Tíminn - 24.07.1976, Qupperneq 12
12
TÍMINN
Laugardagur 24. júli 1976.
rr í JÖTUNHEIMUM
FJALLANNA 25
úti á Kolturvatninu. Aldrei fyrr höfðu svo margir bátar
komið inn á vikina í einum f lota. Þarna voru bátar úr öll-
um byggðunum í námunda við Kolturvatnið, og meðal
aðkomumanna úr grannbyggðunum voru frumbýlingar
af bæjum við Angurmannselfina, milli Kolturvatns og
Malgómaj. Það var varla til það nýbýli ofan við byggða-
takmörkin, að ekki væri einhver þaðan. Venjulega kom
allmargt barna með fullorðna fólkinu, en í þetta sinn
voru engin börn í bátunum, nema ungbörn sem átti að
skíra. Konur voru líka fáar í samanburði við fyrri ár. í
bátunum voru einkum f ullf riskir karlmenn. Og það voru
ekki friðvænlegir kirkjugestir sem stýrðu þeim að
lendingunni við Flattómakk. Harðar siggmiklar hendur
krepptust um árahlummana, og undir húfuderunum
voru skuggaleg andlit. Sums staðar gægðust ógnandi
byssuhlaup upp yfir borðstokkinn.
Fremsti báturinn var minni en hinir og klauf vatnið
léttilegar. Það var bátur Jónasar. Hann sat sjálf-
ur undir árum, og það þurfti enginn að velkjast í vafa
um það að þetta var einn hinn mesti dagur í lífi hans.
Hans Pétursson hafði hjálpað honum til að bera bátinn
yf ir eiðið milli vatnanna. AAarta hafði komið á eftir með
árarnar, og Greta bar malpokann. Fjórir gátu verið í
bátnum en ekki heldur fleiri, og nú kom hann hér,
f remstur í Kolturvatnsf lotanum. Jæja, — f loti — það var
bara kannski helzt til iburðarmikið orð um hóp hálf lekra
árabáta, sem notaðir voru á vatni i kreppu hárra f jalla,
f imm eða sex hundruð metra yf ir sjávarmál. En það dró
ekki úr hreykni Jónasar. Þetta var i fyrsta skipti að fólk
frá Marzhlið kom á eigin farkosti alla leið til Flattó-
makk. Það gat legið milií hluta að Lars, Páll og Sveinn
Ölaf ur voru einmitt á þessari stundu á göngu eftir vega-
lausum og grýttum hlíðunum meðfram vatninu, án þess
að leita á náðir afbæjarfólks.
Það kom enginn til þess að taka á móti f rumbýlingun-
um — ekki svo mikið sem hundur né forvitið barn i
Lappakofa. Lapparnir stóðu í hvirfingum við kofa sína
og litu einkennilega hver á annan. Sýslumaðurinn og
Lappafógetinn voru líka skrítnir á svipinn, þvi að að-
komumenn voru allir vopnaðir byssum og sums staðar
sáust löng bjarndýraspjót milli matarskrína og skinn-
sekkja. Það hafði aldrei borið við að frumbýlingarnir
kæmu vopnaðir til kirkjunnar síðan á allra f yrstu land-
námsárunum.
— Nú-ú — hvað segir þú svo? Heldurðu, að það sé ráð-
legt að egna þessa karla? Rödd sýslumannsins var dimm
og fast að þvi ógnandi og augnaráðið, sem hann sendi
Lappafógetanum, var svo ótvírætt, að það varð ekki
misskilið. Fógetinn yppti öxlum, en augnaráðið hans var
hvikult, og honum virtist þungt um andardráttinn.
— Nei, karl minn, hélt sýslumaðurinn áfram — í dag
má ekki mikið út af bera til þess, að hér gerist atburðir,
sem hvorugur okkar hef ir bolmagn til að koma í veg f yr-
ir. Og eitt hef i ég sagt, og ég get endurtekið það — verði
mér boðið að birta frumbýlingunum konunglega tilskip-
un um það, að þeir eigi að hverfa af jörðunum, sem eru
ofan við byggðatakmörkin, segi ég af mér sýslumanns-
embæftinu.
Frumbýlingarnir gengu í einni fylkingu að litlum trjá-
lundi við kirkjuna. Það glampaði á nýhvesst spjót í sól-
skininu, og það var harla lítill guðræknissvipur á hörku
legum andlitum karlmannanna. Þeir töluðu lágt og voru
svo niðursokknir í annarlegar hugsanir, að þeim kom
ekki til hugar að hjálpa kvenfólkinu að tína saman sprek
á eldana, sem þegar var byrjað að kynda undir pottum
og pönnum.
Jónas var ekki í f lokknum. Hanri beið í bátnum sínum
handan víkurinnar — hann átti von á föður sínum og
bræðrum. Óþolinmæðin skein út úr honum. Að sitja hér
og bíða, þegar svo mikið var í bígerð hinum megin við
voginn. Það voru þó kannski fleiri ástæður til þess, að
Jónasi leiddist biðin i bátnum sínum. i einum af bát-
unum f rá Skriðufelli hafði hann séð þau Eyvind og Ingu,
og honum hafði ekki dulizt, hversu kafrjóð vinnustúlkan
þeirra var.
Jónas beið og lét sér leiðast. En á meðan rambaði Ey-
vindur meðal sænskra vina sinna, glansandi af svita og
vinsemd, og bauð þeim að koma og kynna sér, að messu-
gerð lokinni, hvað kvenfólkið hans átti í skrínum sínum.
Engan furðaði á því, að Eyvindur skyldi vera hér. Þetta
var ekki í f yrsta skipti, að Norðmaður sást í Flattómakk
og í ár var sérstök ástæða fyrir Eyvind að koma. Honum
lék hugur á að vita, hvaða stefnu viss málefni tækju.
ill
|:IH|!
I
LAUGARDAGUK
24. júli
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Hallfreður örn Eiriks-
son les þýðingu sina á tékk-
neskum ævintýrum (2).
óskalög sjúklingakl. 10.25:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
• Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Krá ólympiuleikunum i
Montreai: Jón Ásgeirsson
segir frá. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 Út og suður. Asta R.
Jóhannesdóttir og Hjalti
Jón Sveinsson sjá um sið-
degisþátt með blönduðu
efni. (16.00 Fréttir. 16.15
Veðuríregnir).
17.30 ..Fótgangandi um fjöli
og bvggð". Brynja
Benediktsdóttir les ferða-
þælti eftir Horbjörgu Árna-
dóttur. Siðari lestur.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Fjaörafok. Þáttur i um-
sjá Sigrðars B. Haukssonar.
20.00 óperutónlist: Þættir úr
„La Boheme” eftir Puccini.
Renata Tebaldi, Carlo
Bergonzi, Ettoro Batianini,
Cesare Siepe og fleiri
syngja með kór og hljóm-
sveit Tónlistarskólans i
Róm, Tullio Serafin stjórn-
ar.
20.45 Framhaldsleikritið:
„Búmannsraunir” eftir Sig-
urð Róbertsson. Fjórði og
siðasti þáttur: „Hve gott og
fagurt”. Leikstjóri: Klem-
enz Jónsson. Persónur og
leikendur: Geirmundur,
Rúrik Haraldsson. Jósefina,
Sigriður Hagalin. Sisi,
Sigriður Þorvaldsdóttir.
Alli, Bessi Bjarnason.
Baddi, Hrafnhildur
Guðmundsdóttir. Þiðrandi,
Árni Tryggvason. Albina,
Guðrún Stephensen. Þyrlu-
maður, Klemenz Jónsson.
21.40 Nýsjálenzka tríóið „The
Sabre”leikur létt lög.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
f*
Eigum á lager
ÝSU-
NET
úr girni og
hálfgirni
'SEIFURH.F?
Tryggvagötu 10
Simar: 21915 &
21286
Auglýsið í
Tímanum