þrumu- veður, en hávaðinn framleiddur af hljómsveitum er helmingi meiri. Samkvæmt rannsóknum. Félags þýzkra verkfræðinga, getur slik hljómlist orsakað varanlega skemmd á heyrn eða jafnvel heyrnarleysi. Hávaðinn er mældur i decibölum og ef hann fer yfir 90 decibel er hann skaðlegur heilsu manna. Led Zeppelin hljómsveitin fram- leiðir venjulega 123 decibel hávaða og Slade rokkhljóm- sveitin 127 decibel. gébé Rvik — Ferðaleikhúsiö Light Nights er um þessar mundir að hefja sumarstarfsemi sína sjöunda sumarið i röð að Hótel Loftleiðum, ráðstefnusal. Stjórnendur leikhússins frá upp- hafi eru þau hjónin Kristin Magnús Guðbjartsdóttir og Halldór Snorrason, en auk þeirra taka fjórir aðrir þátt I sýningum, sem verða, til að byrja með, klukkan 21 fjögur fyrstu kvöld vikunnar. — Fyrsta sýningin var reyndar á miðvikudaginn, en við áætlum að hafa þá siöustu 2. september, sagði Kristin Magnús. Sýningar þessar eru einkum ætlaðar enskumælandi ferða- mönnum, og er allt talað mál flutt á ensku, en islenzk þjóðlög eru fluttá islenzku. Sýningarnar eru i formi kvöldvöku eins og þær gerðust i islenzkum baðstofum. Lesnar eru þjóðsögur, þar á meðal draugasagan vinsæla um Djákninn á Myrká, einnig verða ýmsar álfa- og tröllasögur sagðar. Islenzka langspilið verður kynnt og lesið upp úr Egils- og Njálssögu. Undanfarin sumur hafa sýning- ar þessar notið mikilla vinsælda og aðsókn alltaf verið mikil. Hafa erlendir ferðamenn vel kunnað að meta þetta framtak, en þeir eru ekki aðeins Bretar eða Banda- rikjamenn, heldur einnig Þjóð- verjar, norðurlandabúar og fleiri. Fjórir af þátttakendum Ferðaleikhússins: Talið frá vinstri: Sverrir Guöjónsson, Kristinn Ág. Frið- finnsson, Matthildur Matthiasdóttir og Kristin Magnús Guðbjartsdóttir. Auk þeirra taka einnig þátt i sýningunni, Halldór Snorrason, og kvæðamaðurinn Ingþór Sigurbjörnsson. Fjórar sýningar í viku — fyrir enskumælandi ferðamenn Sennilega muna sumir eftir Lee Meredith, sem lék i kvikmynd- inni „Framleiðendurnir” og sýnd var hér fyrir nokkrum árum. Sú mynd þótti frekar óraunhæf. Þar lék hún einka- ritara, sem Zaro Mostel réði til sin, ekki vegna dugnaðar i hrað- ritun — það er áreiðanlegt — heldur vegna hennar góða úlits og kyntöfra. (Annað eins þekkist einnig nú á dögum!) Nú leikur Lee i annarri skemmti- kvikmynd, „Sólskins- drengirnir”. Þar leikur hún ljóshærða fegurðardis, og á hún að vera frekar heimsk. Þegar rætt er við Lee Meredith gerir maður sér fyrst ljóst, hversu góð leikkona hún er. Hún getur leikið i heimskulegum hlut- verkum, en i rauninni er hún mjög vel gefin og elskuleg. Hún býr i New Jersey með eigin- manni sinum og dóttur, en skreppur svo til Hollywood til að leika i kvikmyndum, eða hún fer til New York til að leika á sviði á Broadway. Þegar Lee er spurð að þvi, hvernig á þvi standi að hún skuli halda áfram að leika leiðinleg hlutverk, svarar hún þvi: — Það er vegna útlitsins. En ég vil heldur halda áfram að leika i þess konar hlutverkum en leika alls ekki. — Enhvern daginn lagast þetta ef til vill. — Nú skil ég hvers vegna hann — Allur þessi áburður hefur fariö vildi hafa okkur með. til einskis. DENNI DÆMALAUSI „Ertu enn að hugsa um hver ætti að éta allar þessar bráuð- sneiðar.”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.