Tíminn - 30.07.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.07.1976, Blaðsíða 1
Leiguflug—Neyðarf lug HVERTSEM ER HVENÆR SEM Éfc FLUGSTÖÐIN HF Símar 27122 — 11422 HÁÞRÝSTIVÖRUR okkar sterka hlið ^I rnmrmmm Síðumúla 21 Sími 8-44-43 Viðræður hafnar um geimflutning á orku? Bandarískt stórfyrirtæki hefur hug á samvinnu við Isiendinga um flutning raforku i Afríku eða Suður —hs—Reykjavik. — Hér i blaðinu var nýlega sagt frá þvi, að uppi væru ráðagerðir um að flytja raforku milli fjarlægra staða um gervihnetti. Þessu til viðbótar getur Timinn nú skýrt frá þvi samkvæmt allgóðum heimildum, að banda- riskt stórfyrirtæki, sem ma. fæst við geimrann- sóknir, hefur hug á sam- vinnu við íslendinga um könnun á þvi, hvort mögulegt sé að flytja raforku frá íslandi um gervihnött til Afriku eða Suður-Ameriku. Ástæð- an til þess, að umrætt fyrirtæki hefur fest auga á íslandi, mun einkum sú, að hér sé hægt að im gervihnött til Ameríku framleiða mjög mikla orku, en geimflutningar á orku borgi sig ekki, nema um mikla orku sé að ræða. Það mun álit sérfræðinga um- rædds fyrirtækis, að könnunarat- huganir á því, hvort slikir orku- flutningar séu gerlegir, taki um fjögur ár frá þvi, að þær eru hafn- ar, en siðan geti framkvæmdir, sem gera slika flutninga mögu- lega, tekið 10 ár eöa meira. Það gefur nokkra hugmynd um, að hér er ekki um neitt smávaxn- ar hugmyndir að ræða, að áætlað er að sendistöðin, sem flytti ork- una til hnattarins, þurfi um 40 ferkilómetra landsvæði til um- ráða fyrir tæki sin. Frumathuganir munu hafa sýnt, að tiltölulega auðveldast mun að flytja héðan orku um gervihnött til vesturstrandar Afriku eða austurstrandar Suöur- Ameriku. Sérfræðingar umrædds fyrirtækis munu þvi hafa varpað fram þeirri hugmynd, að alþjóð- legar fjármálastofnanir, eins og t.d. Alþjóðabankinn, veittu aðstoð sina til þess, að orkulitil þróunar- lönd I þessum heimsálfum gætu fengið orku frá Islandi. I Þeir eru orðnir margir gervihnettirnir, sem sveima um jörðina I Að þvi er Timinn bezt veit, I alls kyns tilgangi, til rannsókna, fjarskipta og njósna, svo eitt- hefur umrætt fyrirtæki þegar haf- I hvað sé nefnt. Og nú á að athuga, hvort mögulegt sé að flytja ið viðræður við islenzk stjórnvöld I orku frá tslandi um gervihnött til Afriku eöa Suöur-Ameriku. um framangreinda könnun. ^ Möguleikar á viðræðum um gagn- kvæm fisk- veiðiréttindi og fiskvernd — rædd á fundi með embættis- mönnum EBE -hs-Rvik. t gær fóru fram könnunarviðræöur um fiskveiöi- mái milli Islenzkra embættis- manna og embættismanna EBE. Viðræður þessar fóru fram sam- kvæmt ósk Efnahagsbandalags- ins. Að sögn Tómasar Tómassonar, sendiherra I Briissel, sem tók þátt i viðræðunum fyrir íslands hönd, ásamt fiskimálastjóra, Má Elis- syni, og aðstoðarmanni sjávarút- vegsráðherra, Einari B. Ingvars- syni, tóku viðræðurnar þrjá tima og voru fremur óformlegar. Rætt var um gagnkvæm fisk- veiðiréttindi og samvinnu i fisk- verndunarmálum og hugsanlegar framhaldsviðræður um þessi mál. Sagðist Tómas senda rikis- stjórninni skýrslu af fundinum, en vildi ekki tjá sig um gang málsins að öðru leyti. Neskaupstaður: Kolmunni frystur í beitu FYRSTU TILRAUNIR LOFA GÓÐU OG KOLMUNNINN ER MUN ÓDÝRARI EN INNFLUTTUR SMOKKFISKUR gébé—Rvik. — t Síldarvinnsl- unni á Neskaupstað er verið að gera enn eina tilraunina með kolmunna, en eins og skýrt hefur verið frá I Timanum, hef- ur vinnsla á þessari fisktegund i marning og skreið verið reynd á Neskaupstað, Höfn I Hornafirði og I Þoriákshöfn, og viröist gefa mjög góða raun. Fyrir stuttu var gerö ný tilraun, með að frysta kolmunnann i beitu og reyndu tveir bátar frá Neskaup- stað þessa beitu i veiðiferð ný- lega. Likaöi sjómönnunum beit- an vel og virtist þessi nýja tilraun gefa góðar vonir. t gær- dag landaði skuttogarinn Runólfur um fjörutiu tonnum af kolmunna á Neskaupstaö og var helminguraflans frystur f beitu. — Linubátar okkar munu nota þessa beitu auk nokkurra ann- arra úrnágrannabyggðunum, — sagði Már Lárusson, verkstjóri i SDdarvinnslunni i gær, — inn- flutti smokkfiskurinn, sem hingað til hefur verið notaður, kostar kr. 95.- kOóið, en þó ekki sé búið að verðieggja kol- munnabeituna, er augljóst að hún veröur mun ódýrari. t gærmorgun landaði Runólf- ur um 40 tonnum af kolmunna á Neskaupstað, en eins og skýrt hefur verið frá I Timanum áður, þá er togarinn á kolmunnaveið- um á vegum Hafrannsókna- stofnunar og er Sveinn Svein- björnsson leiðangursstjóri. Runólfur hélt aftur á veiðar fyrir Austurlandi i gærkvöldi og er áætlað að hann landi afla sin- um á Höfn i Hornafirði i næstu viku. Már Lárusson sagði i gær, aö of snemmt væri enn að segja um hve góður árangurinn yrði af notkun kolmunnans i beitu, en fyrsta tilraunin hefði gefiö mjög góðar vonir um framhaldið. Þvi var ákveðið að taka helming afla Runólfs i gær, til frystingar i beitu. Hingað til hafa linubát- arnir keypt smokkfisk frá Rúss- landi i beitu og er þegar ljóst að, þó eftir eigi að verðleggja kol- munnann, reikna út vinnulaun og fleira, þá verður hann mun ódýrari. Það mundi þvi spara mikinn gjaldeyri að nota innlent hráefni i beitu i stað erlends. — Áfram er haldið með vinnslu kolmunna i marning á Neskaupstað og hefur sú vinnsla gengið ágætlega. Már Lárusson sagði, að ekki væri útilokað að þó Runólfur landaði afla sinum næst á Hornafirði, að þeir á Neskaupstað fengju hluta af honum, en það færi að sjálf- sögðu eftir aflamagninu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.