Tíminn - 24.07.1976, Síða 15
Laugardagur 24. júli 1976.
TÍMINN
15
Vestur-
Skaftfellingar
Héraösmót framsóknarmanna i Vestur Skaftafellssýslu verður
haldið að Kirkjubæjarklaustri laugardaginn 7. ágúst og hefst kl.
21.00.
Ræðumenn verða alþingismennirnir Ingvar Gislason og
Þórarinn Sigurjónsson.
Skemmtiatriði: Söngtrióið Við þrjú og Karl Einarsson. Dansað
til kl. 2.00.
v_____________________________________________________y
Strandamenn
Héraðsmót framsóknarmanna i Strandasýslu verður haldið að
Laugarhóli Bjarnarfirði laugardaginn 7. ágúst.
Nánar auglýst siðar.
Loðnu landað
á 5 stöðum
gébé-Rvik. — Loðnuveiðin hefur
gengið fremur treglega, þvi þótt
nóg virðist vera af loðnunni norð-
ur af Horni, liggur hún djúpt og er
mjög stygg. Loðnu hefur nú verið
landað á fimm stöðum, mest á
Sivlufiröi eða tæplega átta þús-
ur;d tonnum, en einnig i Bolung-
arvik, ólafsfirði, i Krossanesi og i
gær var landað á Neskaupstað.
Veiðisvæði hinna tuttugu skipa
sem veiðina stunda, er um 15x15
sjómilur að stærð, norður af
Horni.
Rannsóknarskipið Bjarni Sæm-
undsson hélt áfram loðnuleit i
gærdag, og var á leið austur með
Norðurlandinu.
Dolphin-kórinn
Skozkur ungmennakór í Kópavogi
Þessa dagana dvelur hér á
landi skozkur ungmennakór,
Dolphin kórinn, I boði Tóm-
stundaráðs Kópavogs. Heim-
sókn kórsins er liður i árlegum
samskiptum Kópavogs og
Glasgow á sviði æskulýðs-
mála, og mun hópur ung-
menna úr Kópavogi endur-
gjalda heimsókn þessa i næsta
mánuði.
Dolphin kórinn var
stofnaður fyrir 5 árum af
nemendum tveggja gagn-
fræðaskóla i Glasgow og fékk
kórinn fljótlega aðstöðu i lista-
og menningarmiðstöð i
Glasgow, sem ber sama nafn.
Abyrgðarmaður kórsins er
Ewan McGregor, sem jafn-
framt er fararstjóri, en sonur
hans, Richard, er söngstjóri.
Kórinnhefur viða komið viö
á söngferðum sinum m.a. á
italiu og i Þýzkalandi og mun
þetta vera fjórða utanferð
þessa unga kórs, og hafa allar
ferðirnar verið farnar fyrir
tilstilli Æskulýðsráðs
Glasgow. Efnisskrá kórsins er
mjög fjölbreytt, en mest ber á
kirkjulegri tónlist, ættjarðar-
lögum, negrasálmum og
sigildum verkum.
Kórinn befur sungið i Kópa-
vogs kirkju og á Flúðum. A
mánudagskvöldið mun kórinn
syngja í Félagsheimili Kópa-
vogs. Mun Leikfélag Kópa-
vogs annast þá skemmtun og
verður þar jafnframt bryddað
upp á öðru efni. Heimleiðis
heldur kórinn föstudaginn 30.
júli.
Fékk verðlaun á alþjóðlegri grafíksýningu
Ragnheiður Jónsdóttir fékk ný-
lega 6. verðlaun á fjórðu al-
þjóölegu grafiksýningunni I
Frechen.
Til verðlaunaveitingar voru
lögð fram 740 grafikverk eftir
listamenn frá fjölmörgum lönd-
um. Tiu verk voru valin til
peningaverðlauna og hlaut Ragn-
heiður 6. sætið sem fyrr segir. Tiu
aðrir listamenn hlutu svo minnis-
peninga.
Ragnheiður Jónsdóttir stundaði
nám i Reykjavik, Kaupmanna-
höfn og Paris. Hefur tekið þátt i
fjölmörgum alþjóðlegum grafik
biennölum viðsvegar i Evrópu og
Ameriku frá 1971, auk fjölmargra
smærri sýninga hér heima og á
hinum Norðurlöndunum.
A þessu ári á Ragnheiður m.a.
verk á sýningum i Austur-Berlin,
Madrid, Frechen, Krakow, Moss,
Fredrikstad, San Fransisco.
Leiðrétting
Tvær meinlegar prentvillur
slæddust inn i grein um hey-
skaparútlit á Austfjörðum i gær. 1
stað Þorskafjarðar — á að standa
— Þistilf jarðar og i stað — félags-
bú — að að vera félagstún.
0 Synjun
Þá sagði Snorri að þrir bátar
hefðu stundað rækjuveiðar nú að
undanförnu, en tveir þeirra væru
þegar hættir. Astæðuna fyrir þvi
sagði hann vera lélegt verð á afl-
anum. Hins vegar isuðu þeir
rækjuna um borð, og úthaldið
væri mun styttra en hann hefði
ætlað smurn bát. Á honum stæði
til að frysta hana, en með þeim
hætti væri unnt að fá mun hag-
stæðara verð og lengra úthald.
Aðspurður um hvers væri næst
að vænta i málinu sagði Snorri að
hann myndi m.a. afla sér betri og
fyllri upplýsinga um svipaðar
veiðar hjá nágrannaþjóðunum.
Þá lægiþaðbeint við að fara aftur
til Bretlands, og ná i bátinn sem
átti að selja.
— Ég hef greinilega lagt rangt
mat á hlutina, en það má segja,
að synjunin sé á vissan hátt
viðurkenning á þvi að veiðarnar
séu arðbærar, sagði Snorri
Snorrason að lokum.
Land/Rover
diesel '67
til sölu. Upplýsingar í
sima (96) 2-26-85.